Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hjartnætti Álfgríms

Read Full Article →

Álfgrímur Aðalsteinsson er tónlistarmaður frá Reykjavík, fæddur árið 1997. Hann hefur verið viðloðandi bransann í nokkur ár og steig sín fyrstu skref sem Blossi fyrir þremur árum síðan. Þröngskífan Le Blossi kom út árið eftir síðan nokkur stök log og síðan Hjartnætti í byrjun maí, en hún inniheldur þrettán ný lög frá Álfgrími. Tónlist sína skilgreinir hann sem íslenskt popp með leikrænum tilbrigðum og keyrða áfram af persónulegum sögum og samkynhneigð hans. Álfgrímur segist líka vera heillaður af því sem gerist á milli ofsahrifningar og ástarsorgar en tónleikar hans eru blanda af hefðbundinni popptónlist og gjörningalist. Álfgrímur mætti í hljóðstofu til Atla Más Steinarssonar með sína fyrstu breiðskífu Hjartnætti. Þeir ræddu saman um feril hans og breiðskífuna sem er plata vikunnar á Rás 2.

Share this article