Í tilefni af tuttugu ára afmæli Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi taka Þjóðleikhúsið og Landnámssetrið höndum saman í nýjum einleik það sem Unnur Ösp Stefánsdóttir semur og flytur leikrit upp úr skáldsögu Halldórs Laxness Sölku Völku á Sögulofti setursins. Leikritið var frumsýnt fyrr í mánuðinum við rífandi viðtökur og sýningar halda áfram inn í vorið. Unnur Ösp kíkti í Laugardagskaffið og ræddi við þau Söndru Barilli og Gísla Martein Baldursson um Sölku og sjálfa sig. Baðstofustemningin afturhvarf til gamalla tengsla Sýningin heitir Salka - ástin og dauðinn og byggir á fyrri hluta bókarinnar sem nefnist Þú vínviður hreini. „Þetta er inntakið í verkinu, fegurðin, ljótleikinn og allt þar á milli og hvað það er erfitt að vera manneskja,“ segir Unnur. Hugmyndina um sýninguna fengu Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir kona hans sem hafa rekið Landnámssetrið í tvo áratugi. „Þau frumsýndu með Benna Skallagrímsson fyrir akkúrat tuttugu árum og það gekk í nokkur ár. Svo kom Brák hennar Brynhildar. Síðan hafa þau haldið úti skáldakvöldum, Einar Kárason hefur verið þarna, KK hefur spilað og þetta er alveg dásamlegt rými,“ segir Unnur. Í salnum hvert sinn sitja tæplega hundrað manns á baðstofulofti og stemningin er afar náin. „Þetta er svolítið afturhvarf til gamalla tengsla, mjög persónulegt,“ segir Unnur um baðstofutenginguna. Gafst ekki upp og hringdi sem betur fer aftur Það var Kjartan sem sló á þráðinn til Unnar og bar hugmyndina upp símleiðis þegar það var mikið annríki hjá Unni. „Kjartan nýbúinn að lesa Sölku Völku aftur en hafði ekki lesið hana í þrjátíu ár. Hann er svona rosalega uppveðraður og æstur og bara: Þetta er besta bók allra tíma!“ rifjar Unnur upp. Kjartani hafi verið mikið niðri fyrir enda afar innblásinn maður en á þeim tíma var hugur Unnar annars staðar. „Hann hittir á mig í rosalegri törn í Þjóðleikhúsinu, var bara að frumsýna eitthvað eftir viku og svo bara gleymdi ég þessu,“ segir hún. En Kjartan gafst ekki upp. „Svo bara gekk hann á eftir þessu ári síðar og ég er honum svo þakklát því annars væri ég ekki í þessari stöðu að vera nýbúin að frumsýna sýninguna. Þá sagði hann ég gefst ekki upp þetta er síðasti séns, skoðaðu þetta.“ Unnur las bókina og vissi þá að þetta vildi hún gera. Þá ræddi hún málið við þjóðleikhússtjóra sem leist vel á samstarf. „Svo talaði ég við Magnús Geir og honum þótti stórkostlegt að Þjóðleikhúsið kæmi í samstarf í tilefni afmælis, lánar mig sem leikara. Svo er fullt af listrænum stjórnendum úr Þjóðleikhúsi svo þetta verður svona samstarf Þjóðleikhúss og Landnámsseturs.“ Ótrúlegt að höfundur hafi ekki verið orðinn þrítugur Unnur mætir á svið í sýningunni og segir fyrst frá sjálfri sér en bregður sér svo í hin ýmsu hlutverk úr sögunni. „Ég er að fá áhorfendur til að skoða með mér hvort Salka Valka sé til í okkur í dag, hvort við tengjum við hana eða hvort þetta sé persóna í fortíðinni. Svo ber ég upp spurninguna höfum við lært eitthvað, samfélagið hefur breyst og við erum með alla þessa tæknibyltingu.“ Hennar mat er að sagan tali vel inn í samtímann sem sé afar merkilegt fyrir hundrað ára gamla bók sem skrifuð var af 28 ára höfundi. „Maður tryllist þetta er svo áhugavert.“ Við höfum verið að velta þessu fyrir okkur og áhorfendur á netinu eru að skrifa: Ég trúi ekki að hann hafi ekki verið orðinn þrítugur því það er djúpur þroski í þessum skrifum. Ekki bara unga barnið sem er að ganga í gegnum þennan harm og fyrstu ást heldur líka allt hitt fólkið. Samúð með öllum persónum sama hvað þær eru brútal. Ég get ekki skilið það en hann hefur fengið góðar gáfur í vöggugjöf, gott uppeldi, lífsreynslu. Margir fara heim eftir sýningu og lesa bókina Hún segir að þeir áhorfendur sem ekki hafi lesið bókina fyrir sýninguna hafi margir sagt sér að þeir hafi verið innblásnir að lesa hana þegar henni lauk. Einn þeirra sem kveikti á henni er tengdur nóbelsskáldinu fjölskylduböndum. Sagan er sterk og skýr og hrikalega spennandi. Auður Jóns sagði að fyrstu kynni sonar hennar af langafa sínum hafi verið á frumsýningunni og hann var svo ánægður með söguna, og hún uppveðruð að hann væri að tengja. Hann er fjórtán ára. Í fyrsta sinn með allri fjölskyldunni til Tenerife Unnur Ösp verður fimmtug á árinu og kallar tímamótin kímin hálfleik. Í tilefni hálfrar aldar afmælis ætla þau Björn Thors eiginmaður hennar með öll börnin fjögur til Tenerife, í fyrsta sinn. „Við ákváðum því það eru þessi tímamót hjá frúnni að taka alla krakkana því það er strönd og veitingastaðir, sundlaugagarður á þakinu og við þurfum varla að fara úr húsi. Alvöru frí.“ „Það er að hellast vangeta yfir frúna“ Hún segir að þegar hún varð fertug hafi hún fundið mikinn sköpunarkraft, var með lítil börn og þau eiginmaðurinn settu upp mörg leikrit. „Ég veit ekki hvað er ekki búið að gerast á síðustu tíu árum,“ segir hún og bætir við hlæjandi en segir að það sé ekki eins kraftur núna: „Svo er þetta að breytast núna og það er að hellast vangeta yfir frúna.“ Síðustu viku hafi hún verið sérstaklega utan við sig. Sannarlega er maður undir álagi með einleik að leggja á minnið og með öll börnin, en á tveimur dögum setti ég nýja símann hans Bjössa í þvottavélina, ég tók sjálf pensilíntöfluna sem ég ætlaði að gefa dóttur minni og gleypti hana og ég flaug á hausinn á leið út í bíl, fór inn í bílinn með ruslapokann og settist hjá Bjössa. Hún bætir því við að hjónin hafi fengið yfir þessu öllu saman hláturskast. Þegar síminn fannst eftir 40 mínútna snúning í þvottavélinni hafi hins vegar ekkert amað að honum, en Björns Thors biðu þrjú ósvöruð símtöl sem hringdu á meðan þvotturinn snerist. Unnur Ösp Stefánsdóttir frumsýndi nýverið glænýjan einleik upp úr Sölku Völku í Landnámssetrinu við rífandi viðtökur. Hún fagnar fimmtugsafmæli á árinu og grínast með að hafa verið sérlega utan við sig í annríki síðustu vikna.