Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Endurskoða áhættumat í tengslum við Hinsegin daga í kjölfar árásar í Berlín

  • What: Security review after attack at Berlin event
  • Impact: Increased security measures considered for events
Read Full Article →

Einn lést og sextán særðust í árás á hinsegin daga í Berlín á laugardaginn. Borgarstjóri Amsterdam tilkynnti í gær að það yrði strangari öryggisgæsla á Hinsegin dögum í borginni og skipuleggjendur hátíðarinnar í Prag hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir ítreka að öryggi þátttakenda verði í öndvegi. Hinsegin dagar á Íslandi eru 4.–9. ágúst og gleðigangan verður 8. ágúst. Í skriflegu svari embættis ríkislögreglustjóra við fyrirspurn fréttastofu segir að áhættumat sé til endurskoðunar í samráði við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Ekki liggi fyrir hvort breytingar verði gerðar á því. Hræðilegt hryðjuverk Helga Haraldsdóttir, formaður Hinsegin daga, segir árásina hræðilegt hryðjuverk og segir stjórnendur hátíðarinnar á Íslandi hafa sent samúðarkveðjur til Þýskalands. Hún skilji að árásin geti vakið óhug hjá fólki í aðdraganda hátíðarinnar hér á landi en segir að vel verði gætt að öryggi líkt og árin á undan. Varðandi öryggismál þá höfum við verið í mjög góðu samtali við lögregluna undanfarin ár og það verður engin breyting á því. Bera höfuðið hátt og sameinast undir regnboganum Þetta sé því miður ekki í fyrsta sinn sem hryðjuverkaárás sem þessi beinist að hinsegin fólki og nefnir hún sem dæmi árás á skemmtistað í Orlando í Bandaríkjunum árið 2016 og árás á Hinsegin daga í Osló í Noregi árið 2022. Skipuleggjendur Hinsegin daga láti það þó ekki stoppa sig. Við mætum á laugardaginn og göngum gleðigönguna og berum höfuðið hátt. Slagorð hinsegin daga í ár er sameinust undir regnboganum og það munum við svo sannarlega gera.

Share this article