Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hlíðarkaup á Króknum skiptir um eigendur

  • What: Ownership of Hlíðarkaup in Sauðárkróki changes
  • Impact: Local grocery store now owned by new management
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 27.7.2026 | 15:36 Hlíðarkaup á Króknum skiptir um eigendur Feðgarnir Óli Björn Pétursson og Pétur Ingi Björnsson taka við lyklunum af Ásgeiri Einarssyni sem hefur rekið Hlíðarkaup frá 1991. Páll Friðriksson Sauðárkróki Setja bókamerki Síðastliðið föstudagskvöld, eftir 35 ára kaupmannstíð Ásgeirs Einarssonar, fengu nýir eigendur Hlíðarkaups á Sauðárkróki lyklana afhenta að versluninni en hana hafði Ásgeir rekið frá árinu 1991. Hlíðarkaup er vinsæl matvöruverslun í bænum og sú eina sem eftir er af þeim sem kalla mætti „kaupmanninn á horninu“. Nýir eigendur eru feðgarnir Pétur Ingi Björnsson og Óli Björn Pétursson ásamt eiginkonum, Regínu Jónu Gunnarsdóttur og Heklu Eir Bergsdóttur. Ákváðu að láta slag standa Að sögn Óla Björns hafa kaupin verið í bígerð í nokkurn tíma en eftir mikla ígrundun hafi þau ákveðið að láta slag standa. Óli var ánægður með viðtökurnar sem þau fengu fyrsta daginn sinn í búðinni sl. laugardagsmorgun og segir daginn hafa farið vel af stað. En má fólk búast við einhverjum breytingum? „Aðalbreytingarnar okkar snúa að því að nútímavæða búðina aðeins en við höldum sömu þjónustu og sömu gæðum alls staðar. Við ætlum aðeins að stækka og breyta og uppfæra búnað sem er orðinn lúinn,“ segir Óli og bætir við: „Þetta er mestmegnis tæknilegs eðlis sem við ætlum að uppfæra. Nýtt tölvukerfi og alls konar svoleiðis sem við erum að koma með nýtt inn.“ Sama vöruúrval og áður Hann segir að áfram verði boðið upp á sama vöruúrval og verið hefur en áhugi sé fyrir hendi á að koma með nýjar og betri vörur en vöruúrvalið sem slíkt verði látið halda sér eins mikið og hægt er. Ekki verði hróflað við afgreiðslutímanum sem stendur frá klukkan tíu að morgni til tíu að kvöldi alla daga vikunnar, allan ársins hring. „Við ætlum að hafa þetta fjölskyldurekið fyrirtæki og vera eins mikið sjálf og við getum, vera sýnileg, tala við viðskiptavini og bara mæta þörfum viðskiptavinarins,“ útskýrir Óli sem segist ætla að verða ómengaður kaupmaður á horninu. Örlögin gripu í taumana Eins og áður kom fram var Hlíðarkaup opnað árið 1991, nánar tiltekið 15. desember, og kannski má segja að örlögin hafi gripið í taumana með því að Ásgeir gerðist verslunarmaður. Hann, ásamt föður sínum og bróður, var byggingarverktaki og byggði raðhús í Raftahlíðinni auk annarra bygginga í Hlíðarhverfi sem þá var að byggjast upp. Þar var gert ráð fyrir lóð undir verslunarrekstur sem þeir feðgar sóttu um. „Þannig að við ákváðum að fá þessa lóð og byggja allavega húsið og selja það þannig, eins og við höfðum gert með hin húsin. En svo bara seldist ekki húsið og við vorum komnir í pressu hjá bænum um að láta það frá okkur eða gera eitthvað við það,“ segir Ásgeir sem á þeim tímapunkti var fluttur á höfuðborgarsvæðið. „Þannig að ég tók þá ákvörðun að fara norður og koma upp þessari verslun og selja hana þá í rekstri, svo veistu hvernig það endaði,“ segir Ásgeir og hlær. Spurður hvað nú taki við hjá kaupmanninum fyrrverandi segist Ásgeir ætla að rækta samband sitt við sína nánustu sem hann segist ekki hafa verið nógu duglegur við vegna þeirrar bindingar sem verslunin hefur krafist. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » 10 ár síðan Hildur greindist með krabbamein og þakkar fyrir hvern dag Stórlið á eftir japanska markverðinum Hlíðarkaup á Króknum skiptir um eigendur Innkalla fæðubótarefni með ólöglegu nýfæði LeBron James tilkynntur hjá nýja félaginu Umræðan Vændiskaup eru ekki einkamál Treysta Íslendingar sér ekki lengur til að vera sjálfstæð þjóð? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð „Það er bara algjört hrun“ Af hverju taka við löstunum líka? Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Mest lesið Í gær Í vikunni Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Banaslys á Þrengslavegi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Lilja syrgir Hilmar og þakkar fyrir dýrmætan tíma Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Bar Jón Pál til grafar Barnafjölskyldur ganga fyrir: 93 strandaglópar „Einar í útlöndum og vitum ekki neitt“ Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Skúli Tómas aftur á Landspítalann Slasaðist töluvert í Dýrafjarðargöngum Birkiskógur hefur mikið látið á sjá Slagviðri á Bræðslunni Feðgar greindust báðir með hvítblæði Ný brú yfir Gufufjörð tekur á sig mynd Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Íslendingum sendur tónninn Ástandið aldrei verið eins slæmt Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Nýjast á mbl.is » 10 ár síðan Hildur greindist með krabbamein og þakkar fyrir hvern dag Stórlið á eftir japanska markverðinum Hlíðarkaup á Króknum skiptir um eigendur Innkalla fæðubótarefni með ólöglegu nýfæði LeBron James tilkynntur hjá nýja félaginu Umræðan Vændiskaup eru ekki einkamál Treysta Íslendingar sér ekki lengur til að vera sjálfstæð þjóð? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Af hverju taka við löstunum líka? Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Ekki innstæða fyrir launahækkunum Mest lesið Í gær Í vikunni Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Banaslys á Þrengslavegi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Lilja syrgir Hilmar og þakkar fyrir dýrmætan tíma Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Bar Jón Pál til grafar Barnafjölskyldur ganga fyrir: 93 strandaglópar „Einar í útlöndum og vitum ekki neitt“ Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Skúli Tómas aftur á Landspítalann Slasaðist töluvert í Dýrafjarðargöngum Birkiskógur hefur mikið látið á sjá Slagviðri á Bræðslunni Feðgar greindust báðir með hvítblæði Ný brú yfir Gufufjörð tekur á sig mynd Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Íslendingum sendur tónninn Ástandið aldrei verið eins slæmt Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu

Share this article