Lögreglan í Danmörku handtók í dag mann vegna gruns um vopnaburð nærri Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn. Maðurinn var handtekinn eftir að lögreglu bárust tilkynningar um að sést hefði til manns með hlut í fórum sínum sem líktist skammbyssu. Þetta staðfestir Rune Nørgaard, varðstjóri hjá lögreglunni í Kaupmannahöfn, í samtali við Ekstra Bladet . Nørgaard leggur áherslu á að engin hætta sé, eða hafi verið, á ferðum fyrir vegfarendur eða farþega á flugvellinum vegna atviksins. Lögregla er með mikinn viðbúnað á svæðinu og vinnur að rannsókn málsins. Maðurinn var handtekinn skammt frá flugvellinum, nærri Circle K-bensínstöðinni við Kystvejen. Lögregla getur ekki staðfest að maðurinn hafi verið vopnaður en staðfestir að hann hafi verið handtekinn. Hann er búsettur í Danmörku en er ekki danskur ríkisborgari.