Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bíó Paradís tapaði 28,5 milljónum

Read Full Article →

Heimili kvikmyndanna ses., sem rekur Bíó Paradís, tapaði 28,5 milljónum króna á árinu 2025, samkvæmt nýbirtum ársreikningi félagsins. Árið áður hagnaðist reksturinn um 10,1 milljón króna. Eigið fé félagsins var neikvætt um 9,5 milljónir króna í árslok 2025, en hafði verið jákvætt um 19 milljónir króna ári fyrr. Í skýrslu stjórnar segir að kostnaðarverðshækkanir hafi einkennt rekstur félagsins á árinu. Rekstrartekjur drógust saman um tæpar 18 milljónir króna, úr 298,8 milljónum í 281,2 milljónir króna, á sama tíma og rekstrargjöld jukust um rúmar 20 milljónir króna og námu 304,8 milljónum króna. Mestu munaði um hækkun launa og launatengdra gjalda, sem jukust úr 124,4 milljónum króna í 133,5 milljónir króna, og aukinn kostnað vegna reksturs fasteigna sem hækkaði úr 47,6 milljónum króna í 58,8 milljónir króna. Félagið var með 11 ársverk á árinu, jafnmörg og árið áður. Þrátt fyrir afkomu síðasta árs segir í skýrslu stjórnar að áætlanir stjórnenda geri ráð fyrir afkomubata á árinu 2026 og að horfur til meðallangs tíma séu ágætar.

Share this article