Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tap og neikvætt eigið fé

Read Full Article →

Kaffihús Kaffitárs skiluðu 44 milljóna króna tapi árið 2025, samanborið við 32 milljóna tap árið 2024. Tekjur drógust saman um 25% milli ára og námu 196 milljónum. Eigið fé var neikvætt um 99 milljónir um síðustu áramót og skuldir námu 162 milljónum. Í ársreikningi segir að rekstrarumhverfi kaffihúsa hafi verið mjög krefjandi síðastliðin ár, m.a. vegna hækkana á hrávöruverði og hærri rekstrarkostnaðar. Á árinu 2025 var kaffihúsinu á Höfðatorgi lokað en frá árinu 2021 hafði fjórum öðrum kaffihúsum Kaffitárs verið lokað. Eftir stóðu tvö kaffihús, annars vegar í Kringlunni og hins vegar í Háskólanum í Reykjavík en í byrjun maí sl. var ákveðið að loka þeim og rekur félagið því ekki nein kaffihús í dag. Kaffitár mun áfram framleiða kaffi en Kaffitár ehf., sem heldur utan um kaffibrennsluna, tapaði 98 milljónum króna í fyrra, samanborið við 50 milljóna tap árið áður. Tekjur námu 688 milljónum og jukust um 14,7% milli ára. Eigið fé var neikvætt um 73 milljónir og skuldir námu 568 milljónum um áramótin. Í ársreikningi segir að rekstur félagsins hafi verið þungur á árinu og hátt hráefnisverð haft veruleg áhrif á reksturinn. Gripið var til hagræðingaraðgerða og tekin var ákvörðun um að sameina alla framleiðslu félagsins á einn stað. Þá var ráðist í að endurnýja hluta af tækjabúnaði og aðstöðu í verksmiðju félagsins í Njarðvík. Árangurinn af þeim breytingum er að sögn stjórnar farin að skila sér og er gert ráð fyrir umtalsverðum rekstrarbata í ár. Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article