Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Rúmenar skjóta í fyrsta sinn niður dróna sem flugu inn í lofthelgi landsins

Read Full Article →

Rúmenar skutu niður dróna sem rauf lofthelgi landsins í dag, annan daginn í röð. Dróninn var skotinn niður af F-16 orrustuþotu. Rannsakendur segja að brak úr drónanum bendi til þess að hann komi frá Rússlandi. Rúmenska þingið samþykkti í fyrra lög sem heimila her landsins að skjóta niður dróna eða eldflaugar sem fara inn fyrir lofthelgi landsins án leyfis. Heimild fyrir því skorti þar sem ríkið er hvorki í stríði né neyðarástandi. Í gær skaut herinn niður dróna í fyrsta sinn. Hann var þá í um 114 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni Búkarest. Ursula von der Leyen framkvæmdastjóri Evrópusambandsins hrósaði rúmenska hernum fyrir snör viðbrögð í færslu á X í gær. Þar sagði hún að styrking varna og aukinn fælingarmáttur í austasta hluta sambandsins væri forgangsatriði. Í morgun skaut herinn svo niður annan dróna, austast í landinu, skammt suður af úkraínsku landamærunum. Frá því að innrásarstríð Rússa í Úkraínu hófst 2022 hafa rússneskir drónar reglulega ratað inn fyrir lofthelgi Rúmeníu sem á landamæri að Úkraínu. Sumir þeirra hafa hrapað þar til jarðar. Í maí sprakk dróni á fjölbýlishúsi í landinu með þeim afleiðingum að tveir særðust.

Share this article