Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

HMS telur uppbyggingu á Akureyri ekki halda í við íbúafjölgun

Read Full Article →

Uppbygging á Akureyri hefur verið langt undir áætlaðri þörf síðustu ár, miðað við útreikninga Húsnæðis-,mannvirkja og skipulagsstofnunar (HMS). Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, segir þurfa að rýna betur í tölurnar og mögulega endurmeta húsnæðisáætlun. „Þetta kemur mér aðeins á óvart. En ég held að okkar áætlanir séu þannig að við ættum að geta haldið í við íbúafjölgunina, allavegana ég vonast til þess. Við verðum að gera það. Þannig við verðum bara að spýta í lófana og endurskoða okkar áætlanir í samræmi við þetta“, sagði Ásthildur að loknum fundi um húsnæðismál á Akureyri í dag. Í máli bæjarstjórans kom fram að í þeirra áætlunum væri gert ráð fyrir að uppbygging á þessu ári yrði umfram það sem nauðsynlega þyrfti vegna fólksfjölgunar. Þau stefndu að úthlutun lóða fyrir allt að 260 íbúðir á ári að meðaltali, það væri töluvert umfram þörf. „Passar illa við áætlanir um fólksfjölgun“ Í útreikningum HMS var myndin aftur á móti öðruvísi, þar var talað um að markaðurinn á Akureyri væri sannarlega mikið virkari en önnur svæði á Norðurlandi, en miðað við forsendur þeirra útreikninga - hefði þurft að byggja um það bil hundrað íbúðum meira á ári síðustu 3 ár til að anna eftirspurn á Akureyri. Þá kom fram í kynningu HMS að áætlanir fyrir íbúðaþörf pössuðu illa við áætlanir um fólksfjölgun. Áætlanir um íbúðaþörf verði að byggja á raunhæfum forsendum. HMS benti til dæmis á að vegna öldrunar þjóðarinnar yrði að reikna með færri íbúum á hverja íbúð: Akureyri gerir ráð fyrir 1,2 nýjum íbúum fyrir hverja nýja íbúð​ Á Íslandi eru að meðaltali 2,4 íbúar á hverri íbúð​ HMS telur að 1,5-1,6 nýir íbúar verði á hverri nýrri íbúð næstu áratugina eftir því sem þjóðin eldist og barnafjölskyldum fækkar​ Því þurfi fleiri íbúðir en áður. Hver er ykkar stefna í íbúðauppbyggingu, eru þið að horfa á dreifðari byggð, þéttingu eða einhverskonar bland? „Við erum að horfa á bland. Við erum í uppbyggingu á nokkrum svæðum, við erum með Holtahverfið, við erum með Móahverfið og síðan annan áfanga í Móahverfinu og svo erum við með þéttari reiti líka svo við fáum einhverja góða samfellu,“ segir Ásthildur.

Share this article