Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Innbrotafaraldur: Reykjavíkurborg býður íbúum á fund um öryggi

  • What: Reykjavík hosts security meeting for residents and businesses
  • Impact: Community members are invited to discuss local safety
Read Full Article →

Reykjavíkurborg býður íbúum borgarinnar og fólki í verslun og þjónustu á samráðsfund þar sem öryggi í borginni verður rætt. Þrír hafa verið handteknir í tengslum við innbrotafaraldur í miðborginni. Borgarstjóri hélt samráðsfund á þriðjudaginn þar sem aukið myndavélaeftirlit í miðborginni var meðal annars rætt. Borgarstjóri opnar fundinn sem verður í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan 17 þriðjudaginn 28. júlí. Eyþór Víðisson, sérfræðingur í öryggismálum, fer með fræðsluerindi og ýmis öryggismál verða rædd, þar á meðal nágrannavarsla. Gestum stendur til boða að fá nágrannavörslulímmiða til að setja í glugga. Fulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir frá samfélagslögreglunni.

Share this article