Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Greiða upp síðasta skuldabréfið með ríkisábyrgð

Read Full Article →

Landsvirkjun greiddi í dag upp síðasta skuldabréf félagsins sem naut ríkisábyrgðar. Skuldabréfið var gefið út árið 2006 undir EMTN skuldabréfaramma félagsins og var að fjárhæð 150 milljónir evra, eða jafnvirði um 21 milljarður króna. Lánið var tekið til að fjármagna framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun og var lánstími þess 20 ár. Landsvirkjun hefur greitt ríkissjóði árlegt ríkisábyrgðargjald vegna ábyrgðarinnar. „Um er að ræða mikilvæg tímamót í fjármögnunarsögu orkufyrirtækis þjóðarinnar og lokaskref í þeirri vegferð að afnema ríkisábyrgð af öllum lánum fyrirtækisins,“ segir í fréttatilkynningu Landsvirkjunar. Hlutfall lána Landsvirkjunar með ríkisábyrgð hefur lækkað ört á undanförnum árum í samræmi við markmið fyrirtækisins um að því að draga úr og að lokum afnema ríkisábyrgð. Landsvirkjun hefur um árabil fjármagnað sig á alþjóðlegum skuldabréfamörkuðum án ríkisábyrgðar, á grundvelli eigin fjárhagsstyrks og lánshæfismats. „Eftir uppgreiðslu skuldabréfsins í dag eru því engin lán Landsvirkjunar lengur með ríkisábyrgð, sem endurspeglar sterka fjárhagsstöðu orkufyrirtækis þjóðarinnar.“ Rafnar Lárusson, fjármálastjóri Landsvirkjunar, ræddi um uppgreiðslu síðasta skuldabréfs félagsins með ríkisábyrgð í viðtali í Viðskiptablaðinu sem kom út 14. júlí síðastliðinn. „Það að við séum að borga upp eitt lán er kannski lítið í stóra samhenginu en þarna er sennilega um 60 ára sögu af ríkistengdum lánum á upphafsárum Landsvirkjunar og síðar ríkisábyrgðum að ljúka,“ sagði Rafnar. Sjá einnig Laus við ríkisábyrgðir

Share this article