Innlent | mbl | 24.2.2026 | 16:10 Loka sumarbúðum fyrir fötluð börn vegna fjárskorts Frá lokaballi Reykjadals í júlí 2024. Um 250 börn með þroska- og/eða hreyfihömlun á aldrinum 8-19 ára hafa sótt um dvöl í Reykjadal í sumar. mbl.is/Ómar Óskarsson Setja bókamerki Gló stuðningsfélag hefur ekki fengið svör frá mennta- og barnamálaráðuneytinu eða félags- og húsnæðismálaráðuneytinu varðandi fjármögnun fyrir verkefnin Ævintýrabúðir og Vinahópar Reykjadals, fyrir ungt fatlað fólk næsta sumar og segja tímann til að hefja undirbúning nú á þrotum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Félagið hefur í sex ár rekið tvö stór verkefni að frumkvæði stjórnvalda. Annars vegar svokallaðar Ævintýrabúðir fyrir börn og unglinga með stuðningsþarfir tengdar ADHD, einhverfu og/eða andlegum áskorunum, sem styrktar hafa verið af mennta- og barnamálaráðuneytinu, og hins vegar svokallaða Vinahópa Reykjadals, sem er sumardvöl og tómstundaúrræði fyrir ungt fatlað fólk á aldrinum 20-30 ára, styrkt af félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Ætlað að rjúfa félagslega einangrun Verkefnunum, sem bæði hófust í Covid-19 faraldrinum, var ætlað að rjúfa félagslega einangrun ungs fatlaðs fólks og styðja fjölskyldur á erfiðum tímum. Í ljós kom mikil eftirspurn eftir þjónustunni eftir að faraldrinum lauk og hafa styrkir því hingað til verið framlengdir ár frá ári. Nú er aftur á móti svo komið að ekki hafa fengist svör frá ráðuneytunum um að halda verkefnunum áfram og tími til undirbúnings fyrir næsta sumar er á þrotum. Hefðbundin starfsemi í sumarbúðunum í Reykjadal verður óbreytt en um 250 börn með þroska- og/eða hreyfihömlun á aldrinum 8-19 ára hafa sótt um dvöl þar í sumar. Í ljósi aðstæðna mun félagið bjóða aukalega upp á dvöl fyrir gesti á aldrinum 20-21 árs næsta sumar og leita leiða til að bjóða upp á styttri viðburði og heimsóknir í Reykjadal fyrir þá sem eldri eru, verður það fjármagnað með söfnunarfé félagsins. Hópar sem oft fara á mis við tækifæri „Við vitum að þetta er mikið reiðarslag fyrir okkar góðu gesti og fjölskyldur þeirra,“ segir í tilkynningunni. Tækifærin til að taka þátt í félagslífi af þessu tagi séu fá og háð stuðningi sem sé oft af skornum skammti. Því sé veruleg hætta á félagslegri einangrun og einmanaleika. Þá skorar stjórn félagsins á stjórnvöld að huga vel að þessum viðkvæmu hópum barna og ungs fólks sem oftar en ekki fara á mis við tækifæri sem flestum þykja sjálfsögð. Félagið sé reiðubúið að leggja sitt lóð á vogarskálarnar en það dugi skammt án stuðnings frá hinu opinbera. Félagið hafi alltaf fundið fyrir velvilja, bæði í ráðuneytunum og úti í samfélaginu, og trúir því að fundin verði farsæl lausn til framtíðar í anda samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem hefur nú verið bundinn í lög. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Snow expected: Challenging conditions forecast Myndskeið: Landsliðsmaðurinn var hetjan Loka sumarbúðum fyrir fötluð börn vegna fjárskorts Ítalskur gestakokkur leiðir eldhúsið á Fjallkonunni á Food and Fun Fær Liverpool samkeppni frá Real Madrid? Umræðan Ótrúlegt baráttuþrek og afrek Úkraínu Hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Greiðara aðgengi auki ekki neyslu Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sýnir hvað það þarf lítið til Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Mest lesið Í gær Í vikunni Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sólveig um laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“ Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki „Fólk lítur á hendurnar á mér“ 40 milljarða búhnykkur „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ „Minni kröfur, lélegri markmið. Það er því miður staðreynd“ Biðla til almennings að fóðra ekki fugla í görðunum „Margir sem taka bara verkjatöflur og halda alltaf áfram“ Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Bæjarstjóri tjáir sig ekki um framboð í Reykjavík Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Nýjast á mbl.is » Snow expected: Challenging conditions forecast Myndskeið: Landsliðsmaðurinn var hetjan Loka sumarbúðum fyrir fötluð börn vegna fjárskorts Ítalskur gestakokkur leiðir eldhúsið á Fjallkonunni á Food and Fun Fær Liverpool samkeppni frá Real Madrid? Umræðan Ótrúlegt baráttuþrek og afrek Úkraínu Hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ég hélt að hann hefði sloppið“ Varað við uppgangi glæpahópa í átján ár Kristrún: Skiptir máli að við stöndum með Úkraínu Starmer: Við erum ekki áhorfendur að fylgjast með utan frá Mest lesið Í gær Í vikunni Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sólveig um laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“ Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki „Fólk lítur á hendurnar á mér“ 40 milljarða búhnykkur „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ „Minni kröfur, lélegri markmið. Það er því miður staðreynd“ Biðla til almennings að fóðra ekki fugla í görðunum „Margir sem taka bara verkjatöflur og halda alltaf áfram“ Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Bæjarstjóri tjáir sig ekki um framboð í Reykjavík Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu