Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gervi­greindar­tölvu pakkað inn í lykla­borð

  • What: HP introduces new all-in-one devices with AI capabilities
  • Impact: Business users may benefit from improved productivity and AI integration
Read Full Article →

Hugmyndin um hefðbundna vinnufartölvu í bakpokanum er að breytast hratt. Á sjónarsviðið er mætt ný kynslóð búnaðar þar sem róttæk hönnun, staðbundið gervigreindarafl, aukið gagnaöryggi og byltingarkennd sjálfbærni mætast að sögn Trausta Eiríkssonar, vörustjóra PC hjá tæknifyrirtækinu OK. „Hvort sem um ræðir tæki sem koma heilli gervigreindartölvu fyrir beint í lyklaborðinu, ómetanlegt afl fyrir staðbundna gervigreind án skýjaáhættu, eða einingaskipta hönnun sem gerir viðgerðir fljótlegar og dregur úr rafrænum úrgangi, eru tölvuframleiðendur m.a. HP að endurskilgreina hvernig nútíma vinnustaðir starfa,” segir Trausti. Hann nefnir sem dæmi að nýja tækið, HP EliteBoard G1a, dragi úr flækjustigi í fjarvinnu og á skrifstofum. Í stað þess að burðast með þunga fartölvu og vesenast með dokkur geti starfsmenn einfaldlega mætt með stílhreint lyklaborð í töskunni, tengt það við hvaða skjá sem er og eru samstundis komnir með öfluga Copilot+ gervigreindartölvu. „Þá geta tölvunotendur fengið búnað sem skilar allt að 85 TOPS gervigreindarafli. Það gerir fyrirtækjum kleift að keyra flókin gervigreindarmódel staðbundið á tækinu sjálfu í stað þess að senda viðkvæm rekstrargögn upp í skýið,” segir Trausti. Hann nefnir að tölvuframleiðendur séu farnir að taka stórt skref í átt að sjálfbærni og viðgerðarhæfni með nýrri einingaskiptri hönnun. „Ef kaffislys verður á vinnustaðnum þarf ekki lengur að senda alla tölvuna á verkstæði í marga daga eða afskrifa hana, heldur er hægt að smella nýju lyklaborði á tækið á innan við fimm mínútum. Með því að gera upplýsingatæknideildum kleift að skipta um einstaka íhluti á staðnum er líftími vélbúnaðarins lengdur til muna, dregið úr flutningsþörf og komið í veg fyrir óþarfa rafrænan úrgang. Þetta fellur beint að auknum kröfum fyrirtækja um sjálfbæran rekstur, hringrásarhagsmuni og vistvæni í innkaupum," segir Trausti. Hann segir að notendur séu að sjá stærsta stökkið í hönnun tölvubúnaðar í mörg ár. „Fyrirtæki eru ekki lengur bara að leita að hraðari örgjörvum heldur lausnum sem tryggja gagnaöryggi með staðbundinni gervigreind og auðvelda sveigjanlega vinnu. Með því að færa tölvuna alla inn í lyklaborðið, bjóða val um örgjörva í sömu skelinni og auðvelda viðgerðir er svar við kalli vinnustaða um að lengja líftíma búnaðarins og draga úr rafrænum úrgangi í senn.“

Share this article