Innlent | Morgunblaðið | 23.7.2026 | 11:00 Aldrei ókostur að vera frá Íslandi Góð mæting var á fundinn. mbl.isHákon Pálsson Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Rökræður í Hörpu um ESB „Ein allsherjar upplýsingaóreiða“ Smæð Íslands okkar mesti styrkur Stjórnsýslan myndi þenjast verulega út Munu fasísk öfl ná yfirhöndinni í ESB? » Fleiri tengdar fréttir Hundruð Sunnlendinga flykktust í samkomusalinn Sviðið á Selfossi síðdegis í gær er hreyfingin Áfram Ísland stóð þar fyrir borgarafundi. Stefán Pálsson sagnfræðingur stýrði fundinum en ræðumenn voru Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, Bjarni Harðarson, bókaútgefandi og fv. þingmaður Framsóknar, Margrét Hrund Arnarsdóttir, bóndi og framkvæmdastjóri Hreppamjólkur, og Oddný Steina Valsdóttir, bóndi og ráðunautur. Ræða Guðmundar Fertrams Kerecis-forstjóra var einkar kraftmikil og eftirtektarverð. Hóf hann ræðu sína á því að koma inn á að líf hans hafi alltaf verið alþjóðlegt, enda þótt rætur hans væru á Ísafirði væri hann fæddur í Þýskalandi og hefði búið í Evrópu, Bandaríkjunum og á Nýja-Sjálandi. Auk þess starfi hann daglega með fólki um allan heim. „Ég ber mikla virðingu fyrir Evrópu. Þar eru öflug samfélög, framúrskarandi háskólar og rík menning. En virðing fyrir Evrópu þýðir ekki að ég telji að framtíð Íslands liggi innan Evrópusambandsins. Ég er ekki kominn hingað í dag til að tala gegn Evrópu. Ég er kominn hingað til að tala fyrir Íslandi.“ Sagði Guðmundur Fertram sitt mikilvægasta starf hafa verið að byggja upp Kerecis frá grunni. Þetta fyrirtæki hefði verið byggt upp með íslensku hugviti á Ísafirði en hefði getað gerst í hvaða íslenska bæ sem er. Sú hugsun að markaðurinn væri Evrópa hafði aldrei hvarflað að honum. Markaðurinn var heimurinn. „Hefði Kerecis orðið stærra eða betra fyrirtæki ef Ísland hefði verið í Evrópusambandinu? Mín einlæga niðurstaða er: Nei. Við urðum ekki alþjóðlegt fyrirtæki vegna þess að Ísland væri stórt. Við urðum alþjóðlegt fyrirtæki vegna þess að Ísland er lítið.“ Regluverk ESB sífellt þyngra Guðmundur sagðist sjá hvernig heimurinn væri að þróast, samkeppnishæfni Evrópu væri að veikjast og nýsköpunarbil að myndast gagnvart Bandaríkjunum og Kína. „Evrópa býr enn yfir framúrskarandi vísindafólki og öflugum háskólum. Vandinn er ekki skortur á hugmyndum. Vandinn er að hugmyndirnar verða of sjaldan að alþjóðlegum fyrirtækjum.“ Forstjórinn þekkir það af eigin raun að regluverk ESB verður sífellt þyngra. „Í lækningatækni hefur nýtt evrópskt regluverk gert það bæði dýrara og torveldara að koma nýjungum á markað. Afleiðingin er sú að flest evrópsk frumkvöðlafyrirtæki velja í dag að hefja vegferð sína í Bandaríkjunum frekar en á sínum heimamarkaði.“ Sagði Guðmundur Fertram Evrópusambandið vera samtök ríkja sem afsalað hefðu efnahagslegu sjálfstæði sínu og reglur um tæknilegar kröfur og inn- og útflutning væru settar af sambandinu. Ísland ætti þess vegna ekki að líta á Evrópu sem eina gluggann út í heim. Heimurinn sé markaðurinn okkar. Benti hann á að Ísland væri, ólíkt ESB, með fríverslunarsamning við Kína auk þess sem Ísland hefði gert fríverslunarsamning við Indland áður en sambandið hefði gert það. Er hann þeirrar skoðunar að gera ætti fríverslunarsamning við mikilvægasta útflutningsmarkað okkar, Bandaríkin. „Það yrði mun auðveldara fyrir okkar litla Ísland að ná fríverslunarsamningi við Bandaríkin heldur en fyrir hið flókna Evrópusamband.“ Guðmundur Fertram segir að sér hafi aldrei fundist það ókostur í viðskiptum að vera Íslendingur. Smæð Íslands sé ekki veikleiki heldur okkar mesti styrkur. „Ég hef séð íslenskt hugvit bjarga mannslífum um allan heim. Það gerðist ekki vegna þess að einhver annar trúði á Ísland, það gerðist vegna þess að við trúðum á Ísland og ég vona að við gerum það áfram,“ sagði Guðmundur Fertram undir lok ræðunnar. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Rökræður í Hörpu um ESB „Ein allsherjar upplýsingaóreiða“ Smæð Íslands okkar mesti styrkur Stjórnsýslan myndi þenjast verulega út Munu fasísk öfl ná yfirhöndinni í ESB? » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Bakari gagnrýndur fyrir ummæli um konur Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Íslenskur táningur hinn nýi Haaland? Moskító á undanhaldi á Íslandi Krullurnar slóu í gegn á Instagram Umræðan Hverjir draga stutta stráið? Það skiptir máli á hvaða grunni viðræður eru hafnar á ný Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skoða þarf úrskurðinn í samræmi við þrjú skilyrði Lögmaður mannsins: „Ekki séð neitt þessu líkt“ Telur ekki tímabært að gera mislæg gatnamót Stjórnsýslan myndi þenjast verulega út Mest lesið Í gær Í vikunni Þungbært mál Íslendings í Noregi „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Tók skyndiákvörðun og fór á „besta leik í sögu HM“ Stúlkan fannst heil á húfi Fundu týnda ferðamenn á Kristínartindum Selur Hlíðarkaup eftir 35 ár í rekstri Allar ákvarðanir senn teknar í Reykjavík Varað við vindi Smæð Íslands okkar mesti styrkur Léttir víða til: Blíðviðri sunnan heiða á morgun Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Ástandið aldrei verið eins slæmt Segist ekki hafa rætt við Jetten Málarar með tárin í augunum í vætunni Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Kynnir í 55 ár: Lifði fyrir og lést á Þjóðhátíð Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Bongóblíðu loks spáð vestanlands Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Nýjast á mbl.is » Bakari gagnrýndur fyrir ummæli um konur Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Íslenskur táningur hinn nýi Haaland? Moskító á undanhaldi á Íslandi Krullurnar slóu í gegn á Instagram Umræðan Hverjir draga stutta stráið? Það skiptir máli á hvaða grunni viðræður eru hafnar á ný Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Málarar með tárin í augunum í vætunni Skoða þarf úrskurðinn í samræmi við þrjú skilyrði Moskító á undanhaldi á Íslandi Lögmaður mannsins: „Ekki séð neitt þessu líkt“ Mest lesið Í gær Í vikunni Þungbært mál Íslendings í Noregi „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Tók skyndiákvörðun og fór á „besta leik í sögu HM“ Stúlkan fannst heil á húfi Fundu týnda ferðamenn á Kristínartindum Selur Hlíðarkaup eftir 35 ár í rekstri Allar ákvarðanir senn teknar í Reykjavík Varað við vindi Smæð Íslands okkar mesti styrkur Léttir víða til: Blíðviðri sunnan heiða á morgun Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Ástandið aldrei verið eins slæmt Segist ekki hafa rætt við Jetten Málarar með tárin í augunum í vætunni Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Kynnir í 55 ár: Lifði fyrir og lést á Þjóðhátíð Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Bongóblíðu loks spáð vestanlands Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá