Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 23.7.2026 | 6:00 „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Stefán hirðir þurrhey 2023. Nú rúllar hann allt hey. Flóki Larsen [email protected] Setja bókamerki Bændur sem ræddu við Morgunblaðið eru misjafnlega heppnir með aðstæður í heyskap um þessar mundir. Steinþór Logi Arnarsson, bóndi á Stórholti í Dölum, hló við þegar blaðamaður spurði að því hvort heyjað væri þar um þessar mundir. Báðir þóttust vita að veðrið væri ekki nægilega gott til heyskapar. Steinþór var þó bjartsýnn á framhaldið þó að hávaðarok og rigning hefði verið í hans sveit í gær. „Það horfir nú til betri vegar. Á fimmtudaginn styttir upp,“ sagði Steinþór. Heyskapur á Suðurlandi hefur einnig mátt vera í biðstöðu vegna veðursins. Páll Jóhannsson, bóndi í Núpstúni í Hrunamannahreppi, sagði mikla úrkomu hafa verið í gær og engin leið að heyja. Hann tók hins vegar í sama streng og Dalamaðurinn og benti á að þurrki væri spáð í Hrunamannahreppi um helgina. Páll játaði því aðspurður að hann sæi fyrir sér að klára heyskapinn um helgina. „Það eru margir kúabændur langt komnir og örugglega búnir með kúaheyið,“ sagði Páll um starfsbræður sína. Þurrt og blíða á Austurlandi Engan ætti að undra að aðstæður til heyskapar hafi verið mun betri á Austurlandi. Stefán Bragi Birgisson, bóndi á Ytri-Galtastöðum, er til vitnis um það. „Ég er í góðum málum og er bara að heyja núna og klára það í dag ef allt gengur eftir og ekkert bilar,“ sagði hann þegar blaðamaður sló á þráðinn. Ytri-Galtastaðir eru staðsettir utarlega í Hróarstungu í Múlaþingi. Hann segist ljúka heyskapnum óvenjulega snemma í ár, yfirleitt sé honum ekki lokið fyrr en um verslunarmannahelgina. Stefán segir að þurrt hafi verið dag og nótt síðustu tvær vikur og aðstæður því með besta móti. Ekki einn einasti dropi hafi sést undanfarið í veðurblíðunni. Hann segist ekki hafa yfir neinu að kvarta. „Maður hefur ekki vitað annað eins. Það er bara djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu,“ segir Stefán léttur í lund en hann færði sig alfarið úr þurrheyi og böggum yfir í heyrúllur árið 2023 þegar hann réðist í framkvæmdir. Heyskapur gengur vel í Múlaþingi. Bóndi þar í sveit segist ekki hafa séð dropa síðustu tvær vikur. Ljósmynd/Stefán Bragi Birgisson Spurður að því hvort bændur séu almennt að ljúka heyskap á Austurlandi segist Stefán ekki geta svarað fyrir alla bændur þó að heilt yfir hafi gengið vel í landshlutanum. „Það er svo misjafnt eftir því hvar menn búa. Ég bý hérna í lágsveitum en svo eru sumir uppi á Jökuldal sem eru kannski bara rétt að byrja,“ segir hann. „En hér í lágsveitunum eru menn allavega langt komnir,“ bætir hann við. Gróðurinn er seinni til að fara af stað eftir því sem metrunum yfir sjávarmáli fjölgar sem kunnugt er. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Mannskæðir gróðureldar: Þrír slökkviliðsmenn létu lífið Léttir víða til: Blíðviðri sunnan heiða á morgun Smæð Íslands okkar mesti styrkur „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Allar ákvarðanir senn teknar í Reykjavík Umræðan Hverjir draga stutta stráið? Gjáin milli sannleikans og Evrópusambandssinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stjórnsýslan myndi þenjast verulega út Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Hefur tæknivæðing skólakerfisins gengið of langt? Mest lesið Í gær Í vikunni Tók skyndiákvörðun og fór á „besta leik í sögu HM“ Selur Hlíðarkaup eftir 35 ár í rekstri Stjórnsýslan myndi þenjast verulega út Færir rök gegn notkun tækninnar við nám Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Aldrei breytast, Kári Stefánsson! Ástandið aldrei verið eins slæmt Bongóblíðu loks spáð vestanlands Stúlkan fannst heil á húfi Kynnir í 55 ár: Lifði fyrir og lést á Þjóðhátíð Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Ástandið aldrei verið eins slæmt Segist ekki hafa rætt við Jetten Málarar með tárin í augunum í vætunni Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Kynnir í 55 ár: Lifði fyrir og lést á Þjóðhátíð Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Bongóblíðu loks spáð vestanlands Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Nýjast á mbl.is » Mannskæðir gróðureldar: Þrír slökkviliðsmenn létu lífið Léttir víða til: Blíðviðri sunnan heiða á morgun Smæð Íslands okkar mesti styrkur „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Allar ákvarðanir senn teknar í Reykjavík Umræðan Hverjir draga stutta stráið? Gjáin milli sannleikans og Evrópusambandssinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allar ákvarðanir senn teknar í Reykjavík Stjórnsýslan myndi þenjast verulega út Nátttröllið í úkraínska hernum Sjá fram á góðan þriðja ársfjórðung Mest lesið Í gær Í vikunni Tók skyndiákvörðun og fór á „besta leik í sögu HM“ Selur Hlíðarkaup eftir 35 ár í rekstri Stjórnsýslan myndi þenjast verulega út Færir rök gegn notkun tækninnar við nám Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Aldrei breytast, Kári Stefánsson! Ástandið aldrei verið eins slæmt Bongóblíðu loks spáð vestanlands Stúlkan fannst heil á húfi Kynnir í 55 ár: Lifði fyrir og lést á Þjóðhátíð Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Ástandið aldrei verið eins slæmt Segist ekki hafa rætt við Jetten Málarar með tárin í augunum í vætunni Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Kynnir í 55 ár: Lifði fyrir og lést á Þjóðhátíð Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Bongóblíðu loks spáð vestanlands Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá

Share this article