Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 10 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Grindavíkurvegi lokað hluta fimmtudags Grétar Þór Sigurðsson Frá Grindavíkurvegi. Lokað verður á milli Reykjanesbrautar og Bláa lónsins hluta úr degi á morgun. RÚV / Ragnar Visage Vegagerðin vekur athygli á því að á morgun, fimmtudag, verður Grindavíkurvegi lokað milli Reykjanesbrautar og Bláa lónsins vegna malbikunar á hringtorgi við Reykjanesbraut. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir standi yfir frá klukkan níu í fyrramálið til klukkan fimm síðdegis. Hjáleið verður um Hafnaveg og Nesveg. Vegfarendur eru beðnir að virða merkingar og aka varlega. Engar fréttir til að birta.