Innlent | mbl | 21.7.2026 | 18:27 ESB krafði Ísland um fyrirfram aðlögun Jón Bjarnason svaraði skriflegri fyrirspurn ESB í aðildarviðræðum Jóhönnustjórnarinnar. Samsett mynd/Sibba/María Matthíasdóttir Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Kjörfundur verði með styttra móti Afstaða Frakklands óljós Krefur Þorgerði um skýrari svör Utanríkisráðherra Frakka í heimsókn Eykur ekki traust erlendra ráðamanna til Þorgerðar » Fleiri tengdar fréttir Þegar Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu á tímum Jóhönnustjórnarinnar voru landbúnaðarmál mikið þrætuepli á milli samningsaðila. Jón Bjarnason, sem gegndi embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til ársins 2011, rifjaði upp samskipti sín við Evrópusambandið um landbúnaðarmál í bloggfærslu . Þar fullyrðir hann að sambandið hafi krafist fyrirfram aðlögunar að regluverki ESB. Frétt af mbl.is Ekki á boðstólum ESB Grundvallarmunur milli aðila „Eins og allir vita er grundvallarmunur á uppbyggingu landbúnaðar, stjórnsýslu og stoðkerfis hans á Íslandi og í ESB,“ skrifar hann. Á Íslandi sé lögð áhersla á fæðuöryggi og framleiðslustöðugleika, byggðamál og innlendan matvælaiðnað í einstaka greinum. Lagaumgjörðin um atvinnugreinar í landbúnaði sé því með gjörólíkum hætti á Íslandi annars vegar og í ESB-löndum hins vegar. Grundvallarmunur er á uppbyggingu landbúnaðar, stjórnsýslu og stoðkerfis hans á Íslandi og í ESB. mbl.is/Sibba Frétt af mbl.is Jetten neitar tali um undanþágur ESB sendi skriflega fyrirspurn Þessi munur hafi komið skýrt fram í svokölluðum rýniskýrslum, þar sem greint var hverju Ísland þyrfti að breyta til að falla að laga- og stofnanaumhverfi landbúnaðar innan sambandsins. Að lokinni rýnivinnu um landbúnað setti samninganefnd ESB fram skriflega kröfu og fyrirspurn sem hljóðaði svo: Hvenær og hvernig ætlar Ísland að aðlaga sinn lagaramma hvað varðar lögbært stjórnvald, forsendur faggildingar, stofnun greiðslustofu og tilnefningu vottunaraðila? Frétt af mbl.is Innleiða þarf allt reglusafn ESB Ráðast ekki í aðlögun fyrr en samningur liggur fyrir Sam landbúnaðarráðherra svaraði Jón fyrirspurn sambandsins með skorinorðu, skriflegu svari. Kom meðal annars fram í svarinu að við greiningu og samanburð á lagareglum og stjórnsýslu í landbúnaðarmálum á Íslandi við hina almennu landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins hefði komið fram verulegur munur milli aðila á lögum og framkvæmd landbúnaðarstefnunnar. Jón sagði í svarinu að slík umbreyting kallaði á verulegar lagabreytingar, aukin umsvif stjórnsýslu og fjölgun stofnana sem ekki væru nauðsynlegar fyrir þá landbúnaðarstefnu sem gilti á Íslandi. Stefna Alþingis og ráðherra hafi verið skýr: „ekki verði ráðist í neina aðlögun að regluverki ESB fyrr en að staðfestur samningur um aðild liggur fyrir.“ Þá hafi stjórnvöld talið að vegna smæðar landsins væri óþarft að setja upp allt það stofnanakerfi sem kynnt hefði verið sem nauðsynlegt og um það þyrfti að semja sérstaklega. Jón Bjarnason var sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til ársins 2011. mbl.is/Hjörtur Frétt af mbl.is Mætti ekki setja lög andstæð regluverki ESB Settu opnunarskilyrði á kaflann Jón fullyrðir að þetta afdráttarlausa svar hafi orðið til þess að framkvæmdastjórn ESB setti opnunarskilyrði á landbúnaðarkaflann í nóvember 2011. Sambandið hafi neitað að hefja viðræður um kaflann fyrr en Ísland legði fram „viðunandi“ aðgerðaráætlun um breytingar á íslenskum lögum og uppbyggingu nýs stofnanakerfis í samræmi við það sem gildir í ESB-löndum. „Umbylting á markmiðum, grunngerð og stjórnsýslu íslensks landbúnaðar er stórpólitískt mál og um það var grundvallarágreiningur við ESB. Óljós tilvitnun í töluð orð og loðinn texta embættismanna ESB er að mínu mati ekki mikils virði. Mín reynsla sem ráðherra var sú að hafa bæri allt skriflegt og skorinort sem þar færi á milli ef ætti að vera mark takandi á,“ skrifar hann. Frétt af mbl.is Ekki farið í aðlögun án þjóðarvilja Þurfa að semja um gjörbyltingu kerfisins Niðurstaða Jóns er sú að viðræðurnar um landbúnað verði ekki teknar upp að nýju nema Alþingi samþykki sérstaka heimild til að semja um gjörbyltingu íslenska landbúnaðarkerfisins á þeim forsendum sem ESB krefjist. Staðan sé einfaldlega sú að þetta ferli, hvort sem menn kalla það samninga eða aðlögun, sé efnislega og pólitískt algjörlega stopp af beggja hálfu og geti ekki farið af stað aftur nema Alþingi gefi eftir og breyti formlega þeim fyrirvörum sem settir voru í greinargerðinni með þingsályktuninni. Frétt af mbl.is Afstaða Frakklands óljós Tengdar fréttir Ísland og ESB Kjörfundur verði með styttra móti Afstaða Frakklands óljós Krefur Þorgerði um skýrari svör Utanríkisráðherra Frakka í heimsókn Eykur ekki traust erlendra ráðamanna til Þorgerðar » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » ESB krafði Ísland um fyrirfram aðlögun Stór breyting hjá Víkingum fyrir Evrópuleikinn Afhjúpaði listaverkið í garði Ásmundarsals Víkingur R. - Hapoel Be'er Sheva kl. 19, bein lýsing Ver einum vikudegi í „Norður-Downingstræti 10“ Umræðan Gjörbreytt menntakerfi Varanlegar undanþágur eru ekki á boðstólum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Enginn haft samband vegna skrúfunnar Varað við hvassviðri við Jökulsárlón Ákæru á hendur Skúla vísað frá „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Mest lesið Í gær Í vikunni Rannsókn vegna andlátsins hætt Skemmdarverkin enn óupplýst: Aðkoman var ömurleg „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Rugluðust á Íslandi og Grænlandi Enginn haft samband vegna skrúfunnar Ekki á boðstólum ESB Lögmaður mannsins: „Ekki séð neitt þessu líkt“ Sviptir flugréttindum og málið væntanlega kært Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Afstaða Frakklands óljós Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Röng frétt leiðrétt Bregðast við ummælum Þorgerðar Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Bjóst ekki við skrúfu í samlokunni Hefði aldrei verið samþykkt í dag Yfir 100 Íslendingar fastir í Gautaborg Mótmæltu veginum um árabil Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Von á breytingum eftir „hálf ömurlega tíð“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Nýjast á mbl.is » ESB krafði Ísland um fyrirfram aðlögun Stór breyting hjá Víkingum fyrir Evrópuleikinn Afhjúpaði listaverkið í garði Ásmundarsals Víkingur R. - Hapoel Be'er Sheva kl. 19, bein lýsing Ver einum vikudegi í „Norður-Downingstræti 10“ Umræðan Gjörbreytt menntakerfi Varanlegar undanþágur eru ekki á boðstólum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Lögmaður mannsins: „Ekki séð neitt þessu líkt“ Hefði aldrei verið samþykkt í dag Aflýsa öðru flugi: Íslendingarnir sóttir í nótt Mest lesið Í gær Í vikunni Rannsókn vegna andlátsins hætt Skemmdarverkin enn óupplýst: Aðkoman var ömurleg „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Rugluðust á Íslandi og Grænlandi Enginn haft samband vegna skrúfunnar Ekki á boðstólum ESB Lögmaður mannsins: „Ekki séð neitt þessu líkt“ Sviptir flugréttindum og málið væntanlega kært Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Afstaða Frakklands óljós Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Röng frétt leiðrétt Bregðast við ummælum Þorgerðar Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Bjóst ekki við skrúfu í samlokunni Hefði aldrei verið samþykkt í dag Yfir 100 Íslendingar fastir í Gautaborg Mótmæltu veginum um árabil Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Von á breytingum eftir „hálf ömurlega tíð“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá