- What: New child protection laws in Iceland focus on monitoring children outside the home
- Impact: Includes provisions for unannounced visits and private meetings with child protection officers
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt drög að nýjum heildarlögum um barnavernd í samráðsgátt stjórnvalda . Drögin hafa verið endurskoðuð með hliðsjón af áliti og breytingartillögum velferðarnefndar Alþingis, að því er segir í tilkynningu Stjórnarráðsins . Sérstök áhersla er lögð á að styrkja eftirlit með börnum sem vistuð eru utan heimilis. Meðal annars er gert ráð fyrir heimild til óboðaðra heimsókna og að börn geti rætt við barnaverndarfulltrúa í einrúmi við hlutlausar aðstæður. Einnig er áhersla á stuðning og eftirfylgd að vistun lokinni. Samkvæmt tilkynningunni verða réttindi barna við meðferð barnaverndarmála styrkt, meðal annars með aukinni áherslu á rétt þeirra til upplýsinga, þátttöku og talsmanns. Einnig er lagt til að réttur barna til heilbrigðisþjónustu og menntunar meðan á vistun á vegum barnaverndar stendur verði sérstaklega tryggður í lögum. Umsagnarfrestur er til og með 4. ágúst.