Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Máli gegn Skúla Tómasi vísað frá

Read Full Article →

Héraðsdómur Reykjaness vísaði máli héraðssaksóknara gegn Skúla Tómasi Gunnlaugssyni hjartalækni frá í morgun. Vísir greinir frá þessu. Hann var ákærður fyrir manndráp og brot gegn lögum heilbrigðisstarfsmanna. Skúli Tómas var grunaður um að hafa borið ábyrgð á andláti sex sjúklinga sinna. Fimm mál voru felld niður og gefin út ákæra í einu þeirra. Skúli Tómas var til rannsóknar hjá lögreglu og héraðssaksóknara síðastliðin fimm ár vegna gruns um að hafa sett sjúklinga sína á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í lífslokameðferðir að tilefnislausu. Hann var sviptur læknaleyfi sínu tímabundið en endurheimti það og hefur síðustu ár starfað á Landspítalanum. Héraðsdómur telur Skúla hafa verið refsað vegna málsins þegar hann var sviptur lækningaleyfi árið 2021. Hann fékk lækningaleyfi á ný árið 2024. Ekki liggur fyrir hvort ákæruvaldið kæri niðurstöðu Landsréttar.

Share this article