- What: Icelandic police stations to be reduced
- Impact: Proposed reduction in police stations across the country
Innlent | mbl | 21.7.2026 | 11:15 Lögregluembættin verða fjögur eða fimm Lögregluembættum verður fækkað í fjögur til fimm. mbl.is/Eggert Jóhannesson Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Frumvarp um fækkun lögregluembætta úr níu í fjögur til fimm verður lagt fram af Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur í haust. Áform þess efnis eru nú kominn inn í samráðsgátt stjórnvalda þar sem opið er fyrir umsagnir til 18. ágúst. Áformin kalla á breytingar á lögreglulögum og annarri löggjöf sem gildir um verkefni lögreglunnar. Hvergi kemur fram í áformunum hvaða embætti verða undir í þessum breytingum en dómsmálaráðherra hefur að undanförnu heimsótt öll lögregluembætti landsins, rætt við starfsmenn þeirra og kynnt þeim áformin. Frétt af mbl.is Ætlar að fækka lögreglustjóraembættum Aðstoðarlögreglustjórar þar sem verður sameinað Tekið er fram í áformunum að þau embætti sem sameinuð verði öðrum verði með aðstoðarlögreglustjóra í stað lögreglustjóra til þess að tryggja nálægð við ákvörðunartöku. Starfsmönnum og svæðisstöðvum lögreglunnar mun ekki fækka við þessar breytingar en samkvæmt áformunum gefst með breytingunum tækifæri til að efla lögreglun og gera hana betur í stakk búna til að sinna skyldum sínum, þar sameinuð embætti myndi stærri liðsheildir og hagkvæmari rekstrareiningar. Ljóst sé að auknar kröfur til lögreglunnar um að tryggja almannaöryggi og verkefni á alþjóðavettvangi kalli á aukið samstarf og samhæfingu innan lögreglunnar þannig að hún starfi sem ein heild. Þá þykja áformin styrkja lögregluna við að annast daglega þjónustu við íbúa, samfélagslöggæslu og forvarnarstarf um land allt, ásamt því að bjóða upp á aukin tækifæri til starfsþróunar um land allt. Frétt af mbl.is Vilja ráðast í umfangsmikla fækkun stofnana Sparnaður fer í fjölgun lögreglumanna Til skoðunar hefur verið að í stað þess að fækka embættum að auka frekar samstarf þeirra. Það var þó mat ráðuneytisins að slíkt væri ólíklegt til að ná fram sömu skipulagslegu og rekstrarlegu áhrifum og fækkun embætta. Gert er ráð fyrir að breytingarnir muni, þrátt fyrir að fækkun starfsmanna og starfsstöðva sé ekki áformuð, hafa jákvæð áhrif á ríkissjóð, þó þau áhrif muni ekki skila sér fyrr en að nokkrum árum liðnum. Verði fyrirhugað frumvarp að lögum er gert ráð fyrir að breytingar leiði til aukinnar skilvirkni og faglegrar samlegðar í störfum lögreglunnar og að fjárveitingar til lögreglu nýtist fyrir vikið með betri hætti. Áformin miða við að þeirri hagræðingu verði varið í að styrkja og efla lögregluna í heild, með fjölgun lögreglumanna, ásamt því að fjármagna frekari uppbyggingu og framþróun lögreglunnar. Níu lögregluembætti landsins eru eftirfarandi: Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu Lögreglan á Suðurnesjum Lögreglan í Vestmannaeyjum Lögreglan á Suðurlandi Lögreglan á Austurlandi Lögreglan á Norðurlandi eystra Lögreglan á Norðurlandi vestra Lögreglan á Vestfjörðum Lögreglan á Vesturlandi Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fékk ekki rautt spjald þrátt fyrir brjálæðiskastið Lögregluembættin verða fjögur eða fimm Stjórnsýslan virkjar gervigreind Parhús eftir þekktan arkitekt til sölu í Garðabæ Feðgarnir sameinaðir Umræðan Gjörbreytt menntakerfi Varanlegar undanþágur eru ekki á boðstólum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Enginn haft samband vegna skrúfunnar Frakkar gerðu ekki ráð fyrir undanþágum Aflýsa öðru flugi: Íslendingarnir sóttir í nótt Ætti að biðjast afsökunar Mest lesið Í gær Í vikunni Rannsókn vegna andlátsins hætt „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Enginn haft samband vegna skrúfunnar Ekki á boðstólum ESB Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Afstaða Frakklands óljós Þrjú ár líða hratt í flugbransanum Myndir: Opnunarhátíð landsmóts skáta Þrjú farþegaskip lágu við bryggju í Hafnarfjarðarhöfn í fyrsta sinn Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Röng frétt leiðrétt Bregðast við ummælum Þorgerðar Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Bjóst ekki við skrúfu í samlokunni Hefði aldrei verið samþykkt í dag Yfir 100 Íslendingar fastir í Gautaborg Mótmæltu veginum um árabil Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Von á breytingum eftir „hálf ömurlega tíð“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Nýjast á mbl.is » Fékk ekki rautt spjald þrátt fyrir brjálæðiskastið Lögregluembættin verða fjögur eða fimm Stjórnsýslan virkjar gervigreind Parhús eftir þekktan arkitekt til sölu í Garðabæ Feðgarnir sameinaðir Umræðan Gjörbreytt menntakerfi Varanlegar undanþágur eru ekki á boðstólum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hefði aldrei verið samþykkt í dag Frakkar gerðu ekki ráð fyrir undanþágum Enginn haft samband vegna skrúfunnar Ætti að biðjast afsökunar Mest lesið Í gær Í vikunni Rannsókn vegna andlátsins hætt „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Enginn haft samband vegna skrúfunnar Ekki á boðstólum ESB Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Afstaða Frakklands óljós Þrjú ár líða hratt í flugbransanum Myndir: Opnunarhátíð landsmóts skáta Þrjú farþegaskip lágu við bryggju í Hafnarfjarðarhöfn í fyrsta sinn Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Röng frétt leiðrétt Bregðast við ummælum Þorgerðar Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Bjóst ekki við skrúfu í samlokunni Hefði aldrei verið samþykkt í dag Yfir 100 Íslendingar fastir í Gautaborg Mótmæltu veginum um árabil Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Von á breytingum eftir „hálf ömurlega tíð“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá