Andy Burnham, nýr forsætisráðherra Bretlands, hefur skipað John Healey nýjan fjármálaráðherra í óvæntri ráðstöfun sem hefur verið vel tekið af forystumönnum breska hersins. Healey var áður varnarmálaráðherra en sagði af sér í síðasta mánuði og sakaði þá fjármálaráðuneytið um að vilja ekki verja því fé sem þyrfti til að halda Bretlandi öruggu. Endurkoma hans í ríkisstjórnina er því talin skýr vísbending um að Burnham hyggist auka útgjöld til varnarmála. Ed Miliband, sem hafði verið nefndur sem mögulegur fjármálaráðherra, verður þess í stað utanríkisráðherra. Telegraph segir að sú skipan kunni að valda spennu í samskiptum við ríkisstjórn Donalds Trump í Bandaríkjunum, meðal annars vegna áherslu Milibands á loftslagsmál og fyrri gagnrýni hans á stjórnmál Trumps. Healey tekur við fjármálaráðuneytinu við erfiðar aðstæður. Lántaka breska ríkisins reyndist meiri en opinberar spár gerðu ráð fyrir áður en Burnham flutti inn í Downingstræti. Á tímabilinu apríl til júní tók ríkið 57,6 milljarða punda að láni, 2,7 milljörðum punda meira en fjárlagastofnunin OBR hafði spáð í mars. Opinberar skuldir Bretlands eru nú komnar yfir 2.900 milljarða punda, eða sem nemur 94,9% af landsframleiðslu. Skuldahlutfallið er nálægt því hæsta sem sést hefur frá því snemma á sjöunda áratug síðustu aldar. Fjárfestar veðja á aukin útgjöld í varnarmál Healey sagðist við skipanina ætla að koma á „aga í ríkisfjármálum“ og vinna náið með forsætisráðherranum að því að draga úr framfærslukostnaði heimila án þess að glata trúverðugleika gagnvart mörkuðum. Markaðir brugðust einnig við stjórnarmynduninni og ákvörðun nýrrar ríkisstjórnar um að lækka virðisaukaskatt á orkureikninga heimila. Ávöxtunarkrafa breskra ríkisskuldabréfa hafði farið yfir 5% á mánudag eftir að Burnham sagðist ætla að taka sveigjanlegri afstöðu til fjárlagareglna ríkisins, en hún lækkaði lítillega á þriðjudag. Varnarmálafyrirtæki hækkuðu í verði eftir skipan Healeys. Hlutabréf Babcock hækkuðu um tæp 7% í upphafi viðskipta, QinetiQ um meira en 4% og BAE Systems um 3%. Rolls-Royce hækkaði einnig og fór í nýtt met. Fjárfestar virðast veðja á að nýr fjármálaráðherra muni greiða fyrir auknum útgjöldum til hersins og hraða samningum við breska varnariðnaðinn.