Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skatta­hækkanir sagðar óum­flýjan­legar hjá Burn­ham

  • What: Economic analysts warn about potential tax increases in the UK
  • Impact: The UK government may face challenges in managing its finances
Read Full Article →

Hag­fræðingar vara við því að skatta­hækkanir verði lík­lega óum­flýjan­legar hjá ríkis­stjórn Andy Burn­ham í haust. Ástæðan er hækkandi fjár­mögnunar­kostnaður breska ríkisins og vaxandi þrýstingur á ríkis­fjár­málin, sam­kvæmt um­fjöllun Telegraph. Thomas Pugh, aðal­hag­fræðingur hjá RSM UK, segir að þegar ávöxtunar­krafa tíu ára breskra ríkis­skulda­bréfa sé komin aftur yfir 5% fylgist fjár­festar grannt með öllum nýjum tölum um lántöku ríkisins. „Þegar ávöxtunarkrafa tíu ára ríkisskuldabréfa er komin aftur yfir 5% fylgjast fjárfestar grannt með hverri tölu um lántöku ríkisins til að sjá hversu alvarlega nýja ríkisstjórnin tekur aga í ríkisfjármálum,“ segir Pugh. „Fjárlagareglurnar eru ekki lengur stærsta aðhaldið fyrir ríkisstjórnina. Það er skuldabréfamarkaðurinn,“ segir hann. Pugh bendir á að lán­taka ríkisins sé þegar komin um­fram opin­berar spár og að ríkis­stjórnin hafi ákveðið að lækka virðis­auka­skatt á orku­reikninga heimila. Við þær aðstæður verði erfitt að fjár­magna ný út­gjöld án skatta­hækkana. „Frekari skatta­hækkanir eru óum­flýjan­legar“ í haust­fjár­lögunum, segir hann. Veikari vinnu­markaðstölur hafa þó dregið úr ótta við að Eng­lands­banki hækki vexti strax í júlí. Suren Thiru, aðal­hag­fræðingur hjá ICA­EW, segir að hægari launa­vöxtur bendi til þess að ný­legt orku­verðsá­fall sé enn ekki farið að skila sér í víðtækari verðbólguþrýsting. „Þessar hóflegu tölur gera vaxtahækkun í júlí ólíklega,“ segir Thiru .

Share this article