- What: Jim Gottfridsson returns to IFK Ystad
- Impact: Soccer player transfer news
Sænski leikstjórnandinn Jim Gottfridsson er genginn í raðir IFK Ystad sem leikur í næst efstu deild í Svíþjóð. IFK Ystad er uppeldisfélag Gottfridsson en hann lék með þeim eitt tímabil áður en hann færði sig yfir til Ystads IF sem leikur í sama bæ en í efstu deild. Gottfridsson gerir þriggja ára samning við IFK Ystad en hann kemur til félagsins eftir stutt stopp hjá ungverska stórliðinu Pick Szeged. Viðskilnaðurinn við Szeged var erfiður en forráðamenn félagsins riftu samningi sínum við hann eftir áramótin sem Gottfridsson taldi ólöglegt og sagðist ætla í mál við félagið. Báðir aðilar náðu þó sáttum að lokum og Gottfridsson mættur í annað lið ári eftir að hann skrifaði undir samning við Pick Szeged. Gottfridsson varð Evrópumeistari með Svíum árið 2022 og var valinn besti handboltamaður heims það ár, þar að auki á hann fjöldan allan af titlum með þýska stórliðinu SG Flensburg-Handewitt hvar hann varði 12 árum af atvinnumannaferli sínum. Er ekki að koma heim til að ljúka ferlinum Í viðtali við samfélagsmiðla IFK Ystad leggur Gottfridsson áherslu á að hann sé ekki að koma heim til að enda ferilinn heldur ætli hann að leggja allt í sölurnar til að koma liðinu aftur í deild þeirra bestu. „ Um leið vil ég gefa eitthvað til baka til sænsks handbolta, félagsins, borgarinnar og allra þeirra barna og ungmenna sem eiga sér sömu drauma og ég hafði. “ Framkvæmdarstjóri IFK Ystad, Tobias Lellky, lagði mikla áherslu á það að þetta væru engin fjárhagsleg byrði fyrir klúbbinn heldur hefði verið lögð áhersla á það að þessi samningur yrði fjármagnaður á sjálfbærari hátt og hefði ekki áhrif á annan rekstur félagsins.