Birgir Jónsson, fyrrverandi forstjóri Play, gagnrýnir kolefnisviðskiptakerfi Evrópusambandsins (ETS) harðlega og segir það mismuna tengiflugfélögum og eyjahagkerfum á borð við Ísland. Hann telur kerfið skekkja samkeppni án þess að stuðla að raunverulegum samdrætti í losun. Ísland hefur um árabil notið sérlausnar innan ETS-kerfisins vegna landfræðilegrar stöðu landsins en að óbreyttu hefði hún runnið út í lok þessa árs. Hún felur í sér að Íslandi hefur verið veitt heimild til að úthluta gjaldfrjálsum losunarheimildum fyrir flug milli Íslands og EES svæðisins, Bretlands og Sviss. Á föstudaginn var tilkynnt að framkvæmdastjórn ESB hefði gert tillögu um að sérlausnin yrði framlengd til ársins 2030. Í færslu á LinkedIn segir Birgir að framlengingin leysi þó ekki úr undirliggjandi göllum kerfisins. Hann bendir á að beint flug frá New York til Parísar beri engan ETS-kostnað vegna flugsins yfir Atlantshafið. Flug frá Reykjavík til Parísar, sem sé um helmingi styttra, greiði hins vegar fullt kolefnisgjald samkvæmt kerfinu. Að hans mati bitnar þetta fyrirkomulag sérstaklega á tengiflugfélögum á Keflavíkurflugvelli. Birgir segir jafnframt að kerfið taki fremur mið af því hvar flogið sé en hversu mikil losun verði hverju sinni. Þannig geti stærri og eldsneytisfrekari breiðþotur sloppið við ETS-gjöld á ákveðnum leiðum, á meðan nýrri og sparneytnari vélar greiði gjöld á flugi innan Evrópu. Þá gagnrýnir hann einnig ráðstöfun tekna af ETS og segir að þær séu ekki endilega eyrnamerktar fyrir verkefni til að styðja við aukna notkun sjálfbærs þotueldsneytis eða í þágu annarra sjálfbærra lausna í flugiðnaði, heldur sé þetta enn annar skattur sem falli undir umhverfismál í fjárlögum hvers lands. Flugfélög greiði þannig kolefnisgjald án þess að fjármunirnir skili sér aftur inn í greinina, að hans mati. Birgir segir kerfið henta litlum eyjahagkerfum illa, þar sem flugsamgöngur séu nauðsynlegur hluti samgangna fremur en valkostur. Hann vísar jafnframt til gagnrýni Alþjóðasamtaka flugfélaga (IATA), sem hefur varað við því að fyrirkomulag ETS gæti dregið úr samkeppnishæfni evrópskra flugfélaga án þess að hafa teljandi áhrif á losun á heimsvísu. Í stað ETS telur Birgir alþjóðlega kolefnisjöfnunarkerfið CORSIA sanngjarnari leið þar sem það gildi jafnt um flugfélög og flugleiðir óháð því hvar starfsemin fari fram. Sjá einnig Segir mikilvægt að finna varanlega lausn Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, sagði í samtali við Viðskiptablaðið á föstudaginn að Icelandair og aðrir flugrekendur í Evrópu hefðu talað fyrir innleiðingu alþjóðlega kerfisins CORSIA. Hann sagði að það væri ekki heppilegt að vera með staðbundna lausn á alþjóðlegu vandamáli.