Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Frakkar gerðu ekki ráð fyrir undanþágum

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 20.7.2026 | 11:25 Frakkar gerðu ekki ráð fyrir undanþágum Þýskur eðalvagn ekur yfir Concorde-brú, en í baksýn er franska þinghúsið, sem enn er í þjóðhátíðarbúningi eftir Bastilludaginn 14. júlí. AFP/Lou Benoist Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Ætti að biðjast afsökunar Bregðast við ummælum Þorgerðar Bjarni kallar eftir útskýringu Jetten neitar tali um undanþágur „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ » Fleiri tengdar fréttir Jean-Noël Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, mun í dag eiga tvíhliða fund hér á landi með Þorgerði Katrínu utanríkisráðherra, þar sem mögulegt aðildarferli Íslands að Evrópusambandinu (ESB) verður eflaust rætt þó ekki sé það á opinberri dagskrá fundarins. Frakkland er annað tveggja burðarríkja ESB og afstaða þess þungvæg, en hún var mótuð 2010. Franska þjóðþingið (Assemblée nationale) gerði þá ráð fyrir því, þegar umsókn Íslands um aðild að ESB kom fyrst til umfjöllunar, að Ísland lagaði sig að reglusafni sambandsins, þar á meðal hinni sameiginlegu fiskveiðistefnu. Evrópunefnd franska þingsins studdi umsókn Íslands með fyrirvörum, en þar var lögð öll áhersla á að bráðabirgðaákvæði og frávik frá reglusafni ESB yrðu sem fæst. Þar var hvergi gert ráð fyrir varanlegum undanþágum. Leiðbeinir en bindur ekki Þó að 16 ár séu frá því að skýrslan kom út hefur hún enn þýðingu, en hún lýsti afstöðu Frakka til aðildarviðræðna við Ísland, sem ríkisstjórn Íslands vill nú taka upp á nýjan leik. Ef af yrði myndu þær byggjast á sama aðildarferli og sömu reglum og þá lágu til grundvallar. Þingskýrslan bindur ekki núverandi frönsk stjórnvöld, en það liggur engin nýrri leiðbeining fyrir. Skýrslan sýnir að stuðningur Frakka við viðræður fól ekki í sér nein fyrirheit um varanlegar undanþágur, öðru nær. Ekkert hefur komið fram sem bendir til þess að sú afstaða hafi breyst. Skýrslan var samþykkt 4. maí 2010, tveimur mánuðum áður en leiðtogaráð ESB kom saman og ákvað að hefja aðildarviðræður við Ísland. Liður í undirbúningi skýrslugerðarinnar var Íslandsheimsókn Pierre Lequillers, formanns nefndarinnar, mánuðinn á undan, þar sem hann átti m.a. fundi með ráðherrum. Lequillers var þó ekki einn á ferð því heimsóknin var sameiginlegt verkefni franska þjóðþingsins og þýska sambandsþingsins (Bundestag). Andreas Schockenhoff, varaformaður þingflokks CDU/CSU, var samferða honum, en í skýrslunni segir að niðurstöðurnar hafi verið skrifaðar í sameiningu. Sambandsþingið samþykkti þær 24. apríl og Evrópunefnd franska þjóðþingsins efnislega sömu niðurstöður 4. maí. Engin sérmeðferð Í skýrslunni er sjávarútvegur sagður verða viðkvæmasti hluti aðildarviðræðna við Ísland. Bent er á að íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið byggðist að mörgu leyti á sömu sjónarmiðum og sameiginleg fiskveiðistefna ESB, en jafnframt að ýmsar íslenskar reglur samrýmist ekki regluverki sambandsins og úr því þurfi að bæta. Þar voru helstar nefndar takmarkanir á erlendu eignarhaldi í útgerðum, bann við eignarhaldi erlendra aðila á aflahlutdeildum, takmarkaður aðgangur erlendra fiskiskipa að íslenskum höfnum og hvalveiðar. Að mati nefndarinnar stangast þær reglur meðal annars á við stofnsetningarrétt, þjónustufrelsi og frjálst flæði fjármagns. Sérstaklega var kveðið á um að við aðlögun Íslands að regluverki ESB yrði að gæta þess að bráðabirgðaákvæði og frávik frá regluverkinu yrðu sem fæst. Áhersla var lögð á að Ísland ætti ekki að njóta aðildarinnar að Evrópska efnahagssvæðinu (EES) í neinu, það þyrfti að fara í gegnum sama aðildarferli og önnur umsóknarríki. Össur og Jóhanna leiddu síðustu aðildartilraun. mbl.is/Kristinn Ingvarsson Báðu ekki um undanþágur Í frönsku skýrslunni segir m.a. frá fundum franskra og þýskra þingmanna með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra í apríl 2010. Þar segir að íslensku ráðherrarnir hafi talið „tæknilegar“ lausnir varðandi fiskveiðistjórn mögulegar, en erfiðara yrði að leysa ágreining um frjálst flæði fjármagns í sjávarútvegi. Ekki er að sjá að þau hafi óskað varanlegra undanþága frá sameiginlegri fiskveiðistefnu ESB eða fjórfrelsinu, heldur rætt um tæknilegar útfærslur í aðildarferlinu, ekki breytingar á grundvallarreglusafni ESB. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Ætti að biðjast afsökunar Bregðast við ummælum Þorgerðar Bjarni kallar eftir útskýringu Jetten neitar tali um undanþágur „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Mbappé sá fyrsti í sögu HM Burnham skipaður forsætisráðherra McGregor sleit krossband í endurkomunni Merkilegt nokk var hvalaskítur eitt sinn notaður í ís Frakkar gerðu ekki ráð fyrir undanþágum Umræðan Tími hvalveiða er liðinn Hvað gerum við þegar ríkisstjórn ákveður að fara á svig við stjórnarskrá Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ætti að biðjast afsökunar Mótmæltu veginum um árabil „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fregnir af tökum slökkviliðs á eldinum ýktar Mest lesið Í gær Í vikunni Bregðast við ummælum Þorgerðar Röng frétt leiðrétt Hefði aldrei verið samþykkt í dag Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Mótmæltu veginum um árabil Ég var kölluð tjaldakonan Aldagömul mynt fannst í Höfnum Hnífi beitt í alvarlegri líkamsárás Lést efir að hafa fallið í Ölfusá Ætti að biðjast afsökunar „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Leita að manneskju sem féll í Ölfusá Bjarni kallar eftir útskýringu Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Arnar og Kári takast á í beinni í Spursmálum Sá ekki borgarísinn en taldi hann hættulegan Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Íslenska hitametið gæti fallið á morgun „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Nýjast á mbl.is » Mbappé sá fyrsti í sögu HM Burnham skipaður forsætisráðherra McGregor sleit krossband í endurkomunni Merkilegt nokk var hvalaskítur eitt sinn notaður í ís Frakkar gerðu ekki ráð fyrir undanþágum Umræðan Tími hvalveiða er liðinn Hvað gerum við þegar ríkisstjórn ákveður að fara á svig við stjórnarskrá Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Hér eru áfall og vantrú ríkjandi“ Gerðu árásir sjöunda daginn í röð Mótmæltu veginum um árabil Frakkar gerðu ekki ráð fyrir undanþágum Mest lesið Í gær Í vikunni Bregðast við ummælum Þorgerðar Röng frétt leiðrétt Hefði aldrei verið samþykkt í dag Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Mótmæltu veginum um árabil Ég var kölluð tjaldakonan Aldagömul mynt fannst í Höfnum Hnífi beitt í alvarlegri líkamsárás Lést efir að hafa fallið í Ölfusá Ætti að biðjast afsökunar „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Leita að manneskju sem féll í Ölfusá Bjarni kallar eftir útskýringu Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Arnar og Kári takast á í beinni í Spursmálum Sá ekki borgarísinn en taldi hann hættulegan Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Íslenska hitametið gæti fallið á morgun „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal

Share this article