Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Varaforsetahjónin í Bandaríkjunum eignuðust son

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Vara­for­seta­hjón­in í Banda­ríkj­un­um eign­uð­ust son Brynja Dögg Friðriksdóttir Varaforsetahjónin á Mæðradegi hermanna í Hvíta húsinu 6. maí sl. EPA / YURI GRIPAS / POOL JD Vance varaforseti Bandaríkjanna og Usha eiginkona hans eignuðust dreng í gær. Þetta er fjórða barn þeirra, fyrir eiga þau tvo drengi og stúlku sem eru öll undir tíu ára aldri. Þetta er í fyrsta sinn í yfir 150 ár sem varaforseti Bandaríkjanna eignast barn í embætti. Vance hefur margoft og við hin ýmsu tilefni hvatt Bandaríkjamenn til að eignast fleiri börn. Fyrir 2 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Árborg Fimmt­án nýjar raf­magns­rút­ur hjá GTS á Sel­fossi Rútufyrirtæki Guðmundar Tyrfingssonar á Selfossi hefur fjárfest í fimmtán nýjum rafmagnsrútum það sem af er ári fyrir um einn milljarð króna. Mikil ánægja er með bílana, sem allir koma frá Kína. Fyrir 8 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Andy Burn­ham verður for­sæt­is­ráð­herra Andy Burnham tekur við sem forsætisráðherra Bretlands í dag. Hann verður sá sjöundi til að gegna því embætti á rúmum áratug. Keir Starmer flytur lokaræðu sína fyrir utan Downing-stræti 10 á ellefta tímanum og fer síðan á fund konungs. Burnham tekur við embættinu í hádeginu og skipar ríkisstjórn. FRÉTTAVAKT Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Vill að Judit Polgar verði for­seti Forsætisráðherra Ungverjalands vill að fyrrum besta skákkona heims verði næsti forseti landsins. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Spánn Þrett­án ára dreng­ur lést í fagn­að­ar­lát­um Þrettán ára drengur lést í fagnaðarlátum á Spáni í nótt þegar gosbrunnur hrundi í borginni Ciudad Rodrigo. Spánverjar urðu heimsmeistarar í knattspyrnu þegar þeir unnu Argentínu í úrslitaleik í gær. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Árásir níundu nótt­ina í röð Íranar og Bandaríkjamenn héldu áfram árásum á skotmörk í Mið-Austurlöndum í nótt. Bandarískur hermaður féll þegar verið var að sprengja íranskan dróna sem féll til jarðar í norðurhluta Íraks í gær. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Enn þrálát væta vest­an­lands Útlit er fyrir allt að 24 stiga hita austanlands í dag en skýjað með köflum. Búast má við áframhaldandi rigningu eða súld á vestanverðu landinu og á höfuðborgarsvæðinu. Næstu helgi á að sjást til sólar á Vesturlandi. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Tíu eft­ir­minni­leg­ustu at­vik­in á HM HM í fótbolta lauk í gærkvöld þegar Spánverjar urðu heimsmeistarar með sigri á Argentínu í úrslitaleiknum. Tíu eftirminnilegustu atvikin á mótinu, sem hófst 11. júní, voru rifjuð upp í Stofunni á RÚV eftir leikinn. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Samfélag Þvotta­björn­inn Ji­m­othy slær í gegn á sam­fé­lags­miðl­um Lítill þvottabjörn með óvenjulegt vaxtarlag hefur slegið í gegn á samfélagsmiðlum. Stuttur háls hans gæti stafað af meðfæddum galla í hryggjarliðum sem greinist aðallega í hundum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Al­var­leg hnífa­árás í 101 Einn var fluttur á bráðamóttöku eftir alvarlega líkamsárás þar sem hníf var beitt í gær eða nótt. Annar var fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás og einn var handtekinn fyrir brot á vopnalögum. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Mið- og Suður-Ameríka Ferju með yfir hund­rað manns hvolfdi í Gvæj­ana Að minnsta kosti 67 var bjargað af ferju sem hvolfdi í Gvæjana. Mikil leit stendur enn yfir. Fyrst var talið að 133 væru um borð en yfirvöld segja að farþegalistinn hafi ekki verið réttur. Því gætu enn fleiri hafa í ferjunni. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Uppboð á lands­liðs­bún­ing­um og fleiri hlutum til styrkt­ar íbúum í Dram­men Norska knattspyrnusambandið ætlar að standa fyrir uppboði á ýmsum hlutum tengdum nýafstöðnu heimsmeistaramóti í fótbolta. Notaðir og ónotaðir fótboltaskór og búningar eru meðal þess sem boðið verður upp. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Loftslagsmál 150 íbúar yf­i­gáfu heim­ili sín vegna skóg­ar­elda Brynja Dögg Friðriksdóttir Sumarið hefur verið annasamt hjá slökkviliðsmönnum í Frakklandi. Þessir börðust við skógarelda í Fontainebleau-skóginum suður af Parísarborg 13. júlí sl. EPA / GAUTHIER BEDRIGNANS Yfir 600 slökkviliðsmenn börðust við skógarelda í Suður-Frakklandi í gær. Tíu heimili urðu eldinum að bráð og tjón varð á níu til viðbótar. Slökkviliðsmaður slasaðist í aðgerðunum, þó ekki alvarlega. Um 150 íbúar í tveimur bæjum í sveitarfélaginu Var í Provence-Alpes-Côte d'Azur-héraði yfirgáfu heimili sín í gær vegna skógareldanna sem enn hefur ekki tekist að ráða niðurlögum á. Gróður er mjög þurr og eldurinn breiddist hratt út í miklum og heitum vindi. Hitinn fór í 40 stig í gær og appelsínugul viðvörun er í gildi fyrir mánudag vegna hitans. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Árás á flutn­inga­skip fyrir utan Odesu Brynja Dögg Friðriksdóttir Mikinn reyk lagði frá skipinu eftir árásina. AP / Michael Shtekel Sex voru drepnir og tveir særðust í árás á tyrkneskt flutningaskip á Svartahafi, nærri hafnarborginni Odesu í Úkraínu í gær. Í áhöfn skipsins eru meðal annars sýrlenskir og indveerskir ríkisborgarar. Átta var bjargað, fjögurra er enn saknað. Skipið, Golden Leo, er í eigu tyrknesks fyrirtækis en siglir undir fána Gíneu-Bissaú. Úkraínski sjóherinn segir að Rússar hafi skotið þremur flugskeytum á skipið þegar það var á leið frá Odesu með korn. 19. júlí 2026 kl. 23:28INNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Vatns­leki í Vest­ur­bæn­um Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út í kvöld vegna vatnsleka í húsi á horni Bræðraborgarstígs og Bárugötu. Slökkviliðið fór einnig í útkall vegna barns sem hafði læst sig inni á salerni. 19. júlí 2026 kl. 22:23ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Spánn - Arg­ent­ína Spánverjar eru heimsmeistarar karla í fótbolta í annað sinn eftir 1-0 sigur á Argentínu í úrslitaleiknum. Ferran Torres skoraði eina mark leiksins í framlengingu. 19. júlí 2026 kl. 21:30INNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Maður sem féll í Ölfusá er fund­inn Sigrún Björk Hjartardóttir Lögreglu barst tilkynning um klukkan sjö í kvöld um að maður hefði fallið í Ölfusá. Í tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi á Facebook kemur fram að hann hafi fundist neðar í ánni eftir stutta leit og verið bjargað á land. Lögregla, sjúkralið, björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út og brugðust við á hæsta forgangi. Maðurinn var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans í Reykjavík með þyrlu Gæslunnar. Ekki verða veittar frekari upplýsingar um líðan hans. Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum úr tilkynningu lögreglunnar. RÚV / Arnar Halldórsson 19. júlí 2026 kl. 20:18ERLENDAR FRÉTTIR Ítalía Ítölsk blaða­manna­sam­tök slegin yfir hrotta­legu morði Saksóknarar á Ítalíu rannsaka morð á íþróttafréttamanni á Suður-Ítalíu. Nokkra daga tók að bera kennsl á líkið. 19. júlí 2026 kl. 20:09ÍÞRÓTTIR Golf Axel og Guðrún unnu Hval­eyr­ar­bik­ar­inn Axel Bóasson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir stóðu uppi sem sigurvegarar á einu af sterkustu golfmótum ársins, Hvaleyrarbikarnum, sem lauk í dag. Úrslit í karlaflokki réðust í bráðabana. 19. júlí 2026 kl. 19:39ERLENDAR FRÉTTIR Rússland Vonin úti fyrir stjórn­ar­and­stæð­ing­inn Nad­ez­d­in Þingkosningar verða í Rússlandi í september og stjórnarandstæðingar sem hyggja á framboð fá að finna fyrir járnkrumlu Kremlar. Einn þeirra hlaut á dögunum dóm fyrir að sýna mynd af Alexei Navalny og fær ekki að bjóða sig fram. 19. júlí 2026 kl. 19:09INNLENDAR FRÉTTIR Landsbyggðin List í lýsi­s­tönk­um á Rauf­ar­höfn Gömlu lýsistankarnir á Raufarhöfn hafa öðlast nýtt líf. Framkvæmdir ganga hægt en örugglega og brátt verða tvö fullbúin rými til listsýninga. 19. júlí 2026 kl. 18:55ÍÞRÓTTIR Fótbolti Stór­sig­ur KR og svipt­ing­ar á botn­in­um Tveir leikir voru í Bestu deild karla í fótbolta í dag og tveir í Bestu deild kvenna. Hjá körlunum vann KR 5-0 sigur á Stjörnunni og hjá konunum lyftu tvö lið sér upp úr fallsæti. 19. júlí 2026 kl. 18:27INNLENDAR FRÉTTIR Brunavarnir Vonar að eld­ur­inn í Dram­men veki Ís­lend­inga til vit­und­ar Brunaverkfræðingur segir marga samverkandi þætti hafi valdið því hve mikið brann í Drammen í Noregi um helgina. Hann vonar að eldurinn veki Íslendinga og aðra til vitundar um brunavarnir í skógi vöxnu landi. 19. júlí 2026 kl. 18:23ÍÞRÓTTIR Golf Fugl á átj­ándu holu tryggði fyrsta risa­móts­tit­il­inn Nýsjálendingurinn Ryan Fox vann í dag Opna meistaramótið í golfi á Royal Birkdale vellinum á Englandi. Fox byrjaði ekki frábærlega í dag en fjórir fuglar á síðustu sex holunum, þar af á lokaholunni, færðu honum hans fyrsta titil á risamóti. 19. júlí 2026 kl. 17:28INNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Krútt­að yfir sig í Breið­holti Nýjustu íbúar í Breiðholti eru líklega þeir allra krúttlegustu. Þeim þykir langskemmtilegast að svipast um í skóginum og geta snúið höfðinu í hálfhring án vandræða. 19. júlí 2026 kl. 17:06ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Spán­verj­ar heims­meist­arar í annað sinn Spánn varð í kvöld heimsmeistari karla í fótbolta eftir 1-0 sigur á Argentínu í framlengdum úrslitaleik HM. Ferran Torres skoraði sigurmarkið á 106. mínútu. Þetta er annar heimsmeistaratitill Spánverja en þann fyrri unnu þeir árið 2010. Argentína missti Enzo Fernandez af velli með rautt spjald í uppbótartíma venjulegs leiktíma. Stjörnum prýdd lokahátíð var fyrir leik þar sem m.a. tróðu upp Robbie Williams, Post Maolone, Nicole Scherzinger og Laura Pausini. Í fyrsta sinn var haldin hálfleikssýning í úrslitaleik HM. Þar tróðu upp m.a. Madonna, Coldplay, Justin Bieber, Shakira og Prúðuleikararnir. SAMANTEKT 19. júlí 2026 kl. 16:17ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Loka­há­tíð­in og hálf­leiks­sýn­ing­in í beinni á rásum RÚV Það verður mikið um dýrðir í kvöld þegar HM í fótbolta lýkur með úrslitaleik Spánar og Argentínu. Stjörnum prýdd lokahátíð mótsins hefst kl. 17:35 í beinni útsendingu á RÚV 2 og hálfleikssýning í úrslitaleiknum á RÚV. 19. júlí 2026 kl. 15:20ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Drykkj­ar­hlé­in óvin­sæl en skila millj­arði doll­ara í aug­lýs­inga­tekj­ur FIFA

Share this article