Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Finnland á hraðri niðurleið eftir inngöngu í ESB

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 20.7.2026 | 8:00 Aðsend grein: Finnland á hraðri niðurleið eftir inngöngu í ESB Albert Þór Jónsson Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Athyglisvert er að fylgjast með Finnlandi, sem gekk í Evrópusambandið 1995 og tók upp evru 1. janúar 1999, reyna núna að komast út úr efnahagslegri stöðnun með atvinnuleysi í methæðum sem er núna yfir 10%. Atvinnuleysi meðal ungs fólks er yfir 30%. Opinberar skuldir ríkissjóðs Finnlands nálgast nú 90% af þjóðarframleiðslu og fyrirliggjandi er efnahagsleg innspýting að fjárhæð 1.305 ma.kr. til að koma í veg fyrir algjöra stöðnun. Finnland hefur einnig misst mörg viðskiptasambönd við önnur lönd vegna veru sinnar í Evrópusambandinu. Vöxtur hefur verið lítill vegna hækkandi aldurs þjóðarinnar og fækkunar tæknifyrirtækja, m.a. Nokia. Nú liggur fyrir að tryggja þarf fjármálaaðgerðir til að koma í veg fyrir langtímastöðnun í atvinnulífi Finnlands. Finnland er eina landið á Norðurlöndum sem er bæði með evru og í Evrópusambandinu. Robert Aliber, hagfræðiprófessor við Chicago-háskóla, sagði á ráðstefnu í Háskóla Íslands á árinu 2008 að upptöku á öðrum gjaldmiðli á Íslandi væri hægt að líkja við að miðaldra karlmaður reyndi að fara í fermingarjakkann sinn, en sveigjanleiki skiptir auðlindahagkerfi eins og hið íslenska miklu máli þótt mörg rök mæli með upptöku annars gjaldmiðils. Óhagstæð gengisþróun getur haft mikil áhrif á rekstrarafkomu fyrirtækja, t.a.m. fyrirtæki í sjávarútvegi og ferðaþjónustu. Íslenska krónan hefur komið að góðum notum fyrir íslenska auðlindahagkerfið sem þarf að upplifa miklar sveiflur sem oft einkenna slík hagkerfi. Vandamálið snýr miklu fremur að hagstjórn og skynsamlegum ríkisrekstri. Það væri tilbreyting að fá raunhæfar lausnir á þeim vandamálum frá ráðherrum ríkisstjórnarinnar sem hafa lofað hagræðingu í ríkisrekstri en þess í stað vaxa ríkisútgjöldin og skattar og gjöld hækka eins og peningar vaxi á trjánum. Breytingar á vöxtum og gengi gjaldmiðla hafa veruleg áhrif á rekstur fyrirtækja bæði á Íslandi og á alþjóðlegum mörkuðum. Vextir voru lágir á alþjóðlegum fjármálamörkuðum frá árinu 2008 og voru neikvæðir í einstaka landi en hafa hækkað umtalsvert á undanförnum þremur árum. Á Íslandi hafa verið háir vextir á sama tíma og vaxtamunur hefur verið á bilinu 4-5% í samanburði við önnur lönd, þótt gera megi ráð fyrir 2-3% náttúrulegum vaxtamun vegna smæðar íslenska hagkerfisins auk þess sem Ísland er auðlindadrifið hagkerfi sem þarf að takast á við sveiflur í verði auðlinda sinna á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Vandamálið snýr miklu fremur að hagstjórn og skynsamlegum ríkisrekstri. Sviss er ekki í Evrópusambandinu og notar ekki evru þrátt fyrir að landið sé umleikið löndum í Evrópusambandinu. Athyglisvert er að Ísland, Sviss og Noregur eru í þremur efstu sætum um mest lífsgæði í heiminum og eru ekki í Evrópusambandinu eða með evru sem gjaldmiðil, sem ætti að vera meðmæli með því að vera utan ESB. Hærri orkukostnaður, lægri rannsóknarkostnaður og lítið markaðssinnað háskólakerfi hefur leitt til þess að Evrópa er að dragast hratt aftur úr. Reglugerðavæðing hefur blásið út og viðeigandi fjármögnunarmöguleika við uppbyggingu hefur skort. Frá aldamótum hafa Bandaríkin vaxið um 68% á meðan Evrópa hefur vaxið um 40%. Framleiðnivöxtur í Evrópu var á pari við Bandaríkin fram til 1995 en frá þeim tíma hefur framleiðnivöxtur í Bandaríkjunum þrefaldast. ESB og Evrópa eru á hraðri niðurleið og taka öflug lönd eins og Finnland með sér í þá vegferð. Vonandi átta Íslendingar sig á þessum staðreyndum. Albert Þór Jónsson, viðskiptafræðingur (Cand. Oecon). Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Tíu særðir í árásum Úkraínumanna á Moskvu Myndskeið: Tilfinningarnar báru Messi ofurliði Grófur sveitastíll við Álftavatn Aðsend grein: Landið fýkur enn burt Aðsend grein: Finnland á hraðri niðurleið eftir inngöngu í ESB Umræðan Tími hvalveiða er liðinn Hvað gerum við þegar ríkisstjórn ákveður að fara á svig við stjórnarskrá Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hafnar orðum Þorgerðar Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Sérlausn vegna flugs framlengd til 2030 Hefði aldrei verið samþykkt í dag Mest lesið Í gær Í vikunni Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Hefði aldrei verið samþykkt í dag Bregðast við ummælum Þorgerðar Ég var kölluð tjaldakonan Mótmæltu veginum um árabil Aldagömul mynt fannst í Höfnum Hnífi beitt í alvarlegri líkamsárás Myndaði fyrstu loga Drammen-hamfaranna Leita að manneskju sem féll í Ölfusá Bjarni kallar eftir útskýringu „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Leita að manneskju sem féll í Ölfusá Bjarni kallar eftir útskýringu Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Arnar og Kári takast á í beinni í Spursmálum Sá ekki borgarísinn en taldi hann hættulegan Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Íslenska hitametið gæti fallið á morgun „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Nýjast á mbl.is » Tíu særðir í árásum Úkraínumanna á Moskvu Myndskeið: Tilfinningarnar báru Messi ofurliði Grófur sveitastíll við Álftavatn Aðsend grein: Landið fýkur enn burt Aðsend grein: Finnland á hraðri niðurleið eftir inngöngu í ESB Umræðan Tími hvalveiða er liðinn Hvað gerum við þegar ríkisstjórn ákveður að fara á svig við stjórnarskrá Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hefði aldrei verið samþykkt í dag Netverslun með áfengi í boði ráðherra Hafnar orðum Þorgerðar Segir utanríkisráðherra grafa undan eigin trúverðugleika Mest lesið Í gær Í vikunni Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Hefði aldrei verið samþykkt í dag Bregðast við ummælum Þorgerðar Ég var kölluð tjaldakonan Mótmæltu veginum um árabil Aldagömul mynt fannst í Höfnum Hnífi beitt í alvarlegri líkamsárás Myndaði fyrstu loga Drammen-hamfaranna Leita að manneskju sem féll í Ölfusá Bjarni kallar eftir útskýringu „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Leita að manneskju sem féll í Ölfusá Bjarni kallar eftir útskýringu Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Arnar og Kári takast á í beinni í Spursmálum Sá ekki borgarísinn en taldi hann hættulegan Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Íslenska hitametið gæti fallið á morgun „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal

Share this article