Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Á vaxtarbraut í Svíþjóð

Read Full Article →

Feel Good ehf., móðurfélag Háræktar ehf. og sænska ræktunarfélagsins VÄXA Odling, sem rækta grænmeti undir merkjum VAXA innanhúss með svokölluðum stýrðum landbúnaði (e. Controlled Enviornment Agriculture), tapaði 935 milljónum króna árið 2025, samanborið við 144 milljóna tap árið áður. Afkoma ársins litaðist verulega af uppbyggingu starfseminnar í Svíþjóð en stjórn félagsins telur að samstæðan sé að ganga inn í nýtt vaxtaskeið með hraðari uppbyggingu. Í ársreikningi kemur fram að árið 2025 hafi verið fyrsta heila árið sem 1. áfangi neðanjarðargróðrarstöðvar félagsins í Kumla, sem byggð hefur verið upp í um 400 þúsund fermetra yfirgefinni sandsteinsnámu, var í fullum rekstri. Ræktun í fyrsta hluta 2. áfanga stöðvarinnar hófst þá undir lok árs. Í byrjun árs 2026 var félagið með um 700 tonna árlega framleiðslugetu í um 12 þúsund fermetra gróðurhúsi en gert er ráð fyrir að nýr áfangi með um 2.000 tonna ræktunargetu verið tekinn í notkun árið 2027. Tekjur sænska félagsins fimmfölduðust milli ára og í janúar 2026 náðist sá áfangi að rekstur samstæðunnar í Svíþjóð var meiri en á Íslandi, bæði hvað varðar framleiðslugetu, fjölda starfsmanna og tekjur. Íslenska félagið velti 259 milljónum króna í fyrra en afkoman var neikvæð um 230 milljónir. Stjórn segist áfram líta á Ísland sem áhugaverðan markað fyrir bæði innri og ytri vöxt. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article