Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Netverslun með áfengi í boði ráðherra

Read Full Article →

Innlent | mbl | 18.7.2026 | 10:10 Netverslun með áfengi í boði ráðherra Kári Stefánsson gagnrýnir þingflokk Viðreisnar. Samsett mynd/Eggert Setja bókamerki Tengdar fréttir Vín í verslanir Áfengisnetverslanir komnar til að vera Heimilt að auglýsa áfengisnetverslanir Mun ekki láta lögreglu ráðast gegn netsölu áfengis Meirihluti þingmanna vill netverslun með áfengi 24 netverslanir með áfengi starfandi hér á landi » Fleiri tengdar fréttir Netverslun með áfengi hér á landi er í dag í boði ríkisstjórnarinnar og þá sérstaklega dómsmálaráðherra, þótt hún sé í trássi við lög. Þetta er meðal þess sem fram kemur í aðsendri grein Kára Stefánssonar, fyrrverandi forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, í Morgunblaðinu í dag þar sem hann gagnrýnir þingflokk Viðreisnar harðlega fyrir að hafa lagt fram frumvarp á síðasta þingi sem hefði heimilað netverslun með áfengi. Frétt af mbl.is Mun ekki láta lögreglu ráðast gegn netsölu áfengis Grímur steig út fyrir sérsvið sitt „Talsmaður frumvarpsins var Grímur Grímsson, fyrrverandi lögreglumaður, sem lét hafa það eftir sér í Morgunblaðinu að aukið aðgengi að áfengi yki ekki neyslu þess. Þessi staðhæfing úr munni lögreglumannsins farsæla er gott dæmi um það hvað gerist þegar menn stíga út fyrir sérsvið sitt og halda að brjóstvitið dugi eitt og sér,“ skrifar Kári. Hann segir að búið sé að sýna fram á það með góðum faraldsfræðirannsóknum að því meira sem aðgengið er, þeim mun meiri sé drykkjan. Vitnar hann í því samhengi í Mark Pearson, einn framkvæmdastjóra OECD, sem flutti erindi á Læknadögum hér á landi í janúar. Hann hafi sagt margt benda til þess að síðan netsala á áfengi hófst hér á landi hafi áfengisneysla aukist hér en minnkað í flestum OECD-ríkjum. Frétt af mbl.is Greiðara aðgengi auki ekki neyslu Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar. mbl.is/Karítas Fjölþættur vandi fylgir neyslu Þá fer Kári yfir þann fjölþætta vanda sem fylgt getur áfengi og nefnir auknar líkur á alvarlegum slysum, ofbeldisverkum, heimilisofbeldi, krabbameini og hærri blóðþrýstingi. „Verst af þeim sjúkdómum sem fylgja áfengisdrykkju er samt áfengissýkin sjálf, sem oftar en ekki leggur líf neytandans og fjölskyldu hans í rúst,“ skrifar hann og segir áfengi einn af þeim þáttum sem valda hvað mestu álagi á íslenskt heilbrigðiskerfi. Hann segir útlit vera fyrir að þingmenn, sem og samfélagið í heild sinni, hafi hálfpartinn gefist upp á að stemma stigu við ógninni. Kári segist ekki leggja til bann á sölu eða neyslu áfengis en það þurfi þó að koma í veg fyrir aukningu neyslunnar og jafnvel draga úr henni. Frétt af mbl.is 24 netverslanir með áfengi starfandi hér á landi Frétt af mbl.is Áfengisnetverslanir komnar til að vera Smáríkið er ein fjölda netverslana með áfengi hér á landi. mbl.is/sisi Áfengið afhent á örskotsstund Þá segir hann innlendar netsölur fyrir áfengi mun skaðlegri en erlendar. „Áfengi sem er pantað í gegnum netið frá útlöndum berst kaupanda viku seinna, en íslenskir netsalar koma því heim að dyrum á örskömmum tíma,“ skrifar hann. „Þess vegna er hættan af íslensku netsölunni margfalt meiri; hún gerir mönnum kleift að verða fórnarlömb augnabliks fíknar.“ Hann hneykslast á orðum Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur sem sagst hefur ekki ætla að hlutast til um netsölu á áfengi innanlands. „Ef lögreglan er ekki að sinna skyldum sínum ber ráðherra að beita húsbóndavaldi sínu. Netverslun með áfengi er þess vegna eins og stendur í boði ríkisstjórnar og þá sérstaklega dómsmálaráðherra þótt hún sé í trássi við lög,“ skrifar Kári Stefánsson að lokum. Frétt af mbl.is Óreiða í áfengislögum: „Löggjafinn er sofandi“ Tengdar fréttir Vín í verslanir Áfengisnetverslanir komnar til að vera Heimilt að auglýsa áfengisnetverslanir Mun ekki láta lögreglu ráðast gegn netsölu áfengis Meirihluti þingmanna vill netverslun með áfengi 24 netverslanir með áfengi starfandi hér á landi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Trump æfur vegna skógarelda: „Vísvitandi vanræksla“ Myndskeið: Þyrla berst við eldinn í Drammen Netverslun með áfengi í boði ráðherra Fregnir af tökum slökkviliðs á eldinum ýktar Tuchel fær stuðning frá goðsögninni Umræðan Land, þjóð og tunga á þjóðveldisöld Barnaleg nálgun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sparkvöllurinn rís ekki í bili Hafnar orðum Þorgerðar Stúlkan er fundin heil á húfi Ljótt að feta í sama farveg Mest lesið Í gær Í vikunni Hafnar orðum Þorgerðar Sögulegt hús í nýjum búning Aldargömul umræða: „Við þurfum bara jákvæðni“ Vill skoða endurgerð gatnamóta Ný móttökumiðstöð Terra opnuð Einn stór turn í stað þriggja minni Ekki eitthvað úrhrak með hræðilegt leyndarmál Áfram unnið að varanlegri lausn Yfirfullt á tjaldsvæðinu á Hömrum Ekki hægt að breyta skráningunni Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Biðraðir á nýrri brú Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Yfirfullt á tjaldsvæðinu á Hömrum Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Nýjast á mbl.is » Trump æfur vegna skógarelda: „Vísvitandi vanræksla“ Myndskeið: Þyrla berst við eldinn í Drammen Netverslun með áfengi í boði ráðherra Fregnir af tökum slökkviliðs á eldinum ýktar Tuchel fær stuðning frá goðsögninni Umræðan Land, þjóð og tunga á þjóðveldisöld Barnaleg nálgun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Staðan verri áður en skýrslan var unnin Hafnar orðum Þorgerðar Sérlausn vegna flugs framlengd til 2030 Mest lesið Í gær Í vikunni Hafnar orðum Þorgerðar Sögulegt hús í nýjum búning Aldargömul umræða: „Við þurfum bara jákvæðni“ Vill skoða endurgerð gatnamóta Ný móttökumiðstöð Terra opnuð Einn stór turn í stað þriggja minni Ekki eitthvað úrhrak með hræðilegt leyndarmál Áfram unnið að varanlegri lausn Yfirfullt á tjaldsvæðinu á Hömrum Ekki hægt að breyta skráningunni Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Biðraðir á nýrri brú Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Yfirfullt á tjaldsvæðinu á Hömrum Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“

Share this article