Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Í dag: Leikurinn sem enginn vill spila

Read Full Article →

Klukkan 21:00 í kvöld leika Frakkland og England um bronsið á HM karla í fótbolta. Frakkar töpuðu fyrir Spánverjum 2-0 í undanúrslitum og Englendingar 2-1 fyrir Argentínumönnum. Dagskrá kvöldsins á RÚV: 20:30 Stofan 21:00 Frakkland - England 23:05 HM kvöld Er alltaf spilað um þriðja sætið? Leikið hefur verið um þriðja sæti á öllum heimsmeistaramótunum að því fyrsta undanskildu, 1930 í Úrúgvæ. Það er nokkuð misjafnt hvort spilað sé um bronsverðlaun á stórmótum í fótbolta; því var hætt á Evrópumótinu 1984 og Asíumótinu 2019 en er enn gert á Afríkumótinu sem og Suður-Ameríkumótinu. Í álfukeppni Norður-Ameríku, Mið-Ameríku og Karíbahafseyja var þessu hætt 2005 en reyndar gert aftur 2015 í eitt skipti í viðbót og svo ekki meir síðan. Eyjaálfumótið hefur yfirleitt verið með leik um þriðja sætið, því var þó sleppt 2016 en tekið aftur upp 2024. Frakkar eru komnir í bronsleikinn í fjórða skiptið í sögunni, 1958 hafði liðið betur gegn Vestur-Þýskalandi, tapaði fyrir Póllandi 1982 en vann svo Belgíu fjórum árum síðar. Frakkar hafa alls sex sinnum unnið til verðlauna á HM, gull tvisvar, silfur tvisvar og brons tvisvar. Englendingar leika í dag í þriðja sinn um bronsið en hafa aldrei unnið. 1990 töpuðu þeir fyrir Ítölum og 2018 fyrir Belgum. Einu verðlaun þeirra á HM komu 1966, þá urðu Englendingar heimsmeistarar. Þýskaland er sú þjóð sem oftast hefur leikið um þriðja sætið, alls fimm sinnum, og sem oftast hefur unnið bronsið eða í fjögur skipti. Þjóðverjar hafa einnig spilað flesta úrslitaleiki eða átta talsins en Brasilíumenn eiga þó fleiri heimsmeitsaratitla, fimm gegn fjórum Þjóðverja.

Share this article