Auðkýfingurinn Tilman Fertitta, sem gegnir embætti sendiherra Bandaríkjanna á Ítalíu, hefur vakið upp deilur í tveggja mánaða ferð sinni um ítalska strandbæi á einkasnekkju sinni Boardwalk, sem samkvæmt Financial Times er metin á 450 milljónir dala. Ferðin er ætluð til að fagna 250 ára afmæli sjálfstæðis Bandaríkjanna og undirstrika tengsl Bandaríkjanna og Ítalíu. Snekkja Fertittas, Boardwalk, kemur við í 13 þekktum hafnarborgum, þar á meðal Palermó, Feneyjum, Genúa og Tríeste. Fertitta, sem á meðal annars körfuboltaliðið Houston Rockets, Golden Nugget spilavítin og veitingakeðjuna Landry’s, býður stjórnmálamönnum, viðskiptaleiðtogum og herforingjum um borð. Snekkjan er 117 metra löng og er búin sundlaug, minigolfvelli og þyrlupöllum. Bandaríska sendiráðið í Róm sagði áður en ferðin hófst að Fertitta greiddi sjálfur kostnaðinn við siglinguna. Gagnrýnin snýst einkum um umfangsmiklar öryggisráðstafanir sem ítalska ríkið þarf að standa straum af. Ítalska strandgæslan, hafnaryfirvöld og lögregla hafa sinnt sérstöku eftirliti á sjó, með bátum og þyrlum, til að vernda sendiherrann og snekkjuna. Luana Zanella, þingkona vinstrihreyfingarinnar, gagnrýndi ferðina á þingi og kallaði hana fremur „diplómatískt frí“ en opinbert erindi. Hún sagði óviðeigandi að sýna slíkt ríkidæmi á kostnað ítalsks ríkis sem glími við fjárskort. Valentino Valentini, aðstoðarráðherra atvinnu- og iðnaðarmála, gaf ekki upp kostnaðinn en sagði Ítalíu skuldbundna samkvæmt Vínarsamningnum til að tryggja öryggi erlendra sendiherra. Fertitta hefði verið metinn í mikilli áhættu og ætti rétt á hæsta stigi verndar. Snekkjan nyti einnig verndar þar sem hún væri tímabundið heimili hans, farartæki og vettvangur opinberra funda. Fertitta og bandaríska sendiráðið hafa ekki svarað gagnrýninni opinberlega. Boardwalk kemur til Feneyja í dag, þar sem búist er við mótmælum heimamanna. Ítalskur embættismaður í utanríkisráðuneytinu sagði ferðina þó hafa orðið að vináttu- og skemmtisiglingu sem styrkti velvilja sendiherrans í garð Ítalíu. Antonio Tajani utanríkisráðherra sagði Fertitta gegna mikilvægu hlutverki í samskiptum ríkisstjórnar Giorgiu Meloni og Trump-stjórnarinnar.