Innlent | Morgunblaðið | 17.7.2026 | 13:20 Umferðaröryggi ávallt í fyrirrúmi Framkvæmdastjóri FÍB telur borðleggjandi að prófa hækkun hámarkshraða á Reykjanesbrautinni, af því megi læra fyrir framtíðina. mbl.is/Árni Sæberg Markús Ívar Halldórsson [email protected] Setja bókamerki Það er mat Vegagerðarinnar að hækkun hámarkshraða upp í 110 km/klst. á vegköflum landsins sé ekki eins einföld eða ódýr og skilja má í nýútgefinni skýrslu Viðskiptaráðs. Framkvæmdirnar séu þó heldur betur mögulegar. Viðskiptaráð gaf í gær út skýrslu þar sem fram koma tillögur að hámörkun ábata um stofnvegi út frá höfuðborgarsvæðinu, en umferð um vegakerfið hefur vaxið langt umfram uppbyggingu þeirra á síðustu árum. Frétt af mbl.is Spara mætti milljarða Á forgangslista Vegagerðarinnar Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs hjá Vegagerðinni, segir aðskilnað akstursstefna og uppbyggingu á vegum út frá höfuðborgarsvæðinu, eins og skýrsla Viðskiptaráðs tekur fyrir, vera á forgangslista Vegagerðarinnar og hafa verið í undirbúningi undanfarin ár. Vert sé að hafa í huga að aðgerðir eins og hækkun hámarkshraða feli aldrei í sér engan tilkostnað. „Auðvitað er samfélagslegur ávinningur í því að fækka umferðarslysum og stytta ferðatíma en ef við tökum Reykjanesbrautina sem dæmi, þar sem búið er að byggja veginn sem slíkan, er umhverfi vegarins og annað slíkt kannski ekki tilbúið að taka við 110 km/klst. hámarkshraða,“ segir Guðmundur. Almennt séð þurfi öryggissvæði í kringum vegi með 110 km/klst. hámarkshraða að vera að lágmarki 9-12 metrar utan vegar. Á mörgum köflum við Reykjanesbrautina segir Guðmundur öryggisbilið einungis vera um 5 metrar. Þá þurfi að setja upp vegrið eða lagfæra umhverfi vegarins á annan hátt til þess að gera hann hæfan fyrir hærri hámarkshraða. Einnig minnist Guðmundur á að með hækkun hámarkshraða þyrfti að banna óvörðum vegfarendum, svo sem hjólreiðafólki, að fara um veginn og koma þyrfti því fyrir hjólreiðastígum eða öðru slíku. Hann segist þó skilja að tilkostnaður við þær tillögur sem Viðskiptaráð gaf út fyrir Reykjanesbrautina sé ekki mikill miðað við uppbyggingu nýrra vega. Reykjanesbrautin sjálf hafi verið hugsuð og taki mið af því að þar gæti verið hærri hámarkshraði. Tengingar og gatnamót á veginum séu einnig þannig úr garði gerð að hærri hraði sé mögulegur. Borgarnesleiðin 22 milljarðar Í skýrslu Viðskiptaráðs er tvöföldun vegkaflans frá Hvalfjarðargöngum til Borgarness ásamt hækkun hámarkshraða þar upp í 110 km/klst. talin vera sú einstaka fjárfesting sem í sér fæli mestan ábata. Guðmundur segir Vegagerðina hafa unnið að frumhönnun og skipulagsmálum á þeim kafla undanfarin ár en samkvæmt nýsamþykktri samgönguáætlun ættu framkvæmdir þar að geta hafist eftir árið 2030. „Sú framkvæmd að aðskilja akstursstefnu þar er sett fram að kosti 22 milljarða og þá ekki með mislægum gatnamótum endilega,“ segir Guðmundur. Ef farið væri fram á hærri hraða á þeim vegi yrði „væntanlega fækkað tengingum enn frekar við veginn og sett mislæg gatnamót líka“. Á vegum með hærri hámarkshraða segir Guðmundur Vegagerðina ekki heimila til dæmis hringtorg, hann nefnir vegamótin í Ölfusinu og uppi á Hellisheiði og segir slík vegamót „alls ekki hæf fyrir 110 kílómetra hraða“. Hann segir jafnvel umræðu til staðar um það hvort 90 kílómetra hraði sé almennt í lagi á vegköflum þar. „Ef menn ákveða að byggja eigi veg með mislægum vegamótum og 110 kílómetra hámarkshraða er það minnsta mál og þegar við erum með takmarkaða fjármuni til að spila með reynum við að nýta þá á sem hagkvæmastan hátt.“ Guðmundur segir framkvæmdir Vegagerðarinnar ávallt unnar með það í huga að rými sé til fyrir framtíðarúrbætur, hvort sem það séu gatnamót eða aukaakreinar. Hærri hámarkshraði talinn eðlilegt markmið „Þessi úttekt er í anda þess sem við höfum viljað sjá til margra ára og áratuga,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Hann deilir þeirri skoðun að byggja eigi vegi sem staðið geti undir hærri hámarkshraða, með þeim fyrirvara að þeir uppfylli allar öryggiskröfur. Hann telur upplagt að byrja á hækkun hámarkshraða á Reykjanesbrautinni og með því sé hægt að læra hvað þurfi að hafa í huga. Framkvæmdir á stofnvegakerfi landsins séu spurning um forgangsröðun. „Pólitíkin kippir oft í ýmsa spotta þannig að þetta nær ekki endilega fram með þeim hætti sem væri þjóðhagslega jákvæðastur.“ Með öruggri uppbyggingu sé eðlilegt að miða við hærri hámarkshraða líkt og annars staðar á Norðurlöndum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Umferðaröryggi ávallt í fyrirrúmi Kjaftæði um matvæla- og húsnæðisverð FH-ingurinn ungi lánaður til Njarðvíkur Vegavinna í dag og í byrjun næstu viku Enn ein vonbrigðin hjá Englandi Umræðan Það þarf að taka slaginn fyrir Ísland Samkeppni og lífskjör Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Staðan verri áður en skýrslan var unnin Nei/Já: hvað á að leggja áherslu á Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Ár frá gosi og hrinan virðist að lokum komin Mest lesið Í gær Í vikunni Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Biðraðir á nýrri brú Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Ljótt að feta í sama farveg Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Spara mætti milljarða Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Stúlkan er fundin heil á húfi „Það var ekkert að hjólinu“ Hundruðum eldri nemenda vísað frá Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Almar nýr formaður Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Stefnir í mesta hita ársins um helgina Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Nýjast á mbl.is » Umferðaröryggi ávallt í fyrirrúmi Kjaftæði um matvæla- og húsnæðisverð FH-ingurinn ungi lánaður til Njarðvíkur Vegavinna í dag og í byrjun næstu viku Enn ein vonbrigðin hjá Englandi Umræðan Það þarf að taka slaginn fyrir Ísland Samkeppni og lífskjör Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Ár frá gosi og hrinan virðist að lokum komin Mikill verðmunur milli sundlauga Mest lesið Í gær Í vikunni Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Biðraðir á nýrri brú Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Ljótt að feta í sama farveg Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Spara mætti milljarða Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Stúlkan er fundin heil á húfi „Það var ekkert að hjólinu“ Hundruðum eldri nemenda vísað frá Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Almar nýr formaður Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Stefnir í mesta hita ársins um helgina Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“