Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fram­lengja ETS-undanþágur fyrir flug­ um þrjú ár

Read Full Article →

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar að leggja til að undanþága Íslands frá ETS kerfinu fyrir losunarheimildir í flugi verði framlengd um þrjú ár. Ekki tókst þó að semja um undanþágur fyrir skipaflutninga til Íslands í þessari lotu. Ríkiútvarpið greinir frá. Íslensk stjórnvöld sömdu árið 2023 um tímabundna sérlausn á grunni landfræðilegrar legu sem hefði að óbreyttu runnið út í lok árs 2026. Hún fól í sér að Íslandi var veitt heimild til að úthluta gjaldfrjálsum losunarheimildum fyrir flug milli Íslands og EES svæðisins, Bretlands og Sviss. „Ég tel að þetta sé mikilvægt og jákvætt skref,“ hefur RÚV eftir Wopke Hoekstra, yfirmanni umhverfismála í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, um ákvörðunina að framlengja undanþáguna. „Við höldum áfram með núverandi undanþágu, ekki aðeins í eitt ár, heldur í þrjú ár, og það sendir að mínu mati sterk skilaboð um hversu mikilvægt þetta samstarf er fyrir okkur.“ Sjá einnig „Tækifæri ís­lenskra stjórn­valda er núna“ Jóhann Páll Jóhannson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherara, sagði í viðtali við Viðskiptablaðið í byrjun árs að ríkisstjórnin væri að leita allra leiða til að framlengja undanþágur og rökstyðja kröfur Íslands út frá heildarlógík kerfisins. Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar er hluti af viðamikilli endurskoðun á ETS kerfinu sem kynnt verður í Brussel í dag. Meðal annars er lagt til að iðnaðargreinar og önnur starfsemi sem fellur undir ETS fái rýmri tíma og meira svigrúm til að minnka útblástur. Áréttað er að endurskoðun Evrópusambandsins á ETS kerfinu sé ekki endanleg ákvörðun um breytingar á því, heldur tillaga. Hún verði nú tekin til skoðunar hjá öllum hagsmunahópum og aðildarríkjum ESB.

Share this article