Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir 22. febrúar 2026 kl. 22:39INNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Hringvegurinn við Reynisfjall opnaður Ásrún Aldís Hreinsdóttir Umferð um hringveginn í Mýrdal, norðan við Reynisfjall, hefur verið opnaður. Flutningabíll sat þar fastur vegna bilunar. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er enn vetrarfærð á veginum. Hann var ruddur til klukkan 22, um klukkustund lengur en venja er. Vegna veðurs má búast við að færð spillist og vegurinn geti orðið ófær. Víða eru hálkublettir á Suðurströndinni, krapi og skafrenningur er við Reynisfjall. Mynd aðsend. Fyrir 21 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Einn hermaður með íslenskan ríkisborgararétt í ísraelska hernum Einn hermaður í ísraelska hernum er með bæði íslenskan og ísraelskan ríkisborgararétt samkvæmt svörum frá talsmönnum ísraelska hersins. Tugþúsundir hermanna ísraelska hersins bera að minnsta tvö ríkisföng. Fyrir 37 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Miðflokkurinn hakkaður Framkvæmdastjóri Miðflokksins segir svokallaða „botta“ eða stafræn vélmenni hafa ráðist á heimasíðu flokksins. Unnið er að viðgerð og standa vonir til að síðan verði komin í samt lag í kvöld. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Joey Christ klárar þríleikinn Rapparinn Jóhann Kristófer Stefánsson eða Joey Christ sendi þann 31. október frá sér plötuna Joey 3. Það er síðasta platan í þríleik sem hófst þegar hann var að stíga sín fyrstu skref í bransanum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Skjöl um fljúgandi furðuhluti reynast vonbrigði Sævar Helgi Bragason vísindamiðlari segir að birting áður leynilegra skjala um fljúgandi furðuhluti hafi alltaf reynst óskaplega mikil vonbrigði. Bandaríkjaforseti hefur skipað alríkisstofnunum að birta gögn um fljúgandi fyrirbæri og geimverur. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Bílnúmeralesarar breyta engu fyrir 75% íbúa Bílnúmeralesarar við móttökustöðvar Sorputeknir verða teknir í notkun á höfuðborgarsvæðinu 1. mars. Þeim er ætlað að rukka viðskiptavini sem ekki hafa greitt rétt í sjóði sveitarfélaga. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Veðurviðvörun hjá yfir 40 milljónum manna Snjóbylur sem gengur nú yfir norðausturhluta Bandaríkjanna hefur valdið samgöngutruflunum og rafmagnsleysi. Jafnfallinn snjór er allt að 60 cm og minnst fimm ríki hafa orðið fyrir barðinu á veðrinu. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Hafró metur hversu mikið laxeldi er óhætt að stunda í Mjóafirði Hafrannsóknastofnun keyrir nú líkön til að meta hve mikið laxeldi sé óhætt að stunda í Mjóafirði. Hægt var að nýta eldri straumrannsóknir meðal annars. Stefnt er að því að bjóða út eldissvæði í firðinum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kjartan Vídó vill á lista hjá Sjálfstæðismönnum Brynjólfur Þór Guðmundsson Kjartan Vídó Ólafsson sækist eftir þriðja til fjórða sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum fyrir kosningar í vor. Kosið verður í efstu sæti listans í prófkjöri 13. mars. Kjartan Vídó Ólafsson Aðsend Kjartan hefur meðal annars starfað sem markaðsstjóri Handknattleikssambands Íslands og er meðal stofnenda handverksbrugghússins The Brothers Brewery. Hann leggur í framboðstilkynningu áherslu á að vinna að áframhaldandi uppbyggingu bæjarins, styrkja grunnþjónustu, styðja við atvinnulífið og standa vörð um hag íbúa á öllum aldri. Kjartan segir góð og heiðarleg stjórnmál byggjast á nálægð, trausti og sterkri liðsheild. Hann vilji vera sýnilegur og aðgengilegur. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Ekki komið til tals að aflýsa leiknum - KSÍ heldur sínu striki Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er statt í Mexíkó og mætir heimamönnum að óbreyttu í vináttuleik í Querétaro aðfararnótt fimmtudags. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Kjúklingur innkallaður vegna salmonellu Fréttastofa RÚV Matfugl hefur innkallað eina framleiðslulotu fyrirtækisins af ferskum heilum kjúklingi sem framleiddur er fyrir Bónus. Grunur leikur á að salmonella finnist í þessari framleiðslulotu (nr. 011-26-03-5-64) og varar Matvælastofnun því við neyslu á henni. Fólk sem hefur keypt kjúklinga í þessari lotu á ekki að neyta þeirra heldur farga þeim eða skila til viðkomandi verslunar. Eldaðir heilir kjúklingar. Mynd úr safni. Shutterstock Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Áætla að yfir 32 hektarar hafi brunnið Áætlað er að rúmlega 32 hektarar hafi brunnið í gróðureldum við Elliðavatn í gær. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hvetur fólk til að vera á varðbergi vegna gróðurelda. Í annarri vindátt hefðu vatnsból höfuðborgarbúa getað verið í hættu. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Mannréttindi „Mannréttindasáttmálinn er ekki matseðill“ Ráðist er að mannréttindum um allan heim. Þetta sagði Antonio Guterres framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna við upphaf árlegrar ráðstefnu Mannréttindaráðs stofnunarinnar í morgun. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Frá NASA á Baccalá Bar á Hauganesi Bandarísku hjónin Dominique og Doug fluttu fyrir rúmu ári frá Tennessee til Hauganess þar sem þau reka veitingastaðinn Baccalá Bar. Þau reru á alveg ný mið því Doug var áður verkfræðingur hjá NASA og Dominique kennari og listamaður. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Einn mannanna af Bakkakoti vill í framboð fyrir Pírata Brynjólfur Þór Guðmundsson Unnar Þór Sæmundsson, framkvæmdastjóri og laganemi, sækist eftir öðru til fimmta sæti á lista Pírata fyrir borgarstjórnarkosningar. Unnar er einn þeirra sem sögðu í Kveik að þeir hefðu verið beittir líkamlegu og andlegu ofbeldi þegar þeir voru vistaðir á Bakkakoti á Suðurlandi fram til ársins 2002. Unnar segist hafa ákveðið í ársbyrjun að gefa kost á sér í prófkjöri Pírata. Hann segist þá hafa verið ákveðinn í að mæta ekki í Kveik og segja ekki sögu sína þar. Honum hafi þótt það ósamræmanlegt því að ætla í stjórnmál til að breyta barnaverndarkerfinu. Hann hafi síðar ákveðið að láta Bakkakot ekki taka meira frá sér og því sagt sögu sína. Unnar Þór Sæmundsson. Kveikur / Ingvar Haukur Guðmundsson Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Óveður í New York hefur áhrif á 1.700 farþega Icelandair Hugrún Hannesdóttir Diego 1.700 manns eiga flugmiða í ferðir Icelandair sem var aflýst vegna óveðurs í New York í Bandaríkjunum í gær og í dag. Tveimur ferðum til New York var aflýst í gær og í dag aflýsti Icelandair tveimur ferðum til New York og einni til Boston. Félagið stefnir á að bæta við flugi á morgun, segir Guðni Sigurðsson upplýsingafulltrúi Icelandair. Beðið sé eftir staðfestingu frá Bandaríkjunum. Guðni er vongóður um að ekki þurfi að aflýsa fleiri ferðum vegna óveðursins. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 VG og Vor til vinstri verða Vinstrið Sameiginlegt framboð Vinstri grænna og Vors til vinstri fyrir borgarstjórnarkosningar hefur fengið formlegt nafn: Vinstrið. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Mexíkó Loka vegum með brennandi bílum Stuðningsmenn eiturlyfjasamtakanna Ný kynslóð Jalisco í Mexíkó hefndi fyrir dauða leiðtoga síns meðal annars með því að kveikja í bílum og loka vegum með þeim. Óeirðirnar hafa borist um landið. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Skaginn lækkar í verði Brynjólfur Þór Guðmundsson Hlutabréfaverð í Skaganum hefur lækkað um rúmlega fimm prósent í morgun. Þetta gerist í fyrstu viðskiptum eftir að tilkynnt var að samrunaviðræðum Skagans og Íslandsbanka hefði verið hætt. Hlutabréfaverð í Íslandsbanka hefur aftur á móti hækkað lítillega. Skaginn á VÍS, Fossa og Íslensk verðbréf. Viðræður um samruna hófust í október. Stjórnendur fyrirtækjanna voru ósammála um verðmat þeirra ef af samrunanum yrði. Hlutabréfaverð Íslandsbanka stefndi í öfuga átt við hlutabréfaverð Skagans í morgun. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Þrír drepnir í árásum Rússa í nótt Árásir Rússa víða um Úkraínu urðu þremur að bana og fleiri særðust. Þetta fylgir umfangsmiklum árásum í gær nærri höfuðborginni Kyiv. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Í síbrotagæslu eftir fjölda afbrota um helgina Brynjólfur Þór Guðmundsson Lögreglan á Suðurnesjum fékk karlmann úrskurðaðan í síbrotagæslu eftir fjölda afbrota um helgina. Lögreglan greinir frá því á vef sínum að hún hafi haft afskipti af manninum tvo daga í röð um helgina. Hann er grunaður um nytjastuld, akstur undir áhrifum og fjölmörg önnur umferðarlagabrot. Lögregla þekkir vel til mannsins enda hefur hann ítrekað komið við sögu hennar. Hún taldi síbrotagæslu því nauðsynlega til að stöðva brotahrinu hans. Lögreglubíll á ferð í Keflavík. Mynd úr safni. RÚV / Bragi Valgeirsson. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Varað við staðbundinni frostrigningu Brynjólfur Þór Guðmundsson Veðurfræðingur Vegagerðarinnar biður fólk að hafa varann á sér nú þegar hlánar rólega með úrkomu eftir kuldatíð að undanförnu. Hætt er við staðbundinni frostrigningu við þessar aðstæður. Þetta á sérstaklega við á Vestfjörðum í dag, meðal annars í Djúpinu, vestantil á Norðurlandi í nótt og ekki hvað síst á Héraði í fyrramálið. Svona var útlitið á gangstéttum á höfuðborgarsvæðinu eftir frostrigningu. Rúv / Haukur Holm Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Myrti móður sína og dvaldi í íbúð með líkinu næstu mánuði á eftir Maður notaði samkomutakmarkanir í covid til að fela morðið á móður sinni fyrir nágrönnum sínum. Rannsókn leiddi í ljós að hann dvaldi í íbúð móður sinnar í tvo mánuði eftir morðið. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Þarf lítið til að menga neysluvatn höfuðborgarsvæðisins Vatnsból höfuðborgarbúa hefðu getað verið í hættu af völdum gróðureldanna við Elliðavatn í gær hefði vindátt verið önnur. Forstöðumaður vatnsmiðla hjá Veitum segir að huga þurfi betur að forvörnum við vatnsbólin og takmarka umferð um Heiðmörk. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Mexíkó Gripu til stórfelldra hefndaraðgerða eftir fall glæpaforingja Kveikt var í bílum víða og skemmdir unnar á minnst 20 bankaútibúum þ