Innlent | mbl | 16.7.2026 | 15:34 Skynsamlegt hjá Bandaríkjaþingi: Íslendingar á röngum tíma Rolex klukkan í Columbus í Ohio fylki í Bandaríkjunum. Dr. Erla Björnsdóttir, sálfræðingur og framkvæmdastjóri Betri svefns. Samsett mynd/AFP/María Markús Ívar Halldórsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Breytingar á klukku Bandaríkjaþing fetar í fótspor Íslendinga Grænlendingar skipta um tímabelti Sumartími í næstsíðasta sinn Örlög klukkunnar ráðast í mars Svandís vill seinka klukkunni » Fleiri tengdar fréttir Seinkun klukkunnar á Íslandi um eina klukkustund myndi koma öllu landinu til góðs. Fólk myndi vakna oftar í birtu en morgunbirtan er einmitt mikilvægasti þátturinn í stillingu líkamsklukkunnar samkvæmt framkvæmdastjóra Betri svefns. Greint var frá því í gær að fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefði samþykkt að gera sumartíma varanlegan með 308 atkvæðum gegn 117. Þannig verði hætt að færa klukkuna um klukkustund tvisvar á ári og notast við þann tíma sem hingað til hefur verið notaður frá mars fram til nóvember. Þannig eru Bandaríkjamenn að feta í fótspor Íslendinga en árið 1968 var klukkuhringl afnumið hér á landi. Þá var ákveðið að halda klukkunni í UTC-0 en mikil umræða hefur verið síðustu ár um að ákjósanlegra hefði verið að halda í UTC-1. Það myndi þýða seinkun íslensku klukkunnar um eina klukkustund. Frétt af mbl.is Bandaríkjaþing fetar í fótspor Íslendinga Skynsamlegir Bandaríkjamenn Dr. Erla Björnsdóttir, sálfræðingur og framkvæmdastjóri Betri svefns, telur það mjög skynsamlegt af Bandaríkjamönnum að hætta klukkuhringlinu. „Rannsóknir sýna mjög skýrt, sérstaklega þegar klukkan er færð fram á vorin, að þá sést tímabundin aukning í umferðarslysum, hjartaáföllum, veikindum og fleiru sem tengja má við styttri svefn og breytingar á líkamsklukku,“ segir Erla í samtali við mbl.is Það sé ekki hollt fyrir okkur mannfólkið að flakka með tímann og þess vegna sé þetta góð ákvörðun hjá Bandaríkjaþingi. Erla segir það ljóst að þrátt fyrir að einstaklingurinn finni ekki endilega áhrif klukkuhringls séu áhrifin augljós þegar horft er til samfélagsins sem heildar. „Þá kemur bara augljóslega í ljós að fólk er að sofa styttra og það hefur þessi áhrif sem sjá má í rannsóknum.“ Ekki réttur tími miðað við gang sólar Erla segist fylgjandi því að leiðrétta klukkuna hér á landi, tíminn sem Íslendingar hafi fest sig við árið 1968 sé „í raun og veru ekki réttur tími miðað við gang sólar“. Erla viðurkennir að breyting klukkunnar hér á landi um 1 klukkutíma yrði þó engin töfralausn. „Við myndum áfram vera með öfga í birtu en við myndum hins vegar stytta þessa dimmu morgna mjög mikið. Við myndum stytta það að vakna í myrkri í um það bil sex vikur þannig að skammdegið yrði styttra og við næðum því að vera á réttum tíma.“ Hún bendir einnig á að þrátt fyrir stærð Íslands sé munur á því hvenær sólin rís eftir landshlutum. Þá er mesti munurinn á suðvesturhorninu og fyrir austan. „Að gera eina breytingu um klukkutíma myndi þjóna öllu landinu mjög vel og þá værum við að vakna oftar í birtu en það er morgunbirtan sem er mikilvægasta merki líkamsklukkunnar til að stilla sig eftir,“ segir Erla. Tengdar fréttir Breytingar á klukku Bandaríkjaþing fetar í fótspor Íslendinga Grænlendingar skipta um tímabelti Sumartími í næstsíðasta sinn Örlög klukkunnar ráðast í mars Svandís vill seinka klukkunni » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Inga tók lagið á Skötumessu Glasner fær samlanda sinn í Skírisskóg Sparkvöllurinn rís ekki í bili Skynsamlegt hjá Bandaríkjaþingi: Íslendingar á röngum tíma Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Umræðan Sumir, hinir og aðrir Fiskveiðar og fullveldi í Evrópusambandinu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Farþegi stakk leigubílstjóra Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Heimilt að auglýsa áfengisnetverslanir Nei/Já: hvað á að leggja áherslu á Mest lesið Í gær Í vikunni Spara mætti milljarða Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Hundruðum eldri nemenda vísað frá Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST „Það var ekkert að hjólinu“ Almar nýr formaður „Hell week“ á Seyðisfirði Innkalla Vogaídýfu Valgeir Örn ráðinn frá RÚV til Landsnets Ár frá gosi og hrinan virðist að lokum komin Hitamet sumarsins fallið Einn fær 552,5 milljónir Komust hjá aflífun hunds Drungi en bjart fram undan Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Getur ekki orða bundist yfir auglýsingum á RÚV Ólafur og Dorrit sóttu athöfn með Mónakófursta Varað við hvössum vindhviðum á morgun „Sumarið er loksins komið“ Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Býst ekki við því að hótelið rísi Einn fær 552,5 milljónir Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Inga tók lagið á Skötumessu Glasner fær samlanda sinn í Skírisskóg Sparkvöllurinn rís ekki í bili Skynsamlegt hjá Bandaríkjaþingi: Íslendingar á röngum tíma Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Umræðan Sumir, hinir og aðrir Fiskveiðar og fullveldi í Evrópusambandinu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Heimilt að auglýsa áfengisnetverslanir Sparkvöllurinn rís ekki í bili Viðvarandi vandamál í áratugi Nei/Já: hvað á að leggja áherslu á Mest lesið Í gær Í vikunni Spara mætti milljarða Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Hundruðum eldri nemenda vísað frá Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST „Það var ekkert að hjólinu“ Almar nýr formaður „Hell week“ á Seyðisfirði Innkalla Vogaídýfu Valgeir Örn ráðinn frá RÚV til Landsnets Ár frá gosi og hrinan virðist að lokum komin Hitamet sumarsins fallið Einn fær 552,5 milljónir Komust hjá aflífun hunds Drungi en bjart fram undan Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Getur ekki orða bundist yfir auglýsingum á RÚV Ólafur og Dorrit sóttu athöfn með Mónakófursta Varað við hvössum vindhviðum á morgun „Sumarið er loksins komið“ Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Býst ekki við því að hótelið rísi Einn fær 552,5 milljónir