Daníel Þór Magnússon tekur við sem forstöðumaður fjárfestinga, greininga og viðskiptaþróunar hjá Reitum. Hann mun leiða fjölbreytt verkefni sem styðja við metnaðarfull vaxtaráform félagsins, þar á meðal fjárfestingar í innri og ytri vexti, viðskiptaþróun og greiningar á fasteignamarkaði og þróunar- og uppbyggingartækifærum. Þetta segir í fréttatilkynningu félagsins. Daníel býr yfir áratugalangri reynslu á sviði eigna- og sjóðstýringar með sérþekkingu á fasteignaþróun, fasteignafjármögnun, virðismati fasteigna og félaga, ásamt umsjón fasteignaverkefna yfir allan líftíma þeirra. „Við bjóðum Daníel hjartanlega velkominn í öflugt teymi Reita. Viðamikil þekking hans á sviði fjárfestinga og sjóðsstýringar í fasteignageiranum, bæði í íbúðar- og atvinnuhúsnæði og þróunarlóðum, kemur til með styrkja okkur enn frekar í áframhaldandi sókn og umbreytingu Reita úr hefðbundnu fasteignafélagi í þekkingar- og þróunarfélag sem er leiðandi í atvinnuhúsnæði og þróun.“ segir Guðni Aðalsteinsson , forstjóri Reita. Daníel kemur til Reita frá Kviku þar sem hann hefur starfað frá árinu 2017 sem sjóðsstjóri yfir ýmsum fasteignatengdum lána- og fagfjárfestasjóðum þar sem hann hafði umsjón með fasteignalánaviðskiptum frá greiningu til lánveitingar, gerð fjármálalíkana og fjárfestingartillagna. Daníel er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og löggiltur verðbréfamiðlari.