Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sam­eignar­sjóðir eiga aðeins hlut í 44 íbúðum

Read Full Article →

Útbreiðsla sameignarfyrirkomulags á íbúðamarkaði er enn takmörkuð, að því er kemur fram í frétt á vef HMS. Í upphafi júlí áttu fimm fjárfestingasjóðir á vegum byggingaverktaka hlut í 44 íbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Tíu mánuðir eru nú liðnir frá því að svokallað sameignarfyrirkomulag var fyrst kynnt til sögunnar hér á landi með húsnæðissjóðnum Reir20 á vegum Reir ehf. Meðal annarra slíkra sjóða sem voru settir á laggirnar voru Kauplykill (á vegum Skugga byggingarfélags), ÞG sjóður (á vegum ÞG verktaka ehf.), Öxar20 (á vegum Öxar ehf.), Safír20 (á vegum Safír bygginga ehf.) og Umbra20 (á vegum Umbra ehf.). Ofangreindur fjöldi íbúða í eigu sameignarsjóða þarf ekki að vera endanlegur fjöldi þeirra íbúða sem hafa verið seldar með sameignarfyrirkomulagi. Talan nær ekki til íbúða þar sem kaupandi hefur nýtt sér kauprétt á öllum eignarhlut sjóðsins í viðkomandi íbúð eða til þeirra sem íbúða sem hafa verið seldar aftur. Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans samþykkti í desember síðastliðnum breytingar á reglum bankans um hámark greiðslubyrðar fasteignalána í hlutfalli við tekjur neytenda, þannig að við útreikning á greiðslubyrði skuli litið til allra greiðslna sem falla til hjá einstaklingum við öflun íbúðarhúsnæðis. Þar á meðal þurfi að líta til greiðslna vegna afnota tengdum fyrirkomulagi íbúðakaupa, jafnvel þótt þeim sé frestað. Sjá einnig Leigan nú greidd mánaðar­lega í sam­eignar­forminu Í kjölfarið voru gerðar breytingar á sameignarforminu þannig að leiga verði greidd mánaðarlega í stað þess að safnast upp. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri hafði áður lýst áhyggjum af sameignarfyrirkomulaginu og sagði að um væri að ræða „mjög flókna samninga“. Í samantekt HMS kemur fram að flestar íbúðirnar sem umræddir fjárfestingarsjóðir eiga hlut í séu staðsettar í Garðabæ (43%) og í Hafnarfirði (41%) auk nokkurra íbúða í Reykjavík (16%). Meirihluti íbúðanna sé með byggingarár 2025. Kaupverð íbúðanna sem sameignarsjóðirnir eiga hlut í hefur verið á bilinu 59 til 119 milljónir króna, en meðalkaupverðið hefur verið um 79 milljónir króna. Fermetraverðið hefur verið allt frá 680 þúsund krónum upp í tæplega 1.100 þúsund krónur, en helmingur íbúðanna voru keyptar á fermetraverði á bilinu 900 til 999 þúsund krónur. Um 28% íbúðanna voru keyptar á fermetraverði á bilinu 700 til 899 þúsund krónur en einungis lítill hluti á fermetraverði undir 700 þúsund krónum eða yfir milljón krónum. Miðgildi fermetraverðs er rúmlega 920 þúsund krónur. Mynd tekin úr frétt á vef HMS. „Heilt á litið hefur meðalfermetraverð þeirra íbúða sem sameignarsjóðirnir eiga hlut í verið á pari við meðalfermetraverð í kaupsamningum um sambærilegar íbúðir síðastliðið ár, þ.e. fjölbýlisíbúðir með byggingarár frá 2023 til 2026 í Reykjavík, Hafnarfirði og Garðabæ.“

Share this article