Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hættuleg mengun af völdum skógarelda

Read Full Article →

Um 800 virkir skógareldar geisa nú í Kanada og ríflega hundrað þeirra teljast vera stjórnlausir. Um 1,9 milljón hektara lands hefur brunnið sem er álíka stórt svæði og Slóvenía. Skógareldarnir ógna ekki einungis lífi á jörðu niðri og gróðurlendi heldur ógnar mengun af þeirra völdum heilsu fjölda manns í Kanada og Bandaríkjunum. Í gær mældust loftgæði í Toronto þau verstu af öllum stórborgum heimsins og kanadísk yfirvöld ráðlögðu íbúum að vera innandyra. Svipað ástand var í Montreal og fleiri borgum í Kanada. Reykurinn frá skógareldunum hefur borist áfram til Pennsylvaníu, New York, og fleiri ríkja í norðaustur Bandaríkjunum. Zohran Mamdani, borgarstjóri New York, ráðlagði íbúum borgarinnar að forðast óþarfa útiveru og nýta sér kælistöðvar víða um borgina.

Share this article