Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kjúklingur innkallaður vegna salmonellu

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 11 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Kjúk­ling­ur inn­kall­að­ur vegna salm­on­ellu Fréttastofa RÚV Matfugl hefur innkallað eina framleiðslulotu fyrirtækisins af ferskum heilum kjúklingi sem framleiddur er fyrir Bónus. Grunur leikur á að salmonella finnist í þessari framleiðslulotu (nr. 011-26-03-5-64) og varar Matvælastofnun því við neyslu á henni. Fólk sem hefur keypt kjúklinga í þessari lotu á ekki að neyta þeirra heldur farga þeim eða skila til viðkomandi verslunar. Eldaðir heilir kjúklingar. Mynd úr safni. Shutterstock Fyrir 28 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Áætla að yfir 32 hekt­arar hafi brunn­ið Áætlað er að rúmlega 32 hektarar hafi brunnið í gróðureldum við Elliðavatn í gær. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hvetur fólk til að vera á varðbergi vegna gróðurelda. Í annarri vindátt hefðu vatnsból höfuðborgarbúa getað verið í hættu. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Mannréttindi „Mann­rétt­inda­sátt­mál­inn er ekki mat­seð­ill“ Ráðist er að mannréttindum um allan heim. Þetta sagði Antonio Guterres framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna við upphaf árlegrar ráðstefnu Mannréttindaráðs stofnunarinnar í morgun. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Frá NASA á Bacc­alá Bar á Hauga­nesi Bandarísku hjónin Dominique og Doug fluttu fyrir rúmu ári frá Tennessee til Hauganess þar sem þau reka veitingastaðinn Baccalá Bar. Þau reru á alveg ný mið því Doug var áður verkfræðingur hjá NASA og Dominique kennari og listamaður. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Einn mann­anna af Bakka­koti vill í fram­boð fyrir Pírata Brynjólfur Þór Guðmundsson Unnar Þór Sæmundsson, framkvæmdastjóri og laganemi, sækist eftir öðru til fimmta sæti á lista Pírata fyrir borgarstjórnarkosningar. Unnar er einn þeirra sem sögðu í Kveik að þeir hefðu verið beittir líkamlegu og andlegu ofbeldi þegar þeir voru vistaðir á Bakkakoti á Suðurlandi fram til ársins 2002. Unnar segist hafa ákveðið í ársbyrjun að gefa kost á sér í prófkjöri Pírata. Hann segist þá hafa verið ákveðinn í að mæta ekki í Kveik og segja ekki sögu sína þar. Honum hafi þótt það ósamræmanlegt því að ætla í stjórnmál til að breyta barnaverndarkerfinu. Hann hafi síðar ákveðið að láta Bakkakot ekki taka meira frá sér og því sagt sögu sína. Unnar Þór Sæmundsson. Kveikur / Ingvar Haukur Guðmundsson Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Óveður í New York hefur áhrif á 1.700 far­þega Ic­elandair Hugrún Hannesdóttir Diego 1.700 manns eiga flugmiða í ferðir Icelandair sem var aflýst vegna óveðurs í New York í Bandaríkjunum í gær og í dag. Tveimur ferðum til New York var aflýst í gær og í dag aflýsti Icelandair tveimur ferðum til New York og einni til Boston. Félagið stefnir á að bæta við flugi á morgun, segir Guðni Sigurðsson upplýsingafulltrúi Icelandair. Beðið sé eftir staðfestingu frá Bandaríkjunum. Guðni er vongóður um að ekki þurfi að aflýsa fleiri ferðum vegna óveðursins. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 VG og Vor til vinstri verða Vinstr­ið Sameiginlegt framboð Vinstri grænna og Vors til vinstri fyrir borgarstjórnarkosningar hefur fengið formlegt nafn: Vinstrið. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Mexíkó Loka vegum með brenn­andi bílum Stuðningsmenn eiturlyfjasamtakanna Ný kynslóð Jalisco í Mexíkó hefndi fyrir dauða leiðtoga síns meðal annars með því að kveikja í bílum og loka vegum með þeim. Óeirðirnar hafa borist um landið. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Skag­inn lækkar í verði Brynjólfur Þór Guðmundsson Hlutabréfaverð í Skaganum hefur lækkað um rúmlega fimm prósent í morgun. Þetta gerist í fyrstu viðskiptum eftir að tilkynnt var að samrunaviðræðum Skagans og Íslandsbanka hefði verið hætt. Hlutabréfaverð í Íslandsbanka hefur aftur á móti hækkað lítillega. Skaginn á VÍS, Fossa og Íslensk verðbréf. Viðræður um samruna hófust í október. Stjórnendur fyrirtækjanna voru ósammála um verðmat þeirra ef af samrunanum yrði. Hlutabréfaverð Íslandsbanka stefndi í öfuga átt við hlutabréfaverð Skagans í morgun. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Þrír drepn­ir í árásum Rússa í nótt Árásir Rússa víða um Úkraínu urðu þremur að bana og fleiri særðust. Þetta fylgir umfangsmiklum árásum í gær nærri höfuðborginni Kyiv. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Í sí­brota­gæslu eftir fjölda af­brota um helg­ina Brynjólfur Þór Guðmundsson Lögreglan á Suðurnesjum fékk karlmann úrskurðaðan í síbrotagæslu eftir fjölda afbrota um helgina. Lögreglan greinir frá því á vef sínum að hún hafi haft afskipti af manninum tvo daga í röð um helgina. Hann er grunaður um nytjastuld, akstur undir áhrifum og fjölmörg önnur umferðarlagabrot. Lögregla þekkir vel til mannsins enda hefur hann ítrekað komið við sögu hennar. Hún taldi síbrotagæslu því nauðsynlega til að stöðva brotahrinu hans. Lögreglubíll á ferð í Keflavík. Mynd úr safni. RÚV / Bragi Valgeirsson. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Varað við stað­bund­inni frost­rign­ingu Brynjólfur Þór Guðmundsson Veðurfræðingur Vegagerðarinnar biður fólk að hafa varann á sér nú þegar hlánar rólega með úrkomu eftir kuldatíð að undanförnu. Hætt er við staðbundinni frostrigningu við þessar aðstæður. Þetta á sérstaklega við á Vestfjörðum í dag, meðal annars í Djúpinu, vestantil á Norðurlandi í nótt og ekki hvað síst á Héraði í fyrramálið. Svona var útlitið á gangstéttum á höfuðborgarsvæðinu eftir frostrigningu. Rúv / Haukur Holm Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Myrti móður sína og dvaldi í íbúð með líkinu næstu mánuði á eftir Maður notaði samkomutakmarkanir í covid til að fela morðið á móður sinni fyrir nágrönnum sínum. Rannsókn leiddi í ljós að hann dvaldi í íbúð móður sinnar í tvo mánuði eftir morðið. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Þarf lítið til að menga neyslu­vatn höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins Vatnsból höfuðborgarbúa hefðu getað verið í hættu af völdum gróðureldanna við Elliðavatn í gær hefði vindátt verið önnur. Forstöðumaður vatnsmiðla hjá Veitum segir að huga þurfi betur að forvörnum við vatnsbólin og takmarka umferð um Heiðmörk. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Mexíkó Gripu til stór­felldra hefnd­ar­að­gerða eftir fall glæpa­for­ingja Kveikt var í bílum víða og skemmdir unnar á minnst 20 bankaútibúum þegar félagar í Jalisco-glæpagenginu hefndu drápsins á yfirmanni samtakanna. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Ung­verj­ar standa í vegi fyrir refsi­að­gerð­um gegn Rússum Ekkert samkomulag liggur fyrir um nýjan pakka refsiaðgerða Evrópusambandsins gegn Rússum og vegna andstöðu Ungverja eru taldar litlar líkur á að pakkinn verði samþykktur á fundi utanríkisráðherra ESB ríkjanna í dag. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Svona endaði med­al­íu­tafl­an — Nor­eg­ur sló tvö met Vetrarólympíuleikunum er lokið og því ljóst hvernig medalíutaflan lítur út. Alls fengu 29 þjóðir medalíu og Norðmenn settu tvö ný met á leikunum með 41 medalíu alls og 16 gull. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Skúrum og slydd­u­élj­um spáð víða Sunnan- og suðaustanáttir blása um landið í dag og hitastig fer hækkandi. Þó er útlit fyrir slydduél eða skúrir víða. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Holland Minni­hluta­stjórn Jettens tekur við völdum í dag Ný minnihlutastjórn tekur við völdum í Hollandi í dag undir forystu yngsta forsætisráðherrans í sögu landsins og þess fyrsta opinberlega samkynhneigða. Honum tókst ekki að mynda meirihlutastjórn og verður því líklega að sætta sig við málamiðlanir. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Ein slökkvi­sveit hugaði að kraum­andi hita í ösku sinu­elds­ins Markús Þ. Þórhallsson Slökkviliðsmenn að berja niður sinueldinn í gær. RÚV / Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir Ein sveit Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins fór aftur að Vatnsendahlíð í Kópavogi seint í gærkvöld þar sem mikill sinueldur brann í gærdag nærri Guðmundarlundi. Varðstjóri segir að hitamyndavél í dróna lögreglunnar hafi greint að eitthvað kraumaði undir niðri. Það var kveðið niður og allir slökkviliðsmenn eru löngu komnir til baka aftur. Varðstjórinn segir að nóttin hafi að öðru leyti verið róleg. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Zel­en­sky segir Pútín hafa hleypt þriðju heims­styrj­öld­inni af stað með inn­rás­inni fyrir fjórum árum Forseti Úkraínu segir að Rússlandsforseti hafi sett þriðju heimsstyrjöldina af stað með innrásinni fyrir rétt tæpum fjórum árum. Harða mótspyrnu þurfi að veita honum svo hann reyni ekki frekari landvinninga. Ekki komi til greina að gefa eftir land. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Íran Vonast eftir fundi um kjarn­orku­samn­ing í skugga hótana um árásir Banda­ríkja­manna Vonir standa til að Íranar og Bandaríkjamenn setjist að samningaborði um kjarnorku á fimmtudag. Utanríkisráðherra Írans segir samningsdrög í smíðum eftir fundi sendinefndanna í Genf. Bandaríkin spyrja hvers vegna Íranar hafi ekki látið undan. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Rússland Pútín segir end­ur­nýj­un kjarn­orku­vopna­bún­að­ar algert for­gangs­at­riði Rússlandsforseti boðar eflingu allra herja landsins og segir uppbyggingu og endurnýjun kjarnorkuvopnabúnaðar algert forgangsverkefni. Þannig væri öryggi tryggt með fælingu eftir að samningur um fækkun kjarnavopna rann sitt skeið. 23. febrúar 2026 kl. 2:17INNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Veitur: Heppni að gróð­ur­eld­ar sköð­uðu ekki vatns­ból­in Forstöðukona Vatnsmiðla hjá Veitum segir að heppni hafi ráðið því að vatnsból höfuðborgarbúa hlutu ekki skaða af sinueldunum við Elliðavatn í gær. Ekki þurfi mikið að gerast til að mengunarefni skolist niður í drykkjarvatn. Öll umgengni skapi hættu. 23. febrúar 2026 kl. 0:13INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Ic­elandair hefur aflýst ferðum til og frá aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna Markús Þ. Þórhallsson Icelandair hefur aflýst ferðum til og frá austurströnd Bandaríkjanna. RÚV / Ragnar Visage Icelandair hefur aflýst tveimur komum frá New York klukkan sex í fyrramálið og ferðum þangað og til Boston síðdegis vegna stórhríðar á a

Share this article