- What: Atlas Cloud and Defend Iceland form a cybersecurity partnership.
- Impact: Focus on securing critical national services and data.
Tæknifyrirtækin Atlas Cloud og Defend Iceland hófu samstarf á sviði netöryggis í sumar. Samstarfið miðar að því að gera stafrænar undirstöður - nýtast í innlendar þjónustur tengdar fjármálum, færsluhirðingu, heilbrigðisþjónustu og viðkvæmum gögnum - öruggari. Félögin benda á að talsverð umræða hefur verið undanfarið um mikilvægi þess að Ísland eigi þann kost að hýsa samfélagslega mikilvægu þjónustur innanlands. Þar undir falli líka stafrænar varnir. „Atlas hefur strax séð ábátann af þessu samstarfi, og tekist að lagfæra veikleika í gegnum samstarfið,“ segir í tilkynningu. „Þetta er í samræmi við okkar markmið að færa mikilvæga innviði heim á klakann aftur. Okkar sýn er að allt sem er okkur mikilvægt megi hýsa innanlands. Heiðarlegir hakkarar í umgjörð villuveiðigáttar er undirstaða að öflugu netöryggi og þær innbrotstilraunir eiga líka að vera innlendar,“ segir Þórður Atlason , framkvæmdastjóri Atlas. Atlas heldur úti skýjaþjónustu og innviðum sem eru hýstir á Íslandi. Defend Iceland hjálpar fyrirtækjum að finna og lagfæra öryggisveikleika áður en þeir geta verið misnotaðir með villuveiðigátt sinni og fyrsta íslenska gervigreindarhakkaranum. Sem hluti af samstarfinu fær Atlas aðgang að villuveiðigátt Defend Iceland og gefur þar með heiðarlegum hökkurum tækifæri til að greina og tilkynna öryggisveikleika á ábyrgan hátt. Jafnframt mun Defend Iceland nýta íslenska skýið Atlas. „Við erum mjög ánægð með að fá Atlas til liðs við Defend Iceland. Fyrirtækið sýnir með þessu skýran vilja til að vinna markvisst að öryggismálum með aðkomu óháðra sérfræðinga. Jafnframt er það okkur mikilvægt að byggja okkar eigin þjónustu á traustum innviðum Atlas. Þetta er samstarf sem byggir á gagnkvæmu trausti og sameiginlegri sýn á mikilvægi netöryggis,“ segir Theódór Ragnar Gíslason , framkvæmdastjóri hjá Defend Iceland. Theódór Ragnar Gíslason, framkvæmdastjóri hjá Defend Iceland. © Aðsend mynd (AÐSEND) Félögin segja samstarfið byggja á þeirri trú að sterkt stafrænt samfélag verði til þegar öflugir innviðir og virkt netöryggi vinni saman. „Með því að sameina krafta sína vilja fyrirtækin stuðla að auknu trausti á íslenskum tæknilausnum og skapa enn betri umgjörð fyrir fyrirtæki sem leggja áherslu á öryggi frá grunni.“