Ísfisktogarinn Bergey VE landaði fullfermi í Eyjum á mánudaginn. Ragnar Waage Pálmason skipstjóri segir aflann að mestu hafa verið ýsu en einnig ufsa, karfa og þorsk. um veiðiferðina. “ „Veitt var á Pétursey að undanskildum tveimur nóttum þegar leitað var að ufsa á Reynisdýpi og þar fékkst reyndar dálítill ufsi og einnig karfi. Á Pétursey var fínasta ýsuveiði og ýsan sem fékkst var stór og góð. Það var þokkalegasta veður í túrnum og segja má að hann hafi bara gengið vel,” sagði Ragnar Waage í samtali við tíðindamann heimasíðu Síldarvinnslunnar. Bergey mun halda til veiða á ný á föstudaginn og þá er ráðgerður stuttur karfatúr. Áformað er að landa á ný næstkomandi mánudag og síðan verður tekið sumarstopp.