Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Veltu fimm milljörðum

Read Full Article →

Marz sjávarafurðir, útflutnings- og umboðssölufyrirtæki á sjávarafurðum í Stykkishólmi, hagnaðist um 274 milljónir króna árið 2024, samanborið við 188 milljóna hagnað árið áður. Félagið velti 5,1 milljarði króna, sem er 42% aukning frá fyrra ári þegar tekjur námu 3,6 milljörðum. Í ársreikningi segir að jákvæða rekstrarniðurstöðu megi annars vegar rekja til aukningar á sölu inn á ákveðna markaði og hins vegar til vel nýttra og skynsamlegra fjárfestingatækifæra. Erla Björg Guðrúnardóttir er framkvæmdastjóri og annar eigenda félagsins. Lykiltölur / Marz sjávarafurðir ehf. 2024 2023 Tekjur 5.077 3.572 Eigið fé 1.596 1.474 Eignir 2.039 1.840 Afkoma 274 188 - í milljónum króna Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article