Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Íslendingur um skógareldana: „Hræðilega sorglegt“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 13.7.2026 | 23:23 Íslendingur um skógareldana: „Hræðilega sorglegt“ Sveinn segir íbúa á svæðinu halda ró sinni þrátt fyrir umfangsmikla skógarelda í næsta nágrenni. Ljósmynd/Sveinn Guðmundsson Tinna Björt Jónsdóttir [email protected] Setja bókamerki „Við erum ekki í neinni hættu eins og staðan er núna, að minnsta kosti ekki meðan vindurinn blæs frá okkur,“ segir Sveinn Guðmundsson fisksali í samtali við mbl.is. Sveinn er búsettur í Milly-la-Forêt, um 5.000 manna bæ við vesturjaðar Fontainebleau-skógarins, suðaustur af París í Frakklandi. Skógurinn umlykur bæinn að stórum hluta. Umfangsmikill eldur braust út í skóginum síðdegis í gær. Hann hefur í dag farið yfir að minnsta kosti 800 hektara svæði og hundruð slökkviliðsmanna unnið að því að hemja hann. Íbúar hafa verið fluttir á brott frá nokkrum nærliggjandi svæðum og eldurinn hefur raskað bæði umferð á A6-hraðbrautinni og lestarsamgöngum. „Vindáttin er hagstæð fyrir okkur. Akvegur liggur í kringum bæinn og skilur okkur að einhverju leyti frá skóginum. Ég er sjálfur tæplega 800 metra frá skógarjaðrinum,“ segir Sveinn. Mikill reykjarmökkur hefur legið yfir svæðinu eftir að eldurinn braust út. Ljósmynd/Sveinn Guðmundsson Sögufrægt svæði orðið illa úti Eldurinn logar ekki þeim megin við skóginn sem snýr að Sveini heldur á svæði sem nefnist Trois-Pignons. Hann segir það sérstaklega sorglegt enda sé svæðið bæði vinsælt útivistarsvæði og mikilvægt í sögu frönsku andspyrnuhreyfingarinnar í síðari heimsstyrjöldinni. „Þarna er meðal annars mjög þekkt gönguleið sem kallast Les 25 Bosses, eða hæðirnar 25, sem við förum oft. Þetta er gríðarlega fallegt og sögufrægt svæði,“ segir Sveinn. Gönguleiðin liggur um Trois-Pignons-svæðið og er ein þekktasta og fjölfarnasta gönguleiðin í nágrenni Fontainebleau. Á svæðinu stendur minnismerki um Publican-andspyrnunetið, sem starfaði þar undir stjórn bresku leyniþjónustunnar á árum síðari heimsstyrjaldarinnar. Vopnum og sprengiefni, sem var varpað niður úr breskum flugvélum, var komið fyrir í skóginum og þaðan dreift til andspyrnumanna. „Þarna er minnismerki um andspyrnuhreyfinguna og þá Breta sem létust. Að því er ég best veit er þetta svæði meira eða minna farið. Það er hræðilega sorglegt,“ segir Sveinn. Hann segist jafnframt hafa orðið var við að reykurinn færðist austar þegar leið á daginn. „Ég tók eftir því síðdegis að reykurinn var kominn lengra austur en hann hafði verið áður. Þá sá maður að eldurinn var farinn að teygja sig lengra inn í Fontainebleau-skóginn.“ Reynt að koma hestum í skjól Víða í skóginum og við jaðar hans standa íbúðarhús og mikið er um hestamennsku á svæðinu. Sveinn segir mikla vinnu hafa farið fram við að koma dýrum úr hættu. „Það var allt á fullu í gær að reyna að koma hestunum í öruggt skjól. Það eru gríðarlega margir hestar á þessu svæði og vonandi hefur það allt saman gengið vel.“ Þrátt fyrir nálægðina við eldinn hefur Sveinn hvorki orðið var við ösku né brunalykt í Milly-la-Forêt. „Vindurinn hefur verið mjög hagstæður fyrir okkur og borið reykinn í hina áttina. Við fórum með hundinn niður í bæ í morgun og fundum lítið sem ekkert fyrir þessu.“ Skógurinn hafði að sögn Sveins verið lokaður almenningi að stórum hluta í um tíu daga vegna mikilla þurrka áður en eldurinn braust út. „Það hafði verið bannað að fara inn í skóginn. Menn voru einfaldlega hræddir um að einhver færi þangað inn, kveikti sér í sígarettu og að allt myndi fuðra upp.“ Íbúar nærliggjandi þorpa fylgjast náið með þróun mála og hjálpast að við að halda hver öðrum upplýstum. Ljósmynd/Sveinn Guðmundsson Grunur um íkveikju Sveinn segir umræður ganga meðal heimamanna um að eldurinn hafi verið kveiktur af ásetningi. Hann segist hafa heyrt frá tveimur aðilum að maður hefði verið handtekinn nærri A6-hraðbrautinni, eins og mbl.is hefur nú þegar greint frá. Frétt af mbl.is Tveir handteknir vegna skógareldsins Frönsk yfirvöld hafa þó greint frá því að mörg upptök elds hafi fundist á afmörkuðu svæði, meðal annars báðum megin við A6-hraðbrautina. Það hafi vakið grun um að kveikt hafi verið í skóginum viljandi, en rannsókn stendur enn yfir. Íbúum í Milly-la-Forêt hafa ekki verið gefin fyrirmæli um að halda sig innandyra eða búa sig undir rýmingu. „Ekki hér hjá okkur. Nærliggjandi þorp voru hins vegar rýmd um klukkan tvö í nótt. Þá var einnig haldinn fundur þar sem fólk var beðið um að vera tilbúið að yfirgefa heimili sín ef þess gerðist þörf.“ Aðeins um 800 metrar eru frá heimili Sveins að jaðri Fontainebleau-skógarins. Ljósmynd/Sveinn Guðmundsson Nágrannar fylgjast hver með öðrum Sveinn segir stemninguna meðal íbúa vera furðu rólega þrátt fyrir aðstæður. Margir séu þegar farnir í sumarfrí, enda Bastilludagurinn, þjóðhátíðardagur Frakka, á morgun. „Fólk er frekar rólegt. Margir eru farnir í sumarfrí en þeir sem eru hér eru að tala saman, athuga stöðuna og fylgjast hver með öðrum.“ Hann segir nágranna sína reiða sig bæði á viðbragðsaðila og samheldni í samfélaginu. „Menn fylgjast hver með öðrum og láta vita ef eitthvað breytist.“ Hundruð slökkviliðsmanna reyna nú að ná niðurlögum eldsins. AFP/Thomas Samson „Dálítið tignarlegt að sjá þetta“ Mikill fjöldi slökkviliðsmanna og slökkviliðsflugvéla hefur verið sendur á svæðið. Sveinn segir að þótt tilefnið sé hörmulegt sé tilkomumikið að fylgjast með flugvélunum berjast við eldinn. „Það er því miður dálítið tignarlegt að sjá þetta. Mér sýnist vera um sjö vélar í notkun. Áhafnirnar eru ótrúlegar. Þær fljúga inn yfir reykinn, sleppa vatninu yfir eldinn og fara síðan út á Signu til að fylla vélarnar á ný.“ Hann segir að hundruð slökkviliðsmanna séu nú á svæðinu og að slökkvistarfið geti tekið langan tíma. „Það er reiknað með að það taki þrjá til fjóra daga að ná tökum á eldinum og síðan þrjár til sex vikur að slökkva hann algjörlega. Þetta er langstærsti skógareldur sem hefur orðið hér í mjög langan tíma.“ Slökkviliðsflugvélar hafa flogið ítrekað yfir svæðið og varpað vatni á eldinn. AFP/Thomas Samson Hátíðarhöldum aflýst Á hverju ári, að kvöldi 13. júlí, eru haldin sérstök slökkviliðsmannaböll víðs vegar um Frakkland í aðdraganda Bastilludagsins. Sveinn segir slíkt ball venjulega haldið í þorpunum á svæðinu og að kvöldinu ljúki jafnan með stórri flugeldasýningu. „Slökkviliðsmennirnir úr litlu þorpunum sameinast á einum stað og ballið endar yfirleitt með svakalegri flugeldasýningu. En í ljósi aðstæðna hefur þessu öllu verið aflýst.“ Sveinn segir heimamenn gera sér grein fyrir því að baráttan við eldinn sé rétt að hefjast. „Það er engin hætta hjá okkur eins og staðan er núna. En þetta veltur allt á vindinum og menn fylgjast mjög vel með því hvernig hann snýst.“ Kort af svæðinu. Ljósmynd/Aðsend Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Íslendingur um skógareldana: „Hræðilega sorglegt“ Myndir: Haaland sleikti sárin með Íslendingum í Miami Fylkir skoraði fimm í fyrri hálfleik á Ísafirði Reyna að klára fyrir myrkvann vestur á fjörðum Lohan kvaddi þrítugsaldurinn með heljarinnar veislu Umræðan Skollaleikur olíufélaganna Arfleifð sem ber að varðveita Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss Starmer gefur lítið fyrir kvabb um Falklandseyjar Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Smart að kaupa notaðar vörur Mest lesið Í gær Í vikunni Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Fuglinn hefur aldrei sést áður á Íslandi Þeir sem eiga tvo bíla ofrukkaðir Branson staddur á Íslandi Eldur í Eyjum: Allt tiltækt lið kallað út Himnastiginn málaður blár Þungar áhyggjur af fögrum fyrirheitum Mælirinn ekki undir 18 gráður í nótt Gular viðvaranir: Hitinn gæti náð 27 stigum Hellisheiði og Holtavörðuheiði lokað Kristrún slær í gegn í Tyrklandi og uppsker fylgjendahjörð Myndir: Sprettu upp súluna og féllu til sjávar Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Hitinn nálgast 27 gráðurnar Á þyrlu um landið þvert og endilagt „Íslendingar eru mikil stemningsþjóð“ Varað við sterkum hviðum og sandfoki Fjórir í fangaklefa eftir Kótelettuna MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Nýjast á mbl.is » Íslendingur um skógareldana: „Hræðilega sorglegt“ Myndir: Haaland sleikti sárin með Íslendingum í Miami Fylkir skoraði fimm í fyrri hálfleik á Ísafirði Reyna að klára fyrir myrkvann vestur á fjörðum Lohan kvaddi þrítugsaldurinn með heljarinnar veislu Umræðan Skollaleikur olíufélaganna Arfleifð sem ber að varðveita Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Tvær hindranir í vegi orkuskipta Sögð hafa látist sólarhring áður en hún fannst Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss Mest lesið Í gær Í vikunni Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Fuglinn hefur aldrei sést áður á Íslandi Þeir sem eiga tvo bíla ofrukkaðir Branson staddur á Íslandi Eldur í Eyjum: Allt tiltækt lið kallað út Himnastiginn málaður blár Þungar áhyggjur af fögrum fyrirheitum Mælirinn ekki undir 18 gráður í nótt Gular viðvaranir: Hitinn gæti náð 27 stigum Hellisheiði og Holtavörðuheiði lokað Kristrún slær í gegn í Tyrklandi og uppsker fylgjendahjörð Myndir: Sprettu upp súluna og féllu til sjávar Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Hitinn nálgast 27 gráðurnar Á þyrlu um landið þvert og endilagt „Íslendingar eru mikil stemningsþjóð“ Varað við sterkum hviðum og sandfoki Fjórir í fangaklefa eftir Kótelettuna MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Nálgunarbanns kra

Share this article