Security News

Cybersecurity news aggregator

⚔️
LOW Attacks Mbl Innlent

„Allt var brotið og peningaskápurinn galopinn“

  • What: A break-in occurred at a store in Reykjavík, with money stolen
  • Impact: Local business affected, no mention of digital security breach
Read Full Article →

Matur | Neytendur | mbl | 13.7.2026 | 14:10 „Allt var brotið og peningaskápurinn galopinn“ „Skrifstofan var í rústi, allt brotið á gólfinu og peningaskápurinn galopinn,“ segir Aurore Pélier Cady, eigandi Sweet Aurora Reykjavík á Bergstaðastræti, eftir innbrotið um helgina. Samsett mynd/Aðsend Elínrós Líndal [email protected] Setja bókamerki Brotist var inn í sælkerabakaríið Sweet Aurora Reykjavík í miðborg Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags og peningum stolið úr versluninni. Eigandinn, Aurore Pélier Cady, segir atvikið mikið áfall en kveðst um leið hafa fundið fyrir sterkum stuðningi frá samfélaginu eftir innbrotið. „Ég er enn að melta það sem gerðist um helgina og viðbrögð fólks við innbrotinu. Ég tala venjulega ekki á samfélagsmiðlum og opna mig um málin, en mig langaði að útskýra fyrir fólki hvað hefði komið upp á og af hverju ég væri sein að opna. Ég vildi láta fólk vita. En ég bjóst ekki við svona miklum viðbrögðum. Það hlýjaði mér um hjartaræturnar,“ segir Aurore. Hún kom að versluninni í mikilli óreiðu þegar hún mætti til vinnu í gærmorgun. Ástríða Aurore er að deila áhuga sínum á franskri sætabrauðsgerð með Íslendingum. Ljósmynd/Aðsend Náðist á myndband „Skrifstofan var í rústi, allt brotið á gólfinu og peningaskápurinn galopinn. Allur peningurinn var farinn og þá skildi ég hvað hafði gerst. Glugginn var brotinn og allt í niðurníðslu,“ segir hún. Að sögn Aurore var um 150 þúsund krónum stolið, en upphæðin átti meðal annars að fara í launagreiðslur og undirbúning fyrir fjögurra ára afmælisveislu verslunarinnar sem til stendur að halda næsta föstudag. Lögregla kom á vettvang eftir að Aurore hafði samband, en upptökur úr eftirlitsmyndavélum gáfu ekki skýra mynd af gerandanum. Hún segist þó sjálf hafa fundið ummerki eftir þjófinn á vettvangi. Opnaði þrátt fyrir áfallið Þrátt fyrir áfallið ákvað Aurore að opna bakaríið. „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt. Þetta er svo erfiður bransi að ég gat ekki leyft mér að hafa lokað. Sýningin verður að halda áfram,“ segir hún. Aurora segist djúpt snortin af stuðningnum sem hún hefur fengið frá viðskiptavinum og öðrum í samfélaginu. Aurore Pélier Cady lærði við Institut Paul Bocuse í Frakklandi og hefur starfað á virtum veitingastöðum og hótelum í París og á Íslandi áður en hún opnaði sitt eigið bakarí fyrir fjórum árum. Ljósmynd/Aðsend Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem hún verður fyrir innbroti. Hún segir að þetta sé í sjöunda skiptið sem brotist sé inn í tengslum við rekstur hennar hér á landi. Áður, þegar hún rak starfsemi sína á Laugavegi, hafi sex innbrot verið framin á fjórum árum. Í fyrra var þessi fallega mynd tekin fyrir utan Sweet Aurora Reykjavík að Bergstaðarstræti 14. Aurore hyggst halda upp á fjögurra ára afmæli bakarísins næsta föstudag. Ljósmynd/Aðsend Afmælisveislan stendur enn til Þrátt fyrir endurtekin áföll segist hún ekki ætla að gefast upp. Enn stendur til að halda afmælisveislu Sweet Aurora Reykjavík á föstudag og eru allir velkomnir í verslunina við Bergstaðastræti milli klukkan 17 og 20. Aurore er franskur listamaður er kemur að bakstri og handverki á sælkerasætabrauði. Ljósmynd/Aðsend Fjórða eða fimmta fyrirtækið í vikunni Aurore segist sjálf ekki hafa viljað óska eftir fjárhagsaðstoð, þótt vinkona hennar hafi viljað setja af stað söfnun fyrir reksturinn eftir innbrotið. „Ég vona bara að sem flestir komi við á föstudag og versli af mér. Það er stuðningur sem skiptir mig máli. Mér finnst mjög óþægilegt að biðja um pening,“ segir hún. Í gær ræddi Aurore einnig við aðra sem starfa í miðborginni og segir hún innbrot í atvinnurekstur vera orðið alvarlegt vandamál. „Ég er fjórða eða fimmta fyrirtækið sem brotist var inn til í vikunni. Þetta er almennt stórt vandamál í miðborginni. Ég veit að lögreglan er að gera sitt besta, en ég velti fyrir mér hverjar afleiðingarnar eru og hvernig við stoppum þetta. Það er ekki pláss í fangelsum og ekki hægt að halda fólki. Ef engin endurhæfing er til staðar, þá brýst fólk bara inn aftur,“ segir hún. Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni Sjö dagar af góðum mat með Evu Laufeyju Bleikar innkaupakörfur eru leið einhleypra til að kynnast í Finnlandi Nýtt bakarí opnað á Húsavík eftir langt hlé Stendur hjónaband Beccu Bloom á brauðfótum? Hvað borðaði Katrín prinsessa þegar hún gekk á tindana þrjá? Hrefna Sætran lét draum Bolla rætast Nigella: Grilluð eggaldin með fetaosti, myntu og chili Eva Laufey: Grilluð nautalund með villisveppasósu og kartöflusalati Ása Regins deilir uppskrift að ítalskri torta al cioccolato Kótelettan: „Ætlum að sýna gestum hvernig heilt lamb er úrbeinað“ Bleikar innkaupakörfur eru leið einhleypra til að kynnast í Finnlandi Stendur hjónaband Beccu Bloom á brauðfótum? Hrefna Sætran lét draum Bolla rætast Kótelettan: „Ætlum að sýna gestum hvernig heilt lamb er úrbeinað“ Nigella: Grilluð eggaldin með fetaosti, myntu og chili Ása Regins deilir uppskrift að ítalskri torta al cioccolato Hvað borðaði Katrín prinsessa þegar hún gekk á tindana þrjá? Gæðabakstur kallar inn súkkulaðibitakökur Viltu slá í gegn á grillinu í sumar með haf og haga? Þá þarftu þessa uppskrift! Vikumatseðill: Fallegasta matarvika sumarsins Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Bleikar innkaupakörfur eru leið einhleypra til að kynnast í Finnlandi „Gott verð á Breiðdalsvík“ Sjö dagar af góðum mat með Evu Laufeyju „Þetta er mesta sprengja sem við höfum séð“ Hrefna Sætran lét draum Bolla rætast Obo Diner opnaður á Egilsstöðum með ameríska og asíska matargerð Hvað borðaði Katrín prinsessa þegar hún gekk á tindana þrjá? Vikumatseðill: Fallegasta matarvika sumarsins „Þetta gæti verið hin fullkomna máltíð“ Áhugaverðir eftirréttir Albert fékk matarást á Björgu eftir þessa máltíð Ása Regins deilir uppskrift að ítalskri torta al cioccolato Súkkulaðitart: Silkimjúk og ómótstæðileg Draumur frá Sikiley: Pistasíukakan sem þú verður að smakka Marengsterta með banana fyrir fallegt síðdegi „Þessar eru nokkrum númerum of góðar!“ Fleiri eftirréttir Kokkalandsliðið » „Gestir sögðust aldrei hafa upplifað annað eins: Kvöldið á Hótel Geysi vakti athygli“ „Það má alveg segja að þetta sé árið mitt“ Merki um aukna athygli á íslenskri matargerð erlendis Meira um kokkalandsliðið Mest lesið Í gær Í vikunni Sjö dagar af góðum mat með Evu Laufeyju Bleikar innkaupakörfur eru leið einhleypra til að kynnast í Finnlandi Nýtt bakarí opnað á Húsavík eftir langt hlé Stendur hjónaband Beccu Bloom á brauðfótum? Hvað borðaði Katrín prinsessa þegar hún gekk á tindana þrjá? Hrefna Sætran lét draum Bolla rætast Nigella: Grilluð eggaldin með fetaosti, myntu og chili Eva Laufey: Grilluð nautalund með villisveppasósu og kartöflusalati Ása Regins deilir uppskrift að ítalskri torta al cioccolato Kótelettan: „Ætlum að sýna gestum hvernig heilt lamb er úrbeinað“ Bleikar innkaupakörfur eru leið einhleypra til að kynnast í Finnlandi Stendur hjónaband Beccu Bloom á brauðfótum? Hrefna Sætran lét draum Bolla rætast Kótelettan: „Ætlum að sýna gestum hvernig heilt lamb er úrbeinað“ Nigella: Grilluð eggaldin með fetaosti, myntu og chili Ása Regins deilir uppskrift að ítalskri torta al cioccolato Hvað borðaði Katrín prinsessa þegar hún gekk á tindana þrjá? Gæðabakstur kallar inn súkkulaðibitakökur Viltu slá í gegn á grillinu í sumar með haf og haga? Þá þarftu þessa uppskrift! Vikumatseðill: Fallegasta matarvika sumarsins Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Bleikar innkaupakörfur eru leið einhleypra til að kynnast í Finnlandi „Gott verð á Breiðdalsvík“ Sjö dagar af góðum mat með Evu Laufeyju „Þetta er mesta sprengja sem við höfum séð“ Hrefna Sætran lét draum Bolla rætast Obo Diner opnaður á Egilsstöðum með ameríska og asíska matargerð Hvað borðaði Katrín prinsessa þegar hún gekk á tindana þrjá? Vikumatseðill: Fallegasta matarvika sumarsins „Þetta gæti verið hin fullkomna máltíð“ Áhugaverðir eftirréttir Albert fékk matarást á Björgu eftir þessa máltíð Ása Regins deilir uppskrift að ítalskri torta al cioccolato Súkkulaðitart: Silkimjúk og ómótstæðileg Draumur frá Sikiley: Pistasíukakan sem þú verður að smakka Marengsterta með banana fyrir fallegt síðdegi „Þessar eru nokkrum númerum of góðar!“ Fleiri eftirréttir Kokkalandsliðið » „Gestir sögðust aldrei hafa upplifað annað eins: Kvöldið á Hótel Geysi vakti athygli“ „Það má alveg segja að þetta sé árið mitt“ Merki um aukna athygli á íslenskri matargerð erlendis Meira um kokkalandsliðið

Share this article