Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Yfirráð yfir auðlindum skipta Íslendinga miklu máli

Read Full Article →

Í könnun Gallup fyrir Viðskiptablaðið, sem gerð var í mars, kom fram að yfirgnæfandi meirihluti landsmanna telur mikilvægt að Ísland haldi yfirráðum yfir auðlindum sínum komi til þess að aðildarsamningur við Evrópusambandið verði lagður fyrir þjóðina. Töluverð umræða hefur verið um auðlindarmálin í fjölmiðlum og stangast ummæli hollenska forsætisráðherrans og danska sjávarútvegsráðherrans á við yfirlýsingar íslenska utanríkisráðherrans. Alls sögðu 88% svarenda að það skipti miklu máli að Ísland héldi yfirráðum yfir auðlindum sínum. Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 94,8% að það skipti miklu máli en 5,2% að það skipti litlu máli. Sjá einnig Skýlaus krafa um yfirráð Rob Jetten, forsætisráðherra Hollands, ræddi málið í neðri deild hollenska þingsins í Haag 16. júní. Michiel Hoogeveen, þingmaður JA21, spurði hvort afstaða hollenskra stjórnvalda væri sú að sameiginleg sjávarútvegsstefna ESB fylgdi fullri aðild að sambandinu. Jetten svaraði því afdráttarlaust játandi. Maria Reumert Gjerding, umhverfisráðherra Danmerkur, sem jafnframt fer með sjávarútvegsmál, fjallaði einnig um málið í skriflegu svari til Evrópumálanefndar danska þingsins. „Ekkert núverandi aðildarríki hefur, eftir því sem vitað er, undanþágu á sviði sjávarútvegs,“ sagði í svarinu. Þorgerður segir hægt að semja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra brást við ummælum Jettens í viðtali við Vísi sem birtist 9. júlí. Hún sagði ummælin „ekki í samræmi við mín samtöl“ við hollensk stjórnvöld og ráðherra frá öðrum Evrópusambandslöndum. Þorgerður lagði áherslu á að markmið Íslands væri að halda yfirráðum yfir fiskveiðiauðlindinni og stjórn fiskveiða. Hún taldi ekki rétt að ganga út frá því fyrir fram að slíkt væri útilokað og sagði hægt að semja um málið. Í könnun Gallup í mars var einnig spurt hversu vel eða illa landsmenn treysti Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra til að gæta hagsmuna Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Minnihluti aðspurðra treystir ráðherranum til að gæta hagsmuna Íslands gagnvart bandalaginu. Sjá einnig Meirihluti landsmanna treystir ráðherra illa

Share this article