Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hrognafyllt loðna og síldartorfur vekja eftitekt

Read Full Article →

Fregnir berast nú af miðunum af hrognafylltri loðnu norður og austur af landinu sem menn velta fyrir sér skýringum á og finnst óvenjulegt þegar svo langt er liðið fram á sumar. Eins eru síldartorfur sagðar áberandi. „Við höfum heyrt af þessu en við vitum ekki hvort þetta er eitthvað að ráði,“ segir Guðmundur J. Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar, um loðnuna. Ekki óvenjulegt nema fyrir magnið og dreifinguna „Við höfum fregnir um að þarna sé hrygningarloðna á ferðinni. Þetta er svo sem ekki óvenjulegt nema kannski mögulega hvað þetta er mikið og dreift yfir stórt svæði,“ segir Guðmundur. Viðlíka fréttir hafi meðal annars borist úr Húnaflóa og Eyjafirði. Guðmundur segir Hafrannsóknastofnun ekki hafa haft tök á meta magnið af þessari loðnu eða rannsaka að öðru leyti. Sé sami árgangur og hrygndi í vetur „En það er náttúrulega þekkt að loðna er að hrygna fyrir norðan að einhverju leyti,“ segir Guðmundur sem kveður loðnuna hrygna allt fram í júlí svo tímasetningin sé ekki óvenjuleg. Aðspurður segist Guðmundur ekki vilja fara út í að túlka þessa stöðu. Hann telji að um sé að ræða sama árgang af loðnu og hrygnt hafi í vetur. Töluvert magn af loðnu hafi mælst fyrir Norðurlandi í síðustu mælingu sem hafi verið gerð í febrúar. Sú loðna hafi skilað sér inn á hefðbundið hrygningarsvæði vestur af landinu en mögulega ekki öll. Mögulega ekki hluti af veiðistofninum „Við vitum ekki nákvæmlega hvernig hún skilar sér þarna inn á norðan megin og hvað hún er að hafast þarna við mikið,“ segir Guðmundur. Sú loðna sem hrygni fyrir norðan og austan land sé ekki á hefðbundnu hrygningarsvæði og þar sér uppvaxtarskilyrðin mögulega síðri. „Þessi loðna frá hrygningu fyrir norðan verður mögulega ekki hluti af veiðistofninum.“ Áhöfnin á Árna Friðrikssyni muni skoða málin En það er ekki aðeins hrognafyllt loðna fyrir norðan og austan land sem vakið hefur eftirtekt í sumar. Fyrir austan er talað um að sjórinn sé svartur af síld, meðal annars út fyrir Bakkafirði og fregnir berast af mikilli síld úti fyrir Borgarfirði eystra. Guðmundur segir þetta ekki hafa verið kannað. Hins vegar hafi rannsóknaskipið Árni Friðriksson þann 7. júlí lagt af stað í tuttugu daga makrílleiðangur og muni skoða þetta eftir því sem siglingunni vindur fram. Skipið hafi byrjað úti fyrir Vestfjörðum en hafi síðan haldið áfram norður fyrir land. Lesa má um makrílleiðangurinn hér .

Share this article