Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tveir látnir eftir byssubardaga á götuhátíð í Toronto

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kanada Tveir látnir eftir byssu­bar­daga á götu­há­tíð í Toronto Grétar Þór Sigurðsson Lögreglan leitar byssumanns eða -manna. AP/The Canadian Press / Keito Newman Í það minnsta tveir eru látnir eftir byssubardaga á götuhátíð í Toronto, fjölmennustu borg Kanada. Aðstoðarlögreglustjóri Toronto sagði á blaðamannafundi í nótt að skotbardagi hafi brotist út. Hann gerir ráð fyrir að rannsókn málsins verði flókin. Enn hefur enginn verið handtekinn. Þúsundir gesta salsahátíðar voru samankomnir þar sem skotbardaginn var. Fréttin var uppfærð eftir blaðamannfund lögreglu. Fyrir 14 mínútumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Arg­ent­ína – Sviss Argentína sigraði Sviss í framlengdum leik með þremur mörkum gegn einu. Liðið mætir Englandi í undanúrslitum. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Lið Arg­ent­ínu komið í und­an­úr­slit eftir fram­lengd­an leik Argentínumenn skoruðu tvö mörk í framlengingu og lögðu Svisslendinga að velli 3-1. Rautt spjald í seinni hálfleik breytti gangi leiksins. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar gera árásir á nokkur Pers­a­flóa­ríki Íransher beindi árásum sínum að Katar, Barein og Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Árásirnar eru svar við árásum Bandaríkjanna fyrr í nótt. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kína Felli­byl­ur­inn Bavi skell­ur á aust­ur­strönd Kína Þetta er öflugasti fellibylur sem nær Kína það sem af er ári. 134 slösuðust í Taívan, flestir þeirra féllu af mótorhjólum eða urðu fyrir lausamunum sem fuku í storminum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Einn í haldi grun­að­ur um morðið á Ann Widd­e­combe Grétar Þór Sigurðsson Widdecombe á kosningafundi Umbótaflokksins árið 2024. EPA / ADAM VAUGHAN Lögreglan í Suður-Yorkshire á Englandi hefur handtekið mann sem er grunaður um morðið á Ann Widdecombe. Hinn grunaði er 28 ára gamall breskur ríkisborgari. Í tilkynningu lögreglu er sérstaklega tekið fram að hann sé hvítur á hörund. Widdcombe var atvinnumálaráðherra og fangelsismálaráðherra fyrir Íhaldsflokkinn en gekk svo til liðs við Brexit-flokkinn sem síðar varð Umbótaflokkurinn. Hún sat á þingi til ársins 2010 og á Evrópuþingi þar til Bretar gengu úr Evrópusambandinu árið 2020. Lögreglan segir ekkert benda til þess að glæpurinn hafi verið pólitískur. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Nor­eg­ur - Eng­land England komst í undanúrslit á HM í fótbolta með 2-1 sigri á Noregi í framlengdum leik. Jude Bellingham var hetja Englendinga en hann skoraði bæði mörkin eftir að Norðmenn komust yfir. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar loka Hormúss­undi – Banda­rík­in gera árásir á Íran Íranar segja viðvörunarskotum hafa verið skotið í átt að skipi sem fór ósamþykkta siglingaleið um Hormússund. Bandaríkjaher segir Írana hafa gert „blygðunarlausa árás“ á flutningaskip í sundinu. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kúba Enn ol­íu­skort­ur og raf­magns­leysi Rafmagn fór af allri Kúbu í gær, í annað sinn í þessari viku. Aðeins eitt skip hefur komist þangað með olíu frá því í lok janúar þegar Bandaríkjastjórn hótaði ríkjum sem selja olíu til Kúbu. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Hestar Skeið­að upp í vind­inn Landsmóti hestamanna lauk á Hólum í Hjaltadal í kvöld með úrslitum í A-flokki gæðinga þar sem hinn fjölhæfi alhliða íslenski gæðingur var í brennidepli. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Spánn Eld­arn­ir á Spáni loks í rénun Mannskæðustu gróðureldar í áraraðir á Spáni eru loks í rénun. Tólf fórust í eldunum og eyðileggingin er mikil. Bresk fjölskylda á ferðalagi slapp undan eldunum en vinafólk þeirra fannst látið. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Kær­urn­ar komnar til vegna skorts á eft­ir­liti Fjármálaráðherra hyggst leggja fram frumvarp í haust sem tekur meðal annars á kærum vegna opinberra framkvæmda. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins fagnar því að stjórnvöld taki málaflokkinn fastari tökum. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fótbolti Fleiri en 3000 stelp­ur keppa á Síma­móti um helg­ina Símamótið í fótbolta fer fram um helgina í Kópavogi. Um 3100 stelpur taka þátt í mótinu. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Hlaup Þor­steinn sigr­aði í Lauga­vegs­hlaup­inu þriðja árið í röð Hið árlega Laugavegshlaup var haldið í dag í þrítugasta sinn og voru yfir 800 keppendur frá 33 þjóðum. Þorsteinn Roy Jóhannsson sigraði í karlaflokki þriðja árið í röð en í kvennaflokki sigraði sænsk hlaupakona á nýju brautarmeti. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR HM í fótbolta 2026 Vonar að Ís­lend­ing­ar segi „Heia Norge“ í kvöld eins og Norð­menn sögðu „Áfram Ísland“ fyrir 10 árum Íslendingar og Norðmenn koma margir saman í kvöld til að fylgjast með leik Noregs og England. Norðmaður segist finna fyrir stuðningi Íslendinga á mótinu, rétt eins og Norðmenn studdu Íslendinga er þeir mættu og sigruðu Englendinga á EM 2016. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Austurland Föng­uðu fisk í veð­ur­blíð­unni í Atla­vík – „Fyrst ætlum við að drepa hann og svo setja hann á grill­ið“ Mikil veðurblíða var á Austurlandi í dag en hitinn fór upp í 25 stig. Ungir jafnt sem aldnir nutu sín í botn. 11. júlí 2026 kl. 19:19ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Bell­ing­ham skaut Eng­landi í und­an­úr­slit og Nor­eg­ur er úr leik England komst í kvöld í undanúrslit á HM í fótbolta eftir 2-1 sigur í framlengdum leik gegn Noregi sem er þar með úr leik. Jude Bellingham var hetja Englendinga og skoraði bæði mörkin. Andreas Schjelderup kom Noregi yfir á 36. mínútu en Bellingham jafnaði fyrir England í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Staðan var 1-1 að loknum venjulegum leiktíma. Bellingham skoraði sigurmark Englendinga í upphafi framlengingar. Átta liða úrslitunum lýkur í nótt með leik Argentínu og Sviss kl. 01:00. Sigurvegarinn í þeim leik mætir Englandi í undanúrslitum. Hér var fylgst með því helsta í tengslum við leik Noregs og Englands í lifandi fréttavakt. SAMANTEKT 11. júlí 2026 kl. 18:45INNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Ný sviðs­lista­há­tíð á Ak­ur­eyri: „Komið og fáið smá menn­ingu í æð­arn­ar“ Ungir Akureyringar standa að nýrri sviðlistahátíð þar um helgina. Hátíðin er kölluð Krummafótur og skipuleggjendur segjast bjóða upp á eitthvað fyrir alla. 11. júlí 2026 kl. 18:13ÍÞRÓTTIR Tennis Noskova yngsti sig­ur­veg­ar­inn á Wimbled­on í 15 ár Tékkneska tenniskonan Linda Noskova vann í dag sinn fyrsta risatitil þegar hún hafði betur gegn löndu sinni Karolinu Muchova í úrslitaleik einliðaleiks kvenna á Wimbledon-mótinu. Noskova sem er 21 árs er yngsti Wimbledon-meistarinn í 15 ár. 11. júlí 2026 kl. 17:45ÍÞRÓTTIR Sund Snævar sló bæði Ís­lands- og Evr­ópu­met Sundgarpurinn Snævar Örn Kristmannsson sló bæði Íslands- og Evrópumet á Evrópuleikum fatlaðra í Póllandi í vikunni. Hann vann tvenn gullverðlaun og eitt silfur. 11. júlí 2026 kl. 17:18INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ít­rek­uð inn­brot á stúd­enta­görð­um: „Ég vil vera örugg heima hjá mér“ Íbúar stúdentagarða Háskóla Íslands hafa þurft að þola það að rúður séu brotnar og brotist sé inn, að ókunnugir geri sig heimakomna í almenningsrýmum og að stolið sé af þeim. 11. júlí 2026 kl. 17:16ÍÞRÓTTIR Fótbolti Sam­komu­lag í höfn um að Klopp taki við Þjóð­verj­um Jürgen Klopp, fyrrverandi knattspyrnustjóri Liverpool, hefur náð samkomulagi í meginatriðum um að taka við sem landsliðsþjálfari þýska karlalandsliðsins í fótbolta. Þetta staðfesti þýska knattspyrnusambandið í dag. 11. júlí 2026 kl. 15:50ÍÞRÓTTIR Körfubolti Fyrr­ver­andi leik­mað­ur Þórs og Hamars myrtur í skot­árás Bandaríski körfuboltamaðurinn Kinu Rochford, fyrrverandi leikmaður Þórs í Þorlákshöfn og Hamars í Hveragerði, var myrtur í skotárás á körfuboltamóti í New York í gærkvöld. Enginn hefur enn verið handtekinn vegna árásarinnar. 11. júlí 2026 kl. 15:16INNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Eru lands­menn orðnir lite-óðir? Vinsældir lite-bjóra hafa aukist til muna síðustu ár og hafa helstu brugghús landsins hafið framleiðslu á lite-bjórum. Ein tegund ber þó af í sölu. 11. júlí 2026 kl. 14:40INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur „Stór áfangi í stóru verki“ Ný brú yfir Breiðholtsbraut var opnuð snemma í gærmorgun. Svæðisstjóri Vegagerðarinnar segir þetta stóran áfanga í stóru verki. Tafir geta orðið á umferð næstu vikur þar sem framkvæmdir standa enn. 11. júlí 2026 kl. 14:39INNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Gerir ráð fyrir að seðla­banka­stjóri beiti sér „af fullum þunga“ í að­drag­anda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu Halldór Benjamín Þorbergsson telur að seðlabankastjóri muni beita sér af þunga þegar þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður nálgast. Rót hárra stýrivaxta séu launahækkanir. Snærós Sindradóttir segir félag sem Halldór stýri hagnast á hárri verðbólgu. 11. júlí 2026 kl. 14:09ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Leik­mað­ur HM-liðs Suður Afríku fannst látinn Jayden Adams, landsliðsmaður Suður-Afríku í fótbolta, fannst látinn í morgun, aðeins 25 ára að aldri. Adams lék í öllum þremur leikjum liðsins í riðlakeppninni á HM þar sem liðið komst í 32 liða úrslit. Dánarorsök liggur ekki fyrir. 11. júlí 2026 kl. 13:35ERLENDAR FRÉTTIR Spánn „Ég keyrði í gegnum loga“ Slökkviliðsmenn á Spáni hafa náð tökum á gróðureldunum sem hafa orðið minnst 12 að bana í Andalúsíu. Sjö manns er enn saknað og um 1500 þurftu að flýja heimili sín. 11. júlí 2026 kl. 13:02INNLENDAR FRÉTTIR Menning „Hljóm­ar eins og þetta sé eitt­hvað aga­legt“ Hljómsveitin Purrkur Pillnikk sendi frá sér nýtt lag í vikunni en það er það fyrsta sem kemur frá sveitinni eftir 44 ára hlé frá útgáfu. Einar Örn Benediktsson segir þetta hljóma agalega. 11. júlí 2026 kl. 12:59ERLENDAR FRÉTTIR Moldóva Tofan til­nefnd­ur for­sæt­is­ráð­herra Mold­óvu Þorgils Jónsson Vasile Tofan Mynd / Facebooksíða Vasile Tofan Maia Sandu, forseti Moldóvu, hefur tilnefnt kaupsýslumanninn Vasile Tofan til að verða næsti forsætisráðherra landsins. Hann tekur við af Alexöndru Munteanu sem sagði af sér eftir deilur við flokkana sem mynda meirihluta á þingi. Tofan, sem er 44 ára gamall, segist ætla að vinna áfram að því að auka samstarf við Evrópu ása

Share this article