Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Gefi ekki rétta mynd af viðhorfi til dánaraðstoðar

Read Full Article →

Innlent | mbl | 11.7.2026 | 20:28 Gefi ekki rétta mynd af viðhorfi til dánaraðstoðar Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, segir að túlka beri niðurstöðurnar af varkárni. Samsett mynd/mbl.is/Sigurður Bogi/Colourbox Setja bókamerki Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og formaður Læknafélags Íslands segja að ályktanir um að meirihluti lækna og hjúkrunarfræðinga styðji lögleiðingu dánaraðstoðar eigi ekki við traustan grundvöll að styðjast. Heilbrigðisráðuneytið framkvæmdi könnun árið 2023 um viðhorf heilbrigðisstarfsfólks til dánaraðstoðar og var 400 læknum og 400 hjúkrunarfræðingum boðin þátttaka. Í niðurstöðum könnunarinnar kemur fram að 86% hjúkrunarfræðinga og 56% lækna séu hlynnt dánaraðstoð. Túlka beri niðurstöður af varkárni Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, og Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, segja í skoðanagrein á Vísi að túlka beri þessar niðurstöður af varkárni vegna lítils úrtaks og lágs svarhlutfalls. „Af þeim 400 læknum sem boðið var að taka þátt í könnuninni svöruðu einungis 133 læknar því hvort þeir væru hlynntir dánaraðstoð. Í þessum 133 lækna hópi sögðust 56% vera fylgjandi lögleiðingu dánaraðstoðar. Af þeim 400 hjúkrunarfræðingum sem boðin var þátttaka svöruðu einungis 115 spurningunni hvort þeir væru hlynntir því að dánaraðstoð verði leyfð hér á landi. Af þeim 115 hjúkrunarfræðingum sem tóku afstöðu svöruðu 86% þeirra því þannig til að þeir væru hlynntir dánaraðstoð,“ segir í greininni. Helga og Steinunn árétta einnig að niðurstöðurnar byggist á svörum um 3% starfandi hjúkrunarfræðinga og um 8% starfandi lækna. Þær segja að þrátt fyrir þetta hafi opinberlega verið farið með niðurstöðurnar eins og staðfestingu þess að meirihluti íslenskra lækna og hjúkrunarfræðinga sé fylgjandi dánaraðstoð. Megi ekki skapa þrýsting „Það sem félagsfólk beggja félaga hefur endurtekið bent á er að réttur fárra má ekki leiða til þess að þrýstingur skapist á þá sem standa veikastir,“ segja Helga og Steinunn í greininni. Einnig kemur fram að margt þurfi að vera til staðar áður en dánaraðstoð verði að raunverulegum valkosti á Íslandi. „Í þeirri faglegu umræðu sem átt hefur sér stað innan beggja félaga hefur ítrekað verið bent á að áður en svo afdrifaríkar breytingar eru teknar til skoðunar verði að tryggja sterkt heilbrigðiskerfi, jafnt aðgengi að öflugri líknar- og lífslokameðferð, skýr samtöl um meðferðarmarkmið og stefnumótun sem byggir á gagnreyndri þekkingu.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Gefi ekki rétta mynd af viðhorfi til dánaraðstoðar Pickford slær 36 ára gamalt met Noregur – England kl. 21, bein lýsing Dularfullir kalkþörungar fegra Greiddi 20 milljónir í leyfi fyrir brúðkaupið Umræðan Umhverfið á ekki að öskra Tilbrigði við stefið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ellefu mánuðir frá goslokum 26 gráðum spáð og Reykvíkingar streyma í bæinn Telja eldinn slokknaðan: Talsvert tjón á einni íbúð Dularfullir kalkþörungar fegra Mest lesið Í gær Í vikunni Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress Gyðingar opna hús í miðbænum Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Lítið þarf til að skrúfa fyrir flugið Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss Sex fá 75,5 milljónir MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Sundlaugagarður í Laugardalnum Ísland græði ekkert á aðild að ESB Gular viðvaranir vegna hvassviðris MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Stefnir í mesta hita ársins um helgina Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Lögreglan kaupir búnað á AliExpress Inga segir fréttir af drykkju sinni stórlega ýktar Andlát: Bragi Hannesson „Maður fær ekkert á föstudögum í sveitinni“ 26 gráðum spáð og Reykvíkingar streyma í bæinn Engin fordæmi um undanþágur „Sögðu okkur að flýta okkur eins hratt og við gátum“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Nýjast á mbl.is » Gefi ekki rétta mynd af viðhorfi til dánaraðstoðar Pickford slær 36 ára gamalt met Noregur – England kl. 21, bein lýsing Dularfullir kalkþörungar fegra Greiddi 20 milljónir í leyfi fyrir brúðkaupið Umræðan Umhverfið á ekki að öskra Tilbrigði við stefið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ellefu mánuðir frá goslokum Dularfullir kalkþörungar fegra Telja eldinn slokknaðan: Talsvert tjón á einni íbúð Rannsókn á upptökum brunans lokið: Meta tjónið Mest lesið Í gær Í vikunni Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress Gyðingar opna hús í miðbænum Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Lítið þarf til að skrúfa fyrir flugið Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss Sex fá 75,5 milljónir MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Sundlaugagarður í Laugardalnum Ísland græði ekkert á aðild að ESB Gular viðvaranir vegna hvassviðris MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Stefnir í mesta hita ársins um helgina Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Lögreglan kaupir búnað á AliExpress Inga segir fréttir af drykkju sinni stórlega ýktar Andlát: Bragi Hannesson „Maður fær ekkert á föstudögum í sveitinni“ 26 gráðum spáð og Reykvíkingar streyma í bæinn Engin fordæmi um undanþágur „Sögðu okkur að flýta okkur eins hratt og við gátum“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi

Share this article