Innlent | mbl | 11.7.2026 | 17:05 Fær ekki að áfrýja og hótar að kæra íslenska ríkið fyrir ofsóknir Margrét fær ekki að áfrýja ærumeiðingardómi á hendur sér til Landsréttar, að því er fram kemur í bréfi Sigríðar J. Friðjónsdóttur til Landsréttar. Samsett mynd/mbl.is/Karítas/Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Ríkissaksóknari telur ekki nægilega ástæðu vera fyrir hendi til þess að veita Margréti McArthur Friðriksdóttur leyfi til að áfrýja niðurstöðu héraðsdóms, þar sem hún var dæmd til þess að greiða 200.000 króna sekt vegna meiðyrða í garð Barböru Björnsdóttur héraðsdómara, til Landsréttar. Bréf þess efnis birti Margrét á Facebook-síðu sinni fyrir skemmstu, en þar vísar Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari í 2. mgr. 198. gr. laga nr. 88/2008 þar sem segir að mál verði að hafa verulegt almennt gildi eða varða mikilvæga hagsmuni til þess að áfrýjunarleyfi sé gefið. Margrét virðist alls kostar ósátt við ákvörðun ríkissaksóknara og telur málið sannarlega hafa verulegt almennt gildi. Hún sakar Sigríði jafnframt um að vera starfi sínu ekki vaxin og að „dansa með dómstólaspillingunni á Íslandi“. Frétt af mbl.is Sektuð fyrir að kalla dómara „lausláta mellu“ „ Ísland er hrunið gott fólk “ Í byrjun júní sakfelldi Héraðsdómur Reykjaness Margréti fyrir ærumeiðingar í garð Barböru þar sem hún kallaði dómara „lausláta mellu“, og var henni gert að greiða 200.000 króna sekt ellegar sitja í fangelsi í fjórtán daga. Ummælin um Barböru lét Margrét falla eftir að Barbara var einn dómara í máli þar sem Margrét var dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hóta Semu Erlu Serder lífláti, en þess má geta að Landsréttur sýknaði Margréti af þeim dómi. „Sigríður sér heldur ekkert að því að Jónas Jóhannsson dómari skilur mig eftir með margfaldan málskostnað vegna eigin klúðurs og ítrekaðra frestana á uppkvaðningu, þá var málið einnig vanreifað af hálfu ákæruvaldsins og mér var einnig gefið orð í munn því ákæruvaldið fullyrti ítrekað að ég hafi kallað dómarann vændiskonu en ég notaði aldrei það orðalag,“ segir í færslu Margrétar. Frétt af mbl.is „Hún framdi á mér réttarmorð“ „Ísland er hrunið gott fólk og það verður að hreinsa úr öllum kerfum samfélagsins, núllstilla eins og Færeyingar gerðu á sínum tíma vegna spillingar embættismanna, síðan þá hafa Færeyjar blómstrað. Þetta mál er að enda fyrir Mannréttindadómstólnum svo mikið er víst og ég mun kæra íslenska ríkið fyrir ofsóknir í áratug sem hefur tekið mikinn toll af mér, minni fjölskyldu og fyrirtæki.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fær ekki að áfrýja og hótar að kæra íslenska ríkið Ungstirnið mun þéna meira en Mbappé Sex fá 75,5 milljónir Sjálfboðaliði í meira en hálfa öld „Frakkar ættu að vera hræddir“ Umræðan Umhverfið á ekki að öskra Tilbrigði við stefið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Inga segir fréttir af drykkju sinni stórlega ýktar Segir að Íran verði útrýmt ef hann verður drepinn Frakklandseldar tvöfalt skæðari en í fyrra Ísland græði ekkert á aðild að ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress Gyðingar opna hús í miðbænum Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Lítið þarf til að skrúfa fyrir flugið Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Ísland græði ekkert á aðild að ESB Gular viðvaranir vegna hvassviðris Sundlaugagarður í Laugardalnum Tökum á stórmyndinni frestað MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Stefnir í mesta hita ársins um helgina Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Lögreglan kaupir búnað á AliExpress Inga segir fréttir af drykkju sinni stórlega ýktar Andlát: Bragi Hannesson „Maður fær ekkert á föstudögum í sveitinni“ 26 gráðum spáð og Reykvíkingar streyma í bæinn Engin fordæmi um undanþágur „Sögðu okkur að flýta okkur eins hratt og við gátum“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Nýjast á mbl.is » Fær ekki að áfrýja og hótar að kæra íslenska ríkið Ungstirnið mun þéna meira en Mbappé Sex fá 75,5 milljónir Sjálfboðaliði í meira en hálfa öld „Frakkar ættu að vera hræddir“ Umræðan Umhverfið á ekki að öskra Tilbrigði við stefið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Spurningin kom Ingu rosalega á óvart „Það er erfitt að sjá þetta“ Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss Mest lesið Í gær Í vikunni Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress Gyðingar opna hús í miðbænum Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Lítið þarf til að skrúfa fyrir flugið Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Ísland græði ekkert á aðild að ESB Gular viðvaranir vegna hvassviðris Sundlaugagarður í Laugardalnum Tökum á stórmyndinni frestað MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Stefnir í mesta hita ársins um helgina Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Lögreglan kaupir búnað á AliExpress Inga segir fréttir af drykkju sinni stórlega ýktar Andlát: Bragi Hannesson „Maður fær ekkert á föstudögum í sveitinni“ 26 gráðum spáð og Reykvíkingar streyma í bæinn Engin fordæmi um undanþágur „Sögðu okkur að flýta okkur eins hratt og við gátum“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu