Security News

Cybersecurity news aggregator

🏦
INFO News Viðskiptablaðið

Boozt hækkar afkomuspána

  • What: Boozt reports revenue growth
  • Impact: Company shows improved financial performance
Read Full Article →

Netverslunin Boozt fagnar í næsta mánuði fimmtán ára afmæli. Hermann Haraldsson, sem hefur stýrt netversluninni frá árdögum hennar, segir að eftir hraðan vöxt í heimsfaraldrinum hægði á tekjuvexti Boozt. Nú sé fyrirtækið aftur á móti að snúa vörn í sókn. Í uppgjöri Boozt fyrir fyrsta ársfjórðung 2026 sem birtist í lok apríl kom fram að nettóvelta hafi aukist um 4% frá sama ársfjórðungi í fyrra og numið um 21,7 milljörðum króna. Aðlagaður rekstrarhagnaður (e. adjusted EBIT margin) nam um 549 milljónum króna á fjórðungnum, sem samsvarar 2,5% aðlöguðu rekstrarhagnaðarhlutfalli samanborið við 2,3% á sama tímabili í fyrra. Stærstu fréttirnar í uppgjörinu voru þó sterkur marsmánuður þar sem sala á vor- og sumarvörulínu hófst og vörutegundir voru um 40% fleiri en árið áður. Í uppgjörstilkynningu sagði Hermann viðskiptavini hafa tekið vel í þessar breytingar. Um leið staðfesti Boozt 3% til 8% tekjuvaxtarspá sína fyrir árið en tók fram að líklegra væri að vöxturinn yrði við efri mörk bilsins. Þá var fyrri spá um aðlagað rekstrarhagnaðarhlutfall hækkuð úr 5,3% til 6,5% í 5,6% til 6,8%. Í síðustu viku birti Boozt svo bráðabirgðatölur fyrir annan ársfjórðung þar sem fram kom að eftirspurn eftir vor- og sumarvörulínunni hafi áfram verið sterk. Nettóvelta hafi aukist um 13% á fjórðungnum miðað við sama tímabil í fyrra. Aðlagað rekstrarhagnaðarhlutfall nam 6,5% á öðrum ársfjórðungi, samanborið við 3,4% á sama tíma í fyrra. Um leið var afkomuspá fyrir árið 2026 hækkuð. Þannig reiknar fyrirtækið nú með 7% til 11% tekjuvexti en bilið var eins og fyrr segir 3% til 8% í fyrri spá. Þá var spá um aðlagað rekstrarhagnaðarhlutfall hækkuð öðru sinni á jafn mörgum mánuðum, nú upp í 6% til 6,8%. Markaðurinn hefur tekið vel í þessar fréttir. Gengi hlutabréf Boozt, sem skráð eru á markað í Danmörku og Svíþjóð, stendur í 148 sænskum krónum á hlut þegar þetta er skrifað. Til samanburðar stóð gengið í 105 sænskum krónum á hlut við lokun markaða 23. apríl. Eftir lokun markaða sama dag birti Boozt uppgjör fyrsta ársfjórðungs. Gengishækkunin frá birtingu uppgjörsins nemur 41%. Aðspurður kveðst Hermann bjartsýnn á að fyrirtækið muni halda áfram sama dampi og næstu fjórðungar verði einnig sterkir. „Það er ánægjulegt að tekjuvöxturinn sé í tveggja stafa tölu og markmiðið er að halda áfram á þeirri braut. Við höfum verið að taka inn ný vörumerki á undanförnum mánuðum, með góðum árangri, og munum halda því áfram. Sem dæmi má nefna að aukið úrval í snyrtivöru hefur leitt til þess að snyrtivörusala Boozt á Íslandi hefur stóraukist.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article